13.02.1950
Efri deild: 54. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í C-deild Alþingistíðinda. (3288)
68. mál, almannatryggingar
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Eins og tekið er fram í grg. fyrir frv., er það árangur af almennri endurskoðun tryggingal., sem var ákveðin af Alþingi 1947. Þegar þetta er haft í huga, liggur beint við að álykta, að Alþingi hafi þá þótt ástæða til að gera verulegar breyt. á l. Hins vegar kemur það fram í frv. svo og í grg. fyrir því, að breyt. eru ekki eins stórvægilegar og búast hefði mátt við. Meðal annars er ekki í frv. gert ráð fyrir neinum breytingum á lífeyrisupphæðum l. Breytingarnar, sem í þessu frv. felast og hv. n. hefur fallizt á, eru að mestu leyti aðeins þær, að Tryggingastofnuninni er heimilt undir sérstökum kringumstæðum að greiða nokkrar uppbætur á hinar almennu greiðslur samkv. l. Einnig er svo lagt til, að lögtekinn verði nýr bótaflokkur, svonefnd mæðralaun, og tel ég það vera mjög til bóta. Ég minnist á þetta vegna þess, að þegar lögin voru sett 1946, voru talsverðar deilur á Alþingi um sumt í l. og þá sérstaklega talið, og það með réttu, að ekki væri fært að fara með bótagreiðslurnar hærra, en sem fullum ellilífeyri næmi.
Ég flutti í þessari hv. d. brtt. við frv. það, sem þá lá fyrir d. um almannatryggingar, og var efni hennar það, að upphæðir til bótaþeganna yrðu yfirleitt 25% hærri, en gert var ráð fyrir í frv. Þessu var andmælt þá og sérstaklega af hendi þeirra, er töldu sig vera formælendur l., á þeim grundvelli, að þær tekjur, sem fært þætti að byggja á, þ. e. a. s. frá ríkinu, atvinnurekendum og bæjar- og sveitarfélögum, mundu ekki hrökkva fyrir hærri bótum en ákveðin voru. Nú hefur það sýnt sig, að verulegur tekjuafgangur hefur orðið undanfarin ár, og hefur hann nú leitt til deilu um það, hver eigi hann. Ég hef þess vegna nokkra tilhneigingu til að álíta, að þegar l. voru, endurskoðuð, þá hefði verið fært og æskilegt, að upphæðir bótagreiðslnanna hefðu verið teknar til endurskoðunar og hækkaðar. Mér skilst nú, að ekki sé langt frá því, að tekjur Tryggingastofnunarinnar hefðu getað staðið undir 25% hærri bótagreiðslum, eins og ég lagði til. En um þetta þori ég þó ekki alveg að segja, þótt ég hafi séð reikninga stofnunarinnar yfir árið 1947. En ef það hefur ekki verið, þá er sá munur aldrei það hár, að auðvelt hefði verið að afla tekna upp í það, sem á vantaði. Það er nú kunnugt og m. a. viðurkennt af hv. 4. þm. Reykv. (HG), sem er forstjóri trygginganna, að lífeyrisgreiðslurnar eru, eins og hann orðaði það, of lágar og ófullnægjandi og ekki hægt að lifa af þeim án stuðnings. Þegar þetta er nú haft í huga, þá tel ég, að það hafi verið full þörf á því og rík ástæða til þess nú í sambandi við endurskoðun að hækka lífeyrisgreiðslurnar t. d. um 25%. Þetta hefur nú ekki verið gert. Ég hygg, að það eigi rót sína að rekja til þess, að endurskoðunin er framkvæmd að tilhlutan félmrn. og ekki af n., heldur af tryggingaráði, sem hlýtur að hafa tilhneigingu, til þess að líta frekar á fjárhagslega afkomu Tryggingastofnunarinnar en þörf hinna tryggðu. Þetta finnst mér sennilegasta skýringin á því, að ekki var breytt grundvellinum að bótaupphæðunum.
Fyrst þessi kostur hefur nú verið tekinn og hv. heilbr.- og félmn. beggja d. hafa orðið sammála um að hafa þetta eins og það er í frv., þá býst ég nú ekki við, að till. mínar frá 1946 eigi mikinn byr í hv. d. frekar en þá, og hef ég því ekki flutt neinar till. um hækkun á bótagreiðslunum. Hins vegar hef ég leyft mér að flytja nokkrar brtt., sem ekki raska fjárhagsgrundvelli Tryggingastofnunarinnar, og vænti ég þess, að þær geti fengið góða niðurstöðu í hv. d. samtímis samþykkt þessa frv., sem ég tel þó ganga skemur en æskilegt hefði verið.
Þá skal ég nú víkja nokkuð að brtt. mínum. Fyrri brtt. er á þskj. 329 og er brtt. við frv. Seinni brtt. mín er á þskj. 330 og er brtt. við brtt. á þskj. 308. Fyrri brtt. á þskj. 329 er við 10. gr. frv., en í 10. gr. er kveðið svo á, að þær takmarkanir, sem ákveðnar eru í 2. og 3. málsgr. 23. gr. l. á greiðslum barnalífeyris, skuli einnig gilda um greiðslur barnalífeyris til mæðra óskilgetinna barna og fráskilinna kvenna samkv. 27. og 28. gr. Eins og l. er háttað hafa ekki þær takmarkanir, sem þar er talað um, gilt fyrir mæður óskilgetinna barna, þ. e. a. s. þessar takmarkanir eru þær, að ekkjur og fráskildar konur, sem fengu greiddan barnalífeyri með börnum sínum, fá ekki greiddan barnalífeyri nema 3 ár, en þessar takmarkanir hafa ekki gilt um mæður óskilgetinna barna. Nú er til þess ætlazt með þessari 10. gr. frv., að komið verði á samræmi þarna á milli og þá á þann hátt að minnka rétt þessara mæðra óskilgetinna barna frá því, sem verið hefur samræminu er snúið við með því að draga úr bótum til þessara aðila. Till. mín fer hins vegar fram á, að þessi takmörkun til ekkna og fráskilinna kvenna. sem ákveðin er í 2. og 3. málslið 23. gr.. falli niður, þannig að þetta ósamræmi verði fellt úr gildi, en á þann hátt, að þetta verði samræmt upp á við þannig, að ekkjur og fráskildar konur hafi sama rétt hvað þetta snertir eins og hinar mæðurnar. Ég þarf ekki að fjölyrða frekar um þetta. Ég geri ráð fyrir, að það liggi skýrt fyrir, hver munur er á brtt. minni og þeirri till., sem felst í 10. gr. Hv. þm. Barð. (GJ) flytur um þetta líka brtt. á þskj. 331. Sú till. gengur út á það að vísu að samræma þetta, en á þann hátt, að ekki aðeins sé rýrður réttur mæðra óskilgetinna barna, eins og felst í 10. gr., heldur líka dregið úr lífeyrisgreiðslum með börnum til ekkna og fráskilinna kvenna, þ. e. a. s. sá tími, sem þær fá slíkar greiðslur, er aðeins eitt ár í staðinn fyrir þrjú. Till. hans gengur talsvert lengra en það, sem felst í 10. gr., í öfuga átt við það, sem ég vil vera láta, og mun ég því ekki geta fallizt á þá brtt.
Þá fjallar 2. brtt. mín á þskj. 329 um þessa nýju tegund bóta, sem frv. gerir ráð fyrir að tekin verði upp í l., þ. e. a. s. mæðralaun. Eins og ég gat um áðan, þá tel ég það spor í rétta átt að taka slík ákvæði upp í l., og einnig þegar l. voru sett 1946, börðust sósíalistar fyrir því að fá slík ákvæði inn í l., en fengu því ekki fram komið. Nú er þetta sjónarmið okkar viðurkennt og ætlazt til, að í l. komi ákvæði um það, að greiða skuli mæðralaun til mæðra, sem eru einar um það að sjá fyrir börnum sínum. En þó að ég sé þessari hugmynd sammála og telji hana spor í rétta átt, þá er ég ekki alveg sammála því fyrirkomulagi, sem gert er ráð fyrir, að á þessu sé haft samkv. frvgr. og samkvæmt því, sem heilbr.- og félmn. einnig lætur standa óbreytt í frv. og virðist telja rétt vera. Samkv. frv. er gert ráð fyrir því, að þessi mæðralaun komi ekki til greina fyrr en mæður hafa 2 börn á framfæri sínu, þ. e. a. s. fyrir eitt barn eru engin mæðralaun, og ég hef heyrt því haldið fram af frsm. félmn. hér, að rökin fyrir þessu séu þau, að þó að kona hafi fyrir einu barni að sjá, þá eigi það ekki að hindra hana í því að vinna fyrir sínu eigin framfæri. Ég er allt annarrar skoðunar hvað þetta snertir. Ég álít einmitt, að með tilkomu fyrsta barnsins sé móðirin fyrst og fremst hindruð frá því að geta stundað vinnu utan heimilis til þess að afla sjálfri sér lífsviðurværis, eins og högum er yfirleitt háttað hér á landi, sérstaklega í kaupstöðum. Við skulum segja í Reykjavík, þar sem t. d. dagheimili fyrir börn að vísu eru aðeins til, en í svo smáum stíl, að hverfandi hluti kvenna á þess kost að koma börnum sínum þar fyrir á daginn. Þá er augljóst, að strax og móðir hefur fyrir einu barni að sjá, verður hún að hafa það heima hjá sér og getur ekki farið frá því til þess að vera utan heimilis, nema því aðeins að hún eigi þess kost að hafa það hjá öðru fólki, en fyrir því er ekki hægt að gera ráð sem almennri reglu og ekki hægt að miða lagasetningu hvað þetta snertir við það. Ég álít þess vegna, að mæðralaun eigi að koma til greina þegar við fyrsta barn og að fyrir það fyrsta barn þurfi að greiða verulega upphæð til móðurinnar, vegna þess að þá þegar sé hún að verulegu leyti hindruð í því að geta unnið sjálfri sér framfæri með því að sækja vinnu út fyrir heimilið. Hins vegar megi frekar lækka greiðslurnar hlutfallslega eftir því, sem börnunum fjölgar, vegna þess að móðirin er þá þegar orðin það bundin við heimilið, að hún á þess þá alveg sama kost að sinna 2–4 börnum eins og hún er bundin við að sinna einu barni heima fyrir. Barnafjöldinn hefur þá aðeins áhrif hvað sjálfan framfærsluþungann snertir, en minni áhrif hvað snertir hindrun móðurinnar í því að vinna utan heimilis fyrir sinu eigin framfæri. Ég hef þess vegna leyft mér að flytja brtt. við upphæð og fyrirkomulag mæðralaunanna, á þann hátt, að ef miðað er við 1. verðlagssvæði, þá verði greiðsla mæðralauna þegar vegna fyrsta barns og þá 600 kr. í staðinn fyrir að frv. gerir ráð fyrir, að fyrir fyrsta barn komi ekki neitt. Til mæðra með 2 börn 800 kr. í staðinn fyrir, að frv. gerir ráð fyrir 200 kr., og til mæðra með 3 börn 1.000 kr. í staðinn fyrir 800 kr. í frv. Til mæðra með 4 börn eða fleiri 1.200 kr., eins og gert er ráð fyrir í frv. Ég hef ekki séð mér fært, vegna þess að hámarkslífeyrisgreiðsla er kr. 1.200, að leggja til, að þessar greiðslur fari yfir það hámark, enda þótt ég haldi því fram, að það hámark sé of lágt og engan veginn fullur lífeyrir. En ég hef ekki viljað fara fram úr þessu marki vegna þess, að það skapar ósamræmi við aðrar lífeyrisgreiðslur og torveldar einnig að fá fylgi við þessar till. hér í d. Sem sagt, þessi till. mín er ekki miðuð við, að farið sé fram úr hámarksgreiðslum, sem gert er ráð fyrir í frv., heldur felur hún í sér aðra skiptingu á þessu. Að vísu felur hún í sér einhver aukin útgjöld, vegna þess að greitt er með fyrsta barninu í staðinn fyrir, að í frv. er ekki greitt nema með öðru. En samt vonast ég til þess, fyrst nú er sú framför orðin frá l. 1946, þegar þetta sjónarmið, mæðralaunin, var ekki viðurkennt, að þetta prinsip er viðurkennt og lagt til, að slíkar greiðslur séu teknar upp, að það verði a. m. k. tekið til yfirvegunar í sambandi við afgreiðslu málsins, hvort ekki mæli full rök með því, að hafður sé um þetta sá háttur, sem ég legg til í þessari till.
Þá flyt ég brtt. á þskj. 330 við tölul. 7.b. á brtt. 308, en það er um það, að í staðinn fyrir þau 10%, sem n. leggur til að greitt verði á ellilífeyri og aðrar slíkar greiðslur, komi 20%. Ég skal taka það þegar fram, að það hefur fallið hér niður úr þessari till. í prentun ein tegund greiðslna, sem þar átti að standa, þ. e. a. s. örorkustyrkur. Ég ætlaðist til þess, að sett væri í mína till., að þessar greiðslur næðu yfir alla þá sömu flokka sem taldir eru upp í till. félmn., en það hefur aðeins fallið niður í prentun og verður prentað upp. — Önnur breyt., sem felst í þessu frá till. n., er líka það, að till. n. miðast við, að þessar uppbætur verði greiddar aðeins á yfirstandandi bótatímabili, frá 1. júll 1949 til 30. júní 1950, en í till. minni er miðað við, að þessar uppbætur verði greiddar á þessar bótagreiðslur þangað til almennar breyt. verða gerðar á bótagreiðslunum yfirleitt. Ég tel sjálfsagt, fyrst ekki er ætlazt til, að neinar breyt. verði gerðar á lífeyrisupphæðunum nú, að þá verði þó a. m. k. þær litlu uppbætur, sem gert er ráð fyrir að greiða á þetta, að standa þangað til þessar uppbætur verða endurskoðaðar enn á ný, en verði ekki aðeins greiddar fyrir þetta yfirstandandi tímabil. Því hefur verið haldið fram sem rökum fyrir því, að nægilegt væri að greiða 10% uppbætur á ellilífeyri og aðrar slíkar greiðslur nú, að það væri þegar búið að bæta þessum aðilum sem svarar 10% uppbótum á ellilífeyri, það hafi verið gert með því að ellilífeyrir hafi verið greiddur með vísitölu 315 í staðinn fyrir, að laun voru greidd með vísitölu 300, og það teljist 5% uppbætur, en hins vegar greiði Tryggingastofnunin sjúkrasamlagsgjöld fyrir lífeyrisþega og það teljist 5%, þannig að þeir séu þegar búnir að fá 10% uppbætur. Ég hef ekki, þrátt fyrir þær umr., sem fram hafa farið um þetta í Sþ. í sambandi við annað mál, getað fallizt á þau rök, sem fram hafa komið um það, að nú þegar sé um neinar uppbætur að ræða á ellilífeyrisgreiðslur. Ég held, að þvert á móti hafi þessar greiðslur verið verulega rýrðar frá því að l. voru sett 1946. Í þeim eru skýlaus ákvæði um það, að ellilífeyri, eins og aðrar bótagreiðslur, skuli greiða með fullu vísitöluálagi meðan vísitalan er fyrir ofan 110 stig, og það var skýlaus réttur, sem lífeyrisþegum var gefinn með tryggingal., að þeir skyldu fá þennan lífeyri greiddan með vísitölu á hverjum tíma. Síðan hefur verið vikið frá því, ekki til þess að hækka þetta, heldur þvert á móti til þess að lækka það. Í staðinn fyrir að greiða með vísitölu„ sem nú er 340 stig, þá er greitt með vísitölu 315, þannig að þessar lífeyrisgreiðslur eru verulega skertar frá því, sem ákveðið var með l. um almannatryggingar, og ég álít þess vegna ekki með nokkru móti réttlætanlegt að nota það, að ellilífeyrir er bundinn við 315 stig, þegar enn meira hefur verið skorið niður hvað snertir launagreiðslur, sem átyllu fyrir því að greiða ellilífeyrisþegum nú minni uppbætur en ákveðið hefur verið að greiða launamönnum ríkisins. Ég álit það fráleita röksemd hvað snertir greiðslur sjúkrasamlagsgjalda fyrir ellilífeyrisþega, og það eru í rauninni sömu öfgarnar, nema kannske enn þá augljósari, þar sem ekki er um neinar uppbætur að ræða frá því, sem ákveðið er með l. um almannatryggingar. Í þeim l. er ákveðið, að kaflinn um heilsugæzlu skyldi koma til framkvæmda um áramótin 1947–1948, og eftir það áttu þessi gamalmenni, sem njóta ellilífeyris, að fá alla sjúkrahjálp, sem þau þurfa á að halda og þau nú fá gegnum sjúkrasamlög án þess að greiða nokkur gjöld til trygginganna. Og þegar Tryggingastofnunin nú hefur ákveðið að greiða sjúkrasamlagsgjöld fyrir þessa aðila meðan sjúkrasamlögin enn starfa, er það aðeins vegna þess, að það er ekki fullnægjandi þeim ákvæðum, sem sett voru í l. um framkvæmd heilsugæzlukaflans. Framkvæmd heilsugæzlukaflans er alltaf frestað, og í þessu frv. er honum frestað um nokkurra ára skeið. Það leiðir til þess, að ellilífeyrisþegar fá ekki nú þau hlunnindi, sem þeir áttu að fá samkvæmt þessum kafla, og þegar Tryggingastofnunin ákveður að greiða sjúkrasamlagsgjöldin, þá er hún aðeins að bæta að nokkru leyti fyrir þær vanefndir, sem þetta fólk hefur orðið fyrir vegna frestunar heilsugæzlukaflans. Þetta eru þess vegna ekki neinar uppbætur, sem ellilífeyrisþegar fá umfram það, sem ákveðið er með l. 1946, það er síður en svo, að það séu nokkrar uppbætur, sem þeir með greiðslu sjúkrasamlagsgjalda fái á sinn ellilífeyri. Þeir hafa með hvorugri þessari greiðslu fengið nokkrar uppbætur frá því, sem l. um almannatryggingar 1946 ákveða, og þess vegna eiga þeir nú, þessir ellilífeyrisþegar, þegar búið er að samþykkja að greiða nokkrar uppbætur, eða 20%, á laun embættis- og skrifstofumanna ríkisins, ekki minni rétt til þess að fá greidda 20% uppbót á ellilífeyri sinn, sem viðurkennt er, að er ófullnægjandi handa þeim, ef þeir hafa ekki aðrar tekjur með einhverjum hætti til þess að framfleyta sér. Ég legg þess vegna áherzlu á að fá þessu breytt og að greidd verði 20% uppbót á þessar bótagreiðslur, sem brtt. fjallar um, í staðinn fyrir 10%, sem felst í till. n., og ég vil vænta þess, að hv. þdm. muni við athugun á þessu máli fallast á, að það sé í rauninni ekki sæmandi, að Alþ. geri hlut þessa fólks lakari, hvað uppbætur snertir, heldur en hlutur embættismanna ríkisins hefur verið gerður í þessum efnum.
Það eru ekki fleiri brtt., sem ég hef flutt, a. m. k. ekki að svo komnu, við þetta frv. Skal ég að lokum aðeins geta þess, að þó að ég telji, að ákvæði frv. séu yfirleitt til bóta, það sem þau ná, þá er ein gr. eða ákvæði, sem ég mun ekki geta fallizt á, en það er í 18. gr., þar sem gert er ráð fyrir því að færa yfir á bifreiðarstjóra, sem aka eigin bifreið, skyldu til þess að greiða atvinnurekendagjald til slysatrygginganna. Ég fæ ekki séð, að þessir menn geti komið í flokk atvinnurekenda, þar sem þeir hafa enga menn í sinni þjónustu, enda munu liggja fyrir upplýsingar um það, að eins og l. nú eru, er ekki hægt að færa þessa skyldu yfir á þá, og þess vegna er þessu ákvæði nú skotið inn í þetta frv. En ég álít, að það liggi engin rök fyrir því að setja þessa menn í flokk með atvinnurekendum, og þess vegna greiði ég atkv. á móti þeirri gr., sem felur þetta í sér, 18. gr.
Það er að vísu ýmislegt fleira, sem ástæða væri til að ræða í sambandi við l. um almannatryggingar og sömuleiðis kannske atriði, sem ástæða væri til að ræða í sambandi við framkvæmd sumra ákvæða almannatryggingal., svo sem t. d. um þann drátt, sem orðið hefur og nú er ákveðið að lengja á framkvæmd heilsugæzlukaflans. Sömuleiðis mætti nefna önnur atriði, svo sem um það, sem er gert ráð fyrir í almannatryggingal., að Tryggingastofnunin hrindi í framkvæmd, þ. e. a. s. komi upp vinnuhælum fyrir öryrkja, þar sem þeim mönnum, sem ekki eru færir til almennrar vinnu, þó að þeir hafi nokkra starfsorku, væri gefinn kostur á því að fá verkefni við sitt hæfi og vinna sér fyrir tekjum, sem gæti orðið þeim sjálfum hin hentugasta lífsafkoma og líka til að létta á útgjöldum hjá Tryggingastofnuninni. Um þessi atriði bæði mætti vafalaust ýmislegt segja, en þar sem ég flyt ekki neina brtt., sem lýtur að þeim atriðum, mun ég ekki fara frekar út í að ræða það að sinni.