17.04.1950
Neðri deild: 84. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (3203)

45. mál, fiskimálasjóður

Forseti (SB):

Í tilefni af ósk hv. þm. Ísaf. vil ég geta þess, að mál þetta hefur ekki verið tekið fyrir enn vegna sérstakra óska um, að því væri frestað um skeið. Hins vegar mun sá dráttur ekki verða langur úr þessu, og má vænta, að það verði tekið á dagskrá einhvern næstu daga.