02.05.1950
Efri deild: 99. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (3268)

60. mál, notendasímar í sveitum

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég tel, að aðstandendur þessa frv. hafi játað og lýst yfir því, að ekki komi til mála að framkvæma frv. eins og það er nú og eins og fjárhag ríkissjóðs er nú háttað. Ég skoða þetta því sem gamanmál og dægrastyttingu vissra þm., en finnst óþarfi að vera að íþyngja öðrum þm. með því og segi því nei.