13.02.1950
Efri deild: 54. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í C-deild Alþingistíðinda. (3289)

68. mál, almannatryggingar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Lög þau, sem hér er verið að breyta, um almannatryggingar, voru sett í fyrsta skipti á þingi 1945, og var þá samkomulag milli þriggja stjórnmálaflokka, að þau næðu fram að ganga á því þingi, eins og einnig varð. Þá þegar urðu ágreiningsatriði innan þessara flokka um afgreiðslu l., aðallega þau, sem hér segir:

1) Skipting verðlagssvæðanna:

2) Upphæð bótagreiðslna.

3) Hvernig skipta bæri gjaldabyrðinni á aðila.

Þetta voru meginatriðin, sem deilt var um við setningu l. milli þeirra flokka, sem höfðu tekið að sér að fá frv. gert að l. En einkum kom gagnrýni frá þáverandi stjórnarandstöðu, Framsfl., sem fannst aðallega, að málið væri allt of illa undirbúið og í öðru lagi ýmiss konar misrétti milli bótaþega, eftir því hvar á landinu þeir væru eða í hvaða atvinnustétt, sérstaklega í sambandi við sjúkrastyrk og slysabætur. Var þessari gagnrýni mjög haldið á lofti, ekki aðeins í umr. á þingi 1945, heldur og lengi fram eftir í blöðum flokksins, eftir að l. höfðu verið samþ.

Ég hef frá öndverðu álitið, að hér væri um eitt af merkilegustu málum þjóðfélagsins að ræða og því yrði að byggja tryggingarnar upp á traustum og öruggum grundvelli, ef fyrirbyggja ætti, að l. yrðu annað en viljayfirlýsing. Þessi skoðun mín er óbreytt enn, enda mun tíminn leiða í ljós betur og betur, eftir því sem fleiri menn eiga afkomu sína, og a. m. k. frelsi að einhverju leyti undir bótagreiðslum, að þessi sjónarmið séu rétt og nauðsynlegt sé að tryggja stofnuninni fyrst og fremst öruggan starfsgrundvöll. Virðist þetta ekki verða gert nema á eftirfarandi hátt: Í fyrsta lagi með því að ríkissjóður og sveitarsjóðir, er iðgjöld greiða, séu á hverjum tíma nægilega fjárhagslega sterkir til að mæta þeim útgjöldum, sem á þá eru lögð á hverjum tíma, sem nauðsynleg eru til þess, að tryggingarnar geti staðið við skuldbindingar sínar. En hvernig hefur þetta tekizt á þeim fáu árum, sem l. hafa gilt? Við höfum verið svo heppnir, að á þessum árum hefur velgengni verið meiri í landinu en nokkru sinni áður, atvinnuleysi minna og fé það, sem menn hafa haft milli handa, sveitarsjóðir, bæjarsjóðir og ríkissjóður, miklu meira en nokkru sinni áður. Og þó hygg ég, — annars leiðréttir hv. frsm. það, ef ég fer þar ekki með rétt mál, að nokkrir erfiðleikar hafi á því verið, að þessir aðilar uppfylltu þessar skuldbindingar, nokkrir erfiðleikar hafi á því verið, að sumir sveitarsjóðir stæðu við sínar skuldbindingar á réttum tíma. En hverju má þá búast við, ef breyting verður á fjárhag manna almennt í landinu og sveitar- og bæjarsjóðir komast í erfiðleika um greiðslur? Ríkissjóður er þegar kominn það, og einstaklingarnir standa frammi fyrir minnkandi atvinnu og ef til vill meiri dýrtíð í landinu og erfiðari fjárhagsástæðum en þeir hafa haft áður. Og þá finnst mér því meiri ástæða nú, en nokkru sinni fyrr að leita að öðrum leiðum til að tryggja, að þessi l., sem nú er verið að breyta hér, verði annað og meira, en viljayfirlýsing.

Annar möguleikinn, sem hér má nefna, er að halda niðri kröfum um auknar bótagreiðslur, svo að stofnunin geti safnað sterkum sjóðum. Þetta sjónarmið vakti fyrir mér, þegar ég 1945 stóð ákaflega mikið á móti því, að bótagreiðslur yrðu settar upp á þann hátt, sem gert var ráð fyrir í frv. upphaflega. Ég fékk þá ágætt samkomulag við flm. og aðra nm. um að fara hér varlegar, en hugsað var í fyrstu. Ég ekki eingöngu hygg, heldur fullyrði, að þessi stefna hefur verið rétt þá, og ég fullyrði, að hennar sé enn meiri þörf nú en 1945. Og það var einmitt þess vegna, að svo blessunarlega hefur tekizt til um framkvæmd þessa máls, að þá ríkti það sjónarmið hjá n. og Alþingi að stilla bótakröfunum svo mjög í hóf, að ekki væri hætta á því, að tryggingarnar þyrftu af þeim ástæðum að hrynja niður, að vísu ekki með fullu samkomulagi, en fullum vilja Sósfl. á þeim tíma, eins og kom fram hjá hv. 4. landsk. um daginn, en þeir féllust þó á þetta sjónarmið, og það varð sterkara hér á þingi en hitt, að stilla bótagreiðslunum miklu hærra, en gert var og till. lágu fyrir um.

Þriðji möguleikinn til að tryggja þessa stofnun er að tryggja stofnuninni árlega verulegar tekjur, sem eru ekki háðar afkomusveiflum gjaldenda, og það tel ég út af fyrir sig langmikilvægasta atriðið að snúa sér að því að gera það. Ég kvíði fyrir því, að allur sá þungi, sem hvílir nú á sveitarfélögunum, bæjarsjóðum og ríkissjóði og þegnunum, verði of þungur til þess, að þessir aðilar geti staðið undir honum á sama hátt og þeir hafa gert hingað til, ef versnar í ári, og það hljóti að koma niður á starfsemi stofnunarinnar og hún verði þar af leiðandi að draga úr bótagreiðslum, sérstaklega ef þær verða auknar nú í sambandi við afgreiðslu l. á þessu þingi, nema til komi einhverjar öruggar tekjur, sem eru ekki háðar sveiflunum í landinu. Ég gæti m. a. bent á það, og það hefur verið mjög mikið um það rætt, þegar l. voru sett, að það væri öruggara og nauðsynlegra og jafnvel réttlátara að taka nokkuð af tekjunum handa stofnuninni með beinni álagningu á laun manna, hundraðsgjald af launum allra manna í landinu. Það veitti stofnuninni að sjálfsögðu öruggar tekjur. Það var ekki horfið að því, af ástæðu, sem hv. flm. þá og hv. flm. nú hefur svo margoft minnzt á, að það þótti þá ekki réttilega skipt byrðinni af tryggingunum á þá aðila í landinu, sem einnig njóta bóta. Hins vegar er ekki því að neita, að sú aðferð um tekjur handa stofnuninni væri miklu öruggari, hvernig sem færi með almenna afkomu í landinu. Þess vegna harma ég það að sumu leyti, að sú leið var ekki farin.

Ég hef einnig í sambandi við afgreiðslu annarra l. á síðasta þingi bent á aðra leið. Ég vildi þá, að allt erfðafé gengi til Tryggingastofnunarinnar frá öðrum arfþegum en börnum, barnabörnum niður á við og frá börnum til foreldra, afa og ömmu upp á við, allt annað erfðafé gengi til Tryggingastofnunarinnar til að tryggja á þann hátt fastan tekjustofn. Meiri hl. þessarar d. féllst ekki á þær till. og felldi þær allar án þess þó að tryggja stofnuninni á nokkurn annan hátt öruggari tekjur, en ákveðið var í l. sjálfum.

Afstaða mín til l. hefur ávallt markazt af þessari skoðun minni á málinu, og það er þess vegna, sem ég hef ávallt barizt fyrir því frá upphafi, að bótagreiðslunum væri stillt í hóf, a. m. k. þar til búið væri að sjá stofnuninni fyrir nægu fé til að taka á sig óvænt áföll, hvort sem þau stöfuðu af atvinnuleysi í landinu, fjárskorti þeirra aðila, sem eiga að greiða til trygginganna, eða einhverju öðru. Og afstaða mín til málsins er óbreytt í dag. Ég tel, að það sé alveg rangt gagnvart Tryggingastofnuninni að auka bótagreiðslur meira en svo, að það sé alveg öruggt, að það þurfi ekki að lækka bótagreiðslur aftur til þess að forðast hrun hjá Tryggingastofnuninni. Það sé það fyrsta, sem þurfi að gera, að hafa alltaf það sjónarmið, að ekki þurfi að ganga á rétt bótaþega, eins og hv. 4. landsk. þm. minntist á um daginn, heldur að það væri stefnt að því að auka bæturnar, eftir því sem fjárhagurinn batnaði hjá stofnuninni.

Till. mínar, sem ég skal síðar koma að, miðast eingöngu við þetta sjónarmið, að fara ekki lengra í bótunum á hverjum tíma en svo, að það sé alveg öruggt, að stofnunin þoli það. Þetta á ekkert skylt við andúð á því fólki, sem fær þessar bætur, nema síður sé. Það er bein fyrirhyggja um hag þessa fólks, að það þurfi ekki að vantreysta þessari stofnun, sem það hefur orðið að bera svo mikið traust til um sína lífsafkomu.

Endurskoðun þessara l. hefur þegar verið gerð. Grundvellinum er engan veginn raskað á nokkurn hátt verulega frá því, sem áður var. Það eru að vísu sniðnir af ýmsir vankantar, sem vitað var í upphafi, að fram hlytu að koma við reynsluna, en grundvallaratriðin eru nákvæmlega þau sömu og samkomulag varð um við setningu l. 1945. Og það er einnig nákvæmlega sami ágreiningurinn um breytingarnar og var við afgreiðslu l. þá. Ágreiningurinn er sá sami um verðlagssvæðin. Þá vildu mjög margir menn, sem annars voru sammála, hafa verðlagssvæðið eitt, láta það sama ganga yfir alla. bæði um bætur og gjöld, hvar sem var á landinu. Þetta hefði verið mjög æskilegt. En eina ástæðan fyrir því, að ekki hefur tekizt að fara inn á þessa leið, er sú, að þetta mundi kosta svo mikið fé fyrir Tryggingastofnunina, að hún væri ekki örugg um að geta haldið uppi fullum bótagreiðslum, eins og ákveðið er, nema á sama tíma væri hægt að tryggja ákveðnar tekjur til að koma á móti þeirri útgjaldaaukningu. Það er eina og alls eina ástæðan fyrir því, að ekki varð samkomulag um að breyta verðlagssvæðunum á þann hátt.

Þá er sami ágreiningurinn nú og þá um bótagreiðslur. Þá vildi Sósfl. hækka bótagreiðslurnar um 25%. Sumir aðrir, sem hafa verið með þessu máli, hafa einnig viljað setja inn fleiri greinar, svo sem jarðarfararstyrk. Þetta er nákvæmlega sami ágreiningurinn og þá var, en þar hefur ekkert raskazt, heldur orðið samkomulag um að halda sér við sömu stefnu og mörkuð var 1945.

Þá er sami ágreiningurinn um tekjustofnana. Enn þá vilja sumir gjarnan fara inn á þá leið að taka ákveðið hundraðsgjald af öllum launatekjum í landinu til að tryggja stofnuninni öruggari tekjur, en um þetta hefur ekki heldur fengizt samkomulag, svo að raunverulega er um örlitla breyt. að ræða frá því, sem var 1945, nema að því leyti, að sniðnir eru af l. ýmsir agnúar, sem reynslan hefur sýnt, að þurfti að 1aga. En þetta sýnir þá einnig bezt, hversu framúrskarandi þeir aðilar, sem unnið hafa að þessu máli, og þá helzt áður en það kom inn í þingið 1944, hafa undirbúið það vel. Reynslan hefur sýnt síðan 1945, að grundvöllurinn hefur verið það traustur, að allar vonir standa til þess, ef hann er ekki veiktur nú, að fólkið geti treyst stofnuninni eftirleiðis eins og hingað til, og er þá vel.

Gagnrýni Framsfl., sem þá kom fram á frv., hefur alveg horfið. Þeir hafa haft fulltrúa í þessari mþn. til að koma fram till. um breyt. til bóta, en það verður ekki sagt, að þær till., sem samkomulag varð um, eða hinar, sem samkomulag varð ekki um, raski þeim grundvelli, sem lagður var 1945.

Þessar almennu hugleiðingar vildi ég hafa látið koma fram um frv., áður en ég geri grein fyrir brtt. mínum, sem ég ber hér fram og mótaðar eru af þessari skoðun minni á málinu, eins og ég hef nú þegar lýst, en ekki hefur náðst samkomulag um í n., en ég vænti, að d. fallist á, að sé nauðsynlegt að samþykkja til frekari tryggingar því, að Tryggingastofnunin bregðist ekki því trausti, sem hún þegar á hjá þjóðinni.

Ég skal þá, áður en ég lýsi till., fara nokkuð inn á álit hæstv. fjmrh. um eignarrétt ríkissjóðs yfir sjóðum Tryggingastofnunarinnar, sem myndazt hafa undanfarið tímabil, og hann ræddi nokkuð hér við umr. fyrir nokkrum dögum. Ég vil þá leyfa mér að vitna nokkuð í 116. gr. l., því að raunverulega er það hún ein, sem kveður á um þetta mál. Ég skal ekki fara út í að ræða um lögfræðilegan rétt samkv. orðalagi gr., hvort ríkissjóður gæti fengið sér tildæmt þetta fé eða ekki, þó að það væri hjákátlegt, að ríkissjóður færi að fara í mál og dómsúrskurð við aðrar ríkisstofnanir um skilning á l., en ég skal ekki fara út í það. En ég vil aðeins benda á það hér, að það er skýrt kveðið á um það í 116. gr. l. sem mér skilst, að þeir aðilar hafi gengið nokkuð mikið á snið við, sem álíta, að ríkissjóður eigi kröfu á þessu fé. Í 2. málsl. 1. málsgr. stendur: „Skal taka í hver fjárlög áætlunarupphæð í þessu skyni, eftir áætlun tryggingaráðs, allt að 7½ millj. kr.. að viðbættri verðlagsuppbót.“ Þegar sú meðferð hefur verið höfð á málinu, sem verið hefur á hverju ári, að tryggingaráð hefur lagt fram áætlun um, að stofnunin þurfi svo og svo mikið fé til þess að standa undir rekstrinum á hverju ári og hefur lagt þá áætlun ekki aðeins fyrir fjvn., heldur og allt Alþ. til samþykktar eða synjunar, og þar sem tekið hefur verið upp á fjárl. hverju sinni allt að því hámarki, sem ákveðið er, þá fæ ég ekki skilið annað en því sé alveg slegið föstu, að þetta fé, sem þannig er tekið inn á fjárl. á hverjum tíma, sé einskis annars eign, en Tryggingastofnunarinnar. Það hefði mátt ræða um það við afgreiðslu fjárl. á hverjum tíma, í fjvn. og á Alþ., að samþykkja að taka inn svo stóra upphæð sem hér er gert á hverju ári, og það gæfi þeim einhverja heimild til þess að lækka áætlun tryggingaráðs úr því hámarki niður í eitthvað annað, sem þeir álitu, að væri nægilegt fyrir Tryggingastofnunina að taka á hverjum tíma. En það er fráleit sú skýring, að eftir að búið er að samþykkja, að þessi stofnun skuli fá ákveðið framlag, þá megi koma og segja: Nú eigum við kröfu á að fá til baka svo og svo mikið af þessu fé. — Ég held, að það geti ekki verið ágreiningur um það, að þetta fé eigi að vera í vörzlu Tryggingastofnunarinnar og hún eigi að hafa umráð yfir því, en ríkissjóður hafi ekki rétt til að endurkrefjast þess.

Ég vil þá fara inn á brtt. og vil þá fyrst spyrja frsm. að því í sambandi við brtt. á þskj. 308, sem eru þó ágreiningslaust bornar fram af n., hvort það sé hugsunin, að móðir verði ekki aðnjótandi greiðslna með börnum sínum nema þau séu öll á heimili hennar. Það kemur ekki beint fram í gr., en sjálfsagt er hægt að ræða það nánar í n.

Fyrsta brtt. mín er við 8. gr., um að síðari málsl. gr. falli niður. Þar stendur svo, með leyfi hæstv. forseta: „Heimilt er tryggingaráði að binda hækkun samkvæmt þessari grein því skilyrði, þegar um einstæðingsskap er að ræða, að stjórn þess sveitarfélags, þar sem lífeyrisþeginn á heima, sjái honum fyrir viðunandi húsnæði gegn leigu, sem ekki fari fram úr 25% af lífeyrisupphæðinni, enda hafi hann verið búsettur í sveitarfélaginu óslitið eigi skemur en 5 síðastliðin ár.“ Mér þykir óviðeigandi og óþarft að binda heimildina til þess að greiða þeim aðila, sem fyrir einstæðingsskap getur ekki haft nægilegar tekjur til lífsframfæris, því skilyrði, að sveitarfélagið sjái viðkomandi manni fyrir húsnæði. Hefði ég helzt kosið, að gengið væri þannig frá þessu, að hægt væri að slita burt öll tengsl milli bótaþega annars vegar og sveitarstjórna hins vegar. Ég legg á það mikla áherzlu, að d. sjái sér fært að fella þessi ákvæði niður, því að ég tel, að þau eigi ekki heima í l.

2. brtt. mín er við 10. gr. Það er gamalt deiluatriði. Þessi brtt. mín hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Við 10. gr. Greinin orðist svo: Sá tími, er ekkja, sem giftist aftur, á rétt til barnalífeyris samkv. 2. málsgr. 23. gr. laganna, skal vera eitt ár. Sömu takmarkanir skulu og gilda um greiðslur barnalífeyris til mæðra óskilgetinna barna og fráskilinna kvenna samkv. 27. og 28. gr.“ Á sínum tíma var sett inn í l., að ekkja sem giftist aftur, ætti rétt á fullum barnalífeyri í 3 ár með börnum sínum, og er það nú í l. Nú hafa bæði kvenréttindafélagið og mæðrastyrksnefnd óskað eftir, að þetta verði sett upp í sama takmark fyrir ekkjur eins og það er fyrir ógiftar stúlkur, þ. e. vilja, að ekkjur hafi hér sama rétt. En þessu er því til að svara, að í sambandi við stúlkur, sem eru ógiftar og hafa þessi réttindi nú, þar á Tryggingastofnunin aftur kröfu á barnsföður, ef hann er lifandi, og getur tekið frá honum meðlag með börnunum, en getur það ekki, ef maðurinn er dáinn og hún gift öðrum manni. Ég hef reiknað út, að ef um er að ræða konu með 10 börn á 1. verðlagssvæði, er hér um að ræða greiðslu frá Tryggingastofnuninni til hins nýja heimilis, sem nemur 24 þús. kr. á ári, og 12 þús., ef um 5 börn er að ræða. Ég tel, að ekki sé nein ástæða til að hafa þetta þannig í l., og hef alltaf álitið að hér sé um eina tegund af hvítri þrælasölu að ræða, að hér sé verið að bjóða óviðkomandi mönnum að giftast þessum konum í von um að fá með þeim 24 þús. kr. Er það nóg til þess, að ég hef alltaf verið andvígur þessu ákvæði. Þessi fjölskylda fengi að sjálfsögðu fjölskyldubætur, eftir að gifting hefur farið fram, eins og hver önnur fjölskylda. En nýi heimilisfaðirinn tekur að sér allar skyldur og fær því öll réttindi, og sé ég því ekki ástæðu til að hafa þetta í l., en legg til, að þessi tími verði settur niður í eitt ár. Þetta er gamalt deiluatriði, og get ég ekki fylgt þessu eins og það er, þó að ég geri það ekki að skilyrði fyrir fylgi við frv. sjálft, en óska mjög eftir, að þessi brtt. verði samþ.

Þá er hér nýmæli um fæðingarstyrk. Það hefur áður verið bent á, að ekki sé rétt að mismuna konum í fæðingarstyrk, heldur eigi hann að vera jafn, hvort sem konan vinnur úti eða á heimili, og hefur m. a. Framsfl. haldið á lofti þessu ákvæði og bent á þetta ósamræmi. Ég legg til í 3. brtt., að fæðingarstyrkur samkv. 34. gr. skuli vera jafn til allra mæðra og nema 200 kr. fyrir hverja fæðingu, þ. e. sama og nú er greitt til allra kvenna annarra en þeirra, sem vinna úti. Þetta kynni að verða til þess, að breyta yrði öðrum l. nokkuð til þess að tryggja að þær konur, sem eru mæður, en eru ekki giftar og eiga kröfu á barnsföður, fengju mismuninn greiddan frá barnsföður, en við því er ekkert að segja. Verður að teljast sanngjarnt að leiðrétta það misræmi, sem nú ríkir í þessum efnum, og legg ég því til, að þessi till. verði samþ. Ég legg til, að þetta gjald verði lækkað nokkuð, ekki vegna þess, að þessar konur þurfi ekki á hærri styrk að halda, heldur vegna þess að ég vil stilla í hóf bótunum, þar til alveg öruggur grundvöllur hefur fengizt fyrir tryggingunum og sjóðirnir eru orðnir nægilega sterkir til þess að taka við ýmsum áföllum. Ég vil í þessu sambandi benda á, að Tryggingastofnunin hefur á þessu ári orðið fyrir stórkostlegu fjárhagslegu áfalli, sem ekki var reiknað með. Það hefur verið mjög flanað að því að hækka hér laun embættismanna um 20% með einfaldri þáltill.. sem kostar ríkissjóð ekki minna en 12–15 millj. kr. á ári. Þetta hefur þær afleiðingar í för með sér, að ekki er hægt að neita lægst launaða fólkinu í landinu um að fá einnig nokkrar viðbætur við sín laun, en það kostar tryggingarnar hvorki meira né minna en 6 millj. kr. á ári. Það hefur hvergi verið gert ráð fyrir slíku áfalli. Það er upplýst, að hægt sé að taka 5% bótagreiðslur á þessu tímabili án þess að rýra gjaldþol stofnunarinnar. vegna þess að safnazt hafi sjóðir. En hvernig hefði farið fyrir stofnuninni, ef hún hefði ekki safnað sjóðum, og hver er kominn til að segja, að ekki ríki hér í Alþingi minni skilningur á fjármálum þjóðarinnar framvegis, en ríkir í dag? Það er sjáanlegt, að ekki er hægt að tryggja, að slíkir sjóðir verði til, ef gert er hvort tveggja í senn; annars vegar að hækka bæturnar og fjölga þeim, en tryggja hins vegar ekki fastar tekjur til stofnunarinnar, eins og enn hefur ekki verið gert í l. Tillaga mín miðar eingöngu að því annars vegar að bæta úr þeirri rangsleitni, sem ég hef alltaf verið sammála um, að hafi ríkt í þessu máli milli hinna einstöku mæðra, og hins vegar að fara ekki lengra, en að örugglega þurfi ekki að fara til baka til að lækka bæturnar. Má benda á, að nú borgar sjúkrasamlagið þess utan að því er snertir mæðurnar verulegar fjárhæðir; svo að ekki er ástæða til að lækka þetta frekar en orðið er.

Þá er 4. brtt. við 13. gr., um, að á 1. verðlagssvæði megi mæðralaunin til mæðra með 2 börn nema kr. 400.00, til mæðra með 3 börn kr. 600.00 og til mæðra með 4 börn eða fleiri kr. 800.00. Þetta eru nákvæmlega sömu upphæðir og kvenréttindafélagið óskaði, að teknar væru inn, en 2. og 3. greiðsla eru lægri en ákveðið er í sjálfu frv., en þar er gert ráð fyrir, að fyrsta greiðsla sé 400, þá 800 og svo 1200. Ég álít, að þetta sé rangt, því að það er ekki rétt að fara mjög hátt með bótagreiðslurnar í fyrstu. Ég álít, að hlutföllin hjá meiri hl. n. séu ekki rétt, því að ég álít, að ef kona með 2 börn er sæmilega sett með 400 kr., sé hún eins vel sett með 600 kr. með 3 börn og 800 kr. með 4 börn. Ég álít, að það séu ekki rétt hlutföll milli 1. og 2. og 3. greiðslu, og legg því til, að það verði lækkað í það, sem hér hefur verið sagt. Þetta er ekki borið fram vegna neins kala til þess fólks, sem hér um ræðir, heldur vegna þess, að þá álít ég, að hlutföllin séu rétt, og ég álít ekki rétt að fara lengra í bótagreiðslunum til að byrja með en svo, að stofnunin geti örugglega staðið undir því.

Ég skal ekki tefja málið með því að fara mikið út í till. hv. 4. landsk. Ég geri ráð fyrir, að frsm. ræði þær. Ég er á móti þeim af sömu ástæðum og þegar þær voru bornar fram við afgreiðslu l. 1945, en gefst tækifæri til að ræða það nánar, ef þessari umr. verður frestað og ekki lokið á þessum fundi.