21.04.1950
Efri deild: 92. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í C-deild Alþingistíðinda. (3232)

60. mál, notendasímar í sveitum

Frsm. 1. minni hl. (Bernharð Stefánsson):

Virðulegi forseti. Ég hef nú talað í þessu máli eins og þingsköp leyfa. Og það er einungis vegna þess að ég hef fengizt við framsögu þessa máls, sem ég leyfi mér að fara fram á að fá að gera stutta aths. nú, og það er hér sérstaklega út af því, að hv. frsm. 2. minni hl. fjhn. sagði, að ég hefði lýst yfir því — mér skildist hann eiga þar við mig —, að ég gæti fallizt á, að þessi n., sem gert er ráð fyrir í frv., væri öðruvísi skipuð eða alls engin. (ÞÞ: Ég meinti hv. 1. þm. N-M.) Hann er ekki í fjhn. (ÞÞ: Nei, hann er einn af flm. frv.) En ég lýsti yfir í n., að ég gæti fallizt á, að n. væri öðruvísi skipuð, en alls ekki, að þarna væri ekki um nefnd að ræða, sem skipuð yrði í þessu skyni, sem um getur í frv., til þess að ákveða um þessi mál. Annars held ég, að það verði erfitt að búa til nefnd hér á landi, sem hægt sé að tryggja, að sé eins ópólitísk og þeir hv. þm. Barð. og hv. 11. landsk. þm. virðast vilja gera kröfu til um þessa n. Og þó að þetta standi nú svo, að þessir menn, sem hér er um að ræða, að gert er ráð fyrir í frv., að verði í þessari n., séu framsóknarmenn, þá er það ákaflega einkennilegt, ef ekki má fela embættismönnum svona störf, ef þeir eru í einhverjum tilteknum flokki (GJ: Hví má þá ekki fela landssímastjóra þetta, sem er ráðinn til þess af ríkinu?). Af því að reynslan hefur sýnt, að þetta hefur verið svona framkvæmt, að það er ekki jafnrétti í þessu á milli héraða, sem skýrslur sýna, og við slíkt er ekki hægt að una lengur. Og eins og hér hefur komið fram, verður ekki hægt að sjá, að hér sé um neina flokkslega hlutdrægni að ræða. Það er af einhverjum öðrum ástæðum, sem þetta hefur orðið svona. Þess vegna er stungið upp á því hér, að í þessari n. fáist við þessa skipulagningu með póst- og símamálastjóra menn, sem eru högum bænda og sveitanna sérstaklega kunnugir. En ég kann ekki við þennan tón í raun og veru, sem hér hefur komið fram gagnvart ákvæðum frv. um þessa nefndarskipun. Ég veit ekki. hvað yfirleitt er óhætt að setja í lagafrv., að fela skuli ákveðnum embættismanni, ef þetta ákvæði frv. á ekki að geta staðizt. Ætli embættismenn landsins séu ekki flestir í einhverjum landsmálaflokki? Og ef vegamálastjóri og póst- og símamálastjóri eiga að gera eitthvað, er það þá sama og þeir flokkar skuli gera það? Ég veit mjög vel að t. d. vegamálastjóri er ákveðinn sjálfstæðismaður. Ég fyrir mitt leyti, eftir minni reynslu, hef enga ástæðu til þess að ætla honum pólitíska hlutdrægni í störfum hans sem embættismanns. Ég veit hins vegar ekkert, hvers flokks póst- og símamálastjóri er, en ég veit bara það, að héruðum hefur verið af símamálastjórninni svo mikið mismunað um lagningu notendasíma, að alls ekki er viðunandi. Þess vegna er það, að ég er algerlega á móti fyrri brtt. þeirri, sem borin er fram á þskj. 574. Ég gæti fallizt á að breyta ákvæðunum um skipun þessarar n., ef menn eru svo hræddir við pólitísk áhrif Framsfl. sem virðist vera í sambandi við þessa nefndarskipun, og gæti ég t. d. fallizt á, að hún yrði kosin af Alþ. En að fella n. alveg niður er ég gersamlega mótfallinn. Um 2. brtt. er það að segja, að ég get ákaflega vel fallizt á hana. En ef það þykir of mikið, sem ákveðið er í 1. gr. frv. um fjárframlögin, þá er þessi brtt. í raun og veru til þess að auka þau (JJás: Það gildir ekki vextina). Það er reyndar svo. Þetta kemur á sveitirnar.