21.04.1950
Efri deild: 92. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í C-deild Alþingistíðinda. (3231)

60. mál, notendasímar í sveitum

Frsm. 2. minni hl. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Þetta mál er þegar búið að ræða það mikið, að þar er litlu við að bæta. Ég vil aðeins gera nokkru frekari grein fyrir nál., sem ég hef látið koma fram nú. Í því er ekki farið fram á nema tvennar breyt. á frv. Sú fyrri er, að 4. gr. falli niður, þ. e. nefndarvalið til þess að skipuleggja, hvar notendasíma skuli leggja. Þetta nefndarval, eins og nú er gert ráð fyrir því í frv., er hápólitískt, þar sem annar þeirra manna, sem eftir frv. á að koma í þessa n., fyrir utan póst- og símamálastjóra, sem sjálfsagður er í þessari n., er fyrrv. ráðh. Framsfl. og alþm., og hinn er einnig í miðstjórn Framsfl. eða flokksráði Framsfl. Þetta er náttúrlega illa viðunandi og ekki líklegt til heppilegs samstarfs, að taka svona einhliða út úr einum flokki menn í þessa n., enda er það erfiðara fyrir mennina sjálfa, sem eru flokksbundnir, að starfa í n., og einmitt fyrir það, að þeir eru flokksbundnir. Mér er vel við báða þessa menn, og þó að þeir reyni að vanda sig við störf sin í n., mega þeir alltaf búast við því að verða grunaðir um að láta flokkshagsmuni ráða sínum gerðum í þeim efnum, sem þeim yrðu falin í þessari n., kannske meir en réttlátt er, og út af því gæti orðið arg og óánægja í sveitunum. Það hefur ekki komið fram hér í umr., hvernig erindisbréf þeirra eigi að verða, heldur sér sennilega Framsfl. um það, að þessir menn nái kosningu og þeir telji sig þá frekar umboðsmenn hans, en annarra flokka. Ég held, að þetta yrði til trafala því, að þetta fari vel úr hendi.

Hin brtt. mín er um það, að 3. málsl. 6. gr. frv. falli niður, sem þýðir það, að ekki verði teknir vextir af lánum þeim, sem lögð eru fram af sveitum eða sýslufélögum, en nú eiga að vera 4%, sem ríkissjóði beri að greiða. Ég álít skakkt að greiða mönnum, sem leggja fram fé að láni í þessu skyni, vexti og það hærri vexti, en innlánsvextir sparisjóða eru yfirleitt, því að ef það er gert, þá kemur það svo út, að það er gróðavegur að leggja fram fé til þess að byggja fyrir símann í sveitunum, þannig að þetta mundi verka þannig, að það yrðu frekar þeir ríkustu, sem fengju síma heim til sín, en þeir fátækari. Mér virðist því, að þeir, sem vilja fá síma heim til sín í sveitunum, ættu heldur að leggja fram fé til þess sem lán, er sé vaxtalaust í eitt til tvö ár. Það sýndi þá, að þeir vildu nokkuð leggja í sölurnar til þess að fá síma heim til sín.

Því miður gat ekki orðið samkomulag um þessi mál í n. En einn hv. flm. málsins lýsti yfir hér í hv. d., að mér skildist, að hann legði enga áherzlu á, að þessi n. væri svo skipuð eins og gert er ráð fyrir í frv. Og mér skildist, að hann gæti látið sér lynda, að jafnvel engin n. væri skipuð í þessu skyni, og það sýnir víðsýni þessa hv. þm. í málinu. Ég tel ekki, að hann hafi neitt músarholusjónarmið í því máli, og yrði það frekar til framgangs málinu, ef að hans ráðum væri farið. En féð, 2,5 millj. kr. á ári, sem gert er ráð fyrir í frv., að við atkvgr. um það verði ákveðið að verja úr ríkissjóði til þessara mála, þykir mér nokkuð há upphæð, ef ástæður ríkissjóðs eru eins og sagt er. En ef málið er nauðsynlegt, sé ég ekki ástæðu til annars en að fylgja því, ef t. d. form. fjvn. og hæstv. fjmrh., sem er nú ekki hér viðstaddur, telja það geta gengið, að lögð sé þessi kvöð á ríkissjóðinn. — Hv. 1. þm. N-M. minntist á, að hann teldi, að þetta gæti komið fram frá Marshallfénu. Og mér lízt svo á, að með því móti yrði það betur tryggt, að þessar framkvæmdir kæmust á, heldur en annars. Teldi ég það heppilegt. En ekki hefur komið fram brtt. um það atriði, en ég geri þá ráð fyrir, að sá hv. þm., sem þetta lagði til í ræðu, komi fram með brtt. um það, sem gæti komizt að víð 3. umr. — En það þykir mér sérstaklega erfitt nú, að fá ekki áheyrn hæstv. fjmrh., hvorki hans sjálfs né af hálfu hans hálfgerða staðgengils, sem hér er, hv. form. fjvn. (BSt: Hann hefur sagt sitt álit í málinu.), eða hjá öðrum hv. fjhn.-mönnum.

Sem sagt, það má mikið til þess vinna að reyna að koma á símum yfirleitt um sveitir landsins, og ef fé er tiltækilegt til þess, er ég því samþykkur. En það ætti að reyna að halda þessum framkvæmdum lausum við strangan flokkssvip. Framkvæmd þessara mála hefur reynzt sæmilega áður þó að einstakar sveitir hafi kvartað nokkuð. Ég sé, að það hefur verið upp og niður með það, hvaða flokki hafa tilheyrt þeir þm., sem hafa verið fulltrúar þeirra kjördæma, sem prósentvís hafa lægsta tölu notendasíma, en þau svæði eru Snæfellsnessýsla og Eyjafjarðarsýsla. En Framsfl. hefur átt fulltrúa Eyjafjarðarsýslu fremur en aðrir flokkar, en hins vegar Sjálfstfl. fulltrúa Snæfellsnessýslu, svo að það virðist ekki vera hlutdrægni þarna um að ræða, er telja megi landlæga eftir pólitískum línum, sem fram hefur komið í þessum málum, heldur hafi ýmis önnur atvik komið þar til greina, er ráðið hafa þarna um, þó að ég geti ekki fært rök fyrir því misræmi, sem hér hefur átt sér stað.