19.12.1949
Efri deild: 17. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í C-deild Alþingistíðinda. (3282)
68. mál, almannatryggingar
Frsm. (Haraldur Guðmundsson):
Herra forseti. Í lögum um almannatryggingar frá 1946 er svo ákveðið, að þau skuli endurskoða í árslok 1950. Reynslan hefur nú samt sýnt, að l. þurfti fljótlega að breyta, og það hefur verið gert á hverju ári síðan þau tóku gildi. 1947 var samþykkt að fresta framkvæmd kaflans um heilsugæzluna um eitt ár. Á sama þingi var samþykkt að lækka atvinnurekendagjald á öðru verðlagssvæði um 25%, og jafnframt var Tryggingastofnuninni heimilað að greiða sjúkrasamlagsgjöld fyrir gamalmenni og öryrkja. Árið 1948 var framkvæmd heilsugæzlukafla l. enn frestað um eitt ár og aðrar breytingar framlengdar, og til viðbótar kom breyting um sjúkradagpeninga til giftra kvenna, eða húsmæðra, sem ekki hafa sjálfstæðar tekjur. Einnig var samþykkt að heimila að greiða nokkurn styrk til læknisvitjanasjóða og sjúkrasamlaga til að kosta sjúkraflutninga og læknisvitjanir, þar sem sérstaklega stendur á og erfitt er um vik. Í viðaukal. 1948 var enn fremur ákveðið að endurskoða almannatryggingalöggjöfina fyrr en ákveðið var í upphaflegu l., og skyldi leggja þá endurskoðun fyrir Alþingi haustið 1949. Þess vegna er þetta frv. hér komið fram. Sumarið 1948 fól félmrh. tryggingaráði og forstjóra Tryggingastofnunarinnar að undirbúa þessa endurskoðun, og tók Skúli Guðmundsson alþm. sæti í ráðinu í stað Helga Jónassonar alþm. á meðan á endurskoðuninni stóð. Frv. þetta er svo flutt að tilhlutan félmrn. fyrir tilmæli félmrh., sem lætur þess getið, að hann hafi óbundnar hendur í sambandi við afgreiðslu málsins. Sama fyrirvara gera nm., afstaða þeirra fer eftir því, hvaða afgreiðslu einstök atriði málsins fá.
Ég skal nú ekki að þessu sinni fara langt út í þetta mál, en efni þessa frv. lýtur aðallega að þrennu. Í fyrsta lagi er lagt til, að breyting verði gerð á starfsmannahaldi, þannig að auk þeirra starfsmanna, sem ákveðnir eru með gildandi lögum, skuli heimilt að skipa sérstakan yfirlækni Tryggingastofnunarinnar, er nefnist heilsugæzlustjóri. Í rauninni er þar með aðeins verið að lögfesta atriði, sem þegar er komið til framkvæmda, þar eð Sigurður Sigurðsson var ráðinn heilsugæzlustjóri s. l. haust. Heilsugæzlustjóri á að hafa með höndum forstöðu heilsugæzlunnar, er þriðji kafli l. kemur til framkvæmda, en þangað til á hann að vinna að undirbúningi þeirra framkvæmda og hafa yfirumsjón með starfsemi sjúkrasamlaganna.
Önnur meginbreyt., sem þetta frv. felur í sér, er sú, að sjúkrasamlög verði lögboðin í öllum hreppum landsins. Enn þá eru 50–60 hreppar, þar sem ekki hafa verið stofnuð sjúkrasamlög, en nm. eru á einu máli um, að það skapi verulegar veilur í tryggingakerfinu, að sjúkrasamlögin nái ekki til allra landsmanna.
Aðalatriðið í 2. kafla er ákvæðið um heilsugæzlustjórann. Hann á í fyrsta lagi að hafa yfirumsjón með læknamálum stofnunarinnar í samráði við forstjóra og einnig sjúkrasamlaganna, en í öðru lagi að undirbúa framkvæmd heilsugæzlunnar og taka við stjórn þeirra mála, þegar sá kafli kemur til framkvæmda. Aðrar breyt. á l. lúta aðallega að ákvæðunum um bætur. Það hefur sýnt sig, að síðan almannatryggingal. voru samþ. 1946, hefur dýrtíðin aukizt að mun og kaupgjald hækkað þrátt fyrir vísitölubindinguna við 300 stig. Það má því segja, að hlutfallið milli launa og bóta hafi raskazt bótaþegum mjög í óhag. Úr þessu hefur þó verið reynt að bæta með því að greiða ellilífeyri, sem miðaður er við vísitöluna 315, en ekki 300. Þá hefur einnig verið tekinn upp sá háttur að greiða sjúkrasamlagsiðgjöld fyrir elli- og örorkulífeyrisþega. Lætur nærri, að þetta hvort tveggja samsvari 10% hækkun á lífeyrinum, sem nú er á 1. verðlagssvæði 3.780 kr. að viðbættu sjúkrasamlagsiðgjaldi, 15 kr. á mánuði, eða alls 3.960 kr. í stað 3.600 kr., ef miðað er við grunnlífeyrinn og 300 vísitölustig. Þessi hækkun öll kemur því til með að samsvara 30 vísitölustigum. Þá var og rætt um það í n., hvort tiltækilegt væri að breyta bótaupphæðunum, sem eru eftir verðlagssvæðum 900 og 1.200 kr. í grunn. Þetta þótti ekki tiltækilegt, því að nm. sýndist svo mikil óvissa ríkja bæði um fjárhag ríkisins og sveitarfélaga svo og það miklar sveiflur í verðlagi og kaupgjaldi, að þar yrði kannske tjaldað til einnar nætur. N. þótti og tíminn síðan l. voru sett tæpast nógu langur, og miðar hún því till. sínar um breytingar á bótakaflanum við það, að ekki þurfi að raska fjárhagsgrundvelli trygginganna nú. Af því leiðir auðvitað, að till. eru takmarkaðri en ella. Í skemmstu máli að segja þá eru heimildirnar auknar og nokkrum nýjum bætt við. Hægt er eftir þessum l. að greiða hjónum einstaklingslífeyri hvoru fyrir sig, ef ástæður eru fyrir hendi, sem tryggingaráð metur gildar. Þá er og lagt til, að í staðinn fyrir 40% uppbót á lífeyrinn þá sé nú heimild til að greiða 50% uppbót á lífeyrinn og sé heimild þessi ekki bundin, eins og nú er í l., einungis við sjúkralífeyri, heldur nái hún einnig til þeirra, sem sökum einstæðingsskapar eða algers skorts á vinnugetu geta ekki komizt af með venjulegan lífeyri. Ýmsar fleiri heimildir eru rýmkaðar og síðan bætt inn einum nýjum bótaflokki, mæðralaunum, þar sem ætlazt er til, að einstaklingsmæðrum, sem hafa tvö börn eða fleiri á framfæri sínu, skuli auk barnalífeyris greidd sérstök mæðralaun, sem fari hækkandi eftir því, sem börnin eru fleiri. Árið 1946 var kaflinn um þetta felldur niður, en mér er mjög vel kunnugt, að brýn þörf er á að setja ákvæði um þetta. Ég hygg að vísu rétt, að ákvæðin um barnalífeyri séu betri hjá okkur, en mörgum öðrum þjóðum. Allt um það er bersýnilegt, að barnalífeyririnn er ekki nægilegur, ef um mörg börn er að ræða hjá sömu móður. Hygg ég, að segja megi með nokkrum rétti, að móður með eitt barn sé ekki ástæða til að ætla, ef hún er við góða heilsu, nema 2.400 kr., þar sem 200 kr. á mánuði ættu að gera henni kleift að sjá fyrir þeim báðum. Allt öðru máli er að gegna, ef börnin eru 2–4 eða fleiri, því að þá getur móðirin lítið eða ekkert unnið út á við. Og útilokað er með öllu, að móðir með fleiri börn geti unnið sér eitthvað inn utan heimilis. Hér er því lagt til, að móðir með 2 börn fái í mæðralaun 1.200 kr., með 3 börn 2.400 kr. og með 4 börn eða fleiri 3.600 kr. fyrir utan sinn fulla einstaklingslífeyri. Kona á 1. verðlagssvæði með 4 börn fengi því samtals 13.200 kr., og ætti hún að geta dregið fram lífið á því. Ég vil eindregið mæla með því við hv. d., að hún samþykki þetta, því að hér hygg ég, að þörfin sé einna mest. Gert er ráð fyrir, að aukinn kostnaður samkv. II. kafla l. muni nema 2–2½ millj. Tryggingastofnunin hefur safnað nokkru fé að undanförnu, vegna þess hve vel hefur innheimzt, en bótagreiðslurnar ekki náð fullum þunga enn. Þess vegna lítur stofnunin svo á, að hægt sé að bæta þessum 2–2½ millj. við, án þess að hækka iðgjöldin eða afla annarra nýrra tekjustofna. Frá samþykkt alþýðutryggingal. 1946 hafa tekjur trygginganna verið skertar töluvert, og skal hér gefið stutt yfirlit um það. Samkv. þessu frv. er gert ráð fyrir, að útgjöldin aukist um 2–2½ millj. kr. Iðgjöld til sjúkrasamlaga vegna elli- og örorkulífeyrisþega og annars í því sambandi nema um 1½ millj. kr. Þá eru komnar hér um bil 4 millj. Auk þess hefur verið ákveðið að greiða sjúkradagpeninga til mæðra, en ekki þori ég að segja ákveðið, hve hárri upphæð þau útgjöld muni nema. Tekjur trygginganna hafa einnig verið skertar með lækkun framlags á fjárl. um 500–600 þús. kr. Samtals telst mér til, að aukin útgjöld á tryggingarnar síðan l. um almannatryggingar voru afgreidd, sé gert ráð fyrir, að þetta frv. verði að l., nemi um 5 millj. kr. eða 10% af því, sem gert var ráð fyrir, að upphæð bótanna næmi. Þó telst n. svo til, að hægt sé að mæta þessum nýju útgjöldum án þess að leita nýrra tekjustofna.
Á eitt atriði vildi ég minnast enn, og er það heilsugæzlukaflinn. Afleiðingin af því, að honum hefur verið frestað, er sú, að nokkrir hópar detta niður á milli, ef svo mætti segja. Sjúkrasamlögin greiða ekki nema 5 vikna legu, ef sjúklingurinn er haldinn ellikröm eða öðrum álíka sjúkdómum, og ríkisframfærslan greiðir ekki dagpeninga fyrir sjúklinga, nema þeir liggi á viðurkenndum sjúkrahúsum. Nú er það, að ekki komast allir sjúklingar á viðunandi sjúkrahús, t. d. geðveikisjúklingar, og þurfa þá ættingjar eða sveitarfélögin að greiða kostnaðinn. Sama gildir um gamalt fólk, að í flestum tilfellum lendir það á sveitarfélögunum að greiða kostnaðinn af legu þess, svo mikið sem ellilífeyririnn hrekkur ekki, en mismunurinn nemur í flestum tilfellum um helming. Til þessa fólks kemur frv. til með að taka, ef að lögum verður. Sama er að segja um örkumla fólk; til þess greiði Tryggingastofnunin að sínum hluta það, sem á vantar, að ríkisframfærslan hrökkvi fyrir kostnaði.
Ég hygg því, að mjög nauðsynlegt sé að samþ. þetta frv. Vona ég, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr., en heilbr.og félmn. mun taka það fyrir, þótt því verði ekki formlega vísað til hennar.