14.03.1950
Efri deild: 72. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í C-deild Alþingistíðinda. (3313)
68. mál, almannatryggingar
Finnbogi R. Valdimarsson:
Herra forseti. Ég flyt nokkrar brtt. við þetta frv., á þskj. 397, og vil ég fara um þær nokkrum orðum. Þessar brtt. eru allflestar um nokkur framkvæmdaratriði tryggingalaganna, atriði, sem ég þykist hafa rekizt á í mínu starfi fyrir sveitarfélag að mættu horfa til bóta, en yfirleitt er það um tryggingalöggjöfina að segja, að það er mjög áríðandi, að öll framkvæmd hennar sé sem greiðust, bæði fyrir þá, sem starfa beint í þjónustu trygginganna, og einnig fyrir hina tryggðu sjálfa.
1. brtt. er í fyrsta lagi varðandi innheimtuaðferð á barnalífeyri, en um endurinnheimtu á honum gilda nú ákvæði framfærslul. fyrst og fremst og enn fremur ákvæði l. um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna og síðast, en ekki sízt 26. gr. tryggingal., sem brtt. mín er raunverulega breyting á. Höfuðreglan er sú, að kona á heimtingu á að fá barnalífeyri með börnum, sem hún hefur meðlagsúrskurð fyrir, til síns sveitarfélags, þar sem hún dvelur, en með 27. gr. tryggingal. var heimilað, að slíkar mæður gætu snúið sér um þetta til Tryggingastofnunar ríkisins, en Tryggingastofnunin gæti síðan, ef hún óskaði, endurheimt greiðsluna hjá dvalarsveit móður og hún aftur hjá framfærslusveit föður, því að þessar greiðslur eru endurkrafðar endanlega hjá föður eða framfærslusveit hans, ef ekki næst til hans. Mér hefur virzt, að af þessum ákvæðum hafi leitt óþarfa skriffinnska og fyrirhöfn þeirra, sem starfa að þessu, bæði fyrir Tryggingastofnun ríkisins og sveitarfélögin. Ég hef orðað brtt. svo, að enginn vafi leiki á, að Tryggingastofnunin missi engan rétt, þannig að endurkröfuréttur dvalarsveitarinnar á ríkissjóð færist til Tryggingastofnunarinnar, ef framfærslusveit þverskallast við að greiða. Ég held, að þetta fyrirkomulag ætti ekki að hafa í för með sér mikla fyrirhöfn eða aukastörf fyrir Tryggingastofnunina. Að vísu mundi þurfa að hafa einn mann í þessari endurheimtu, en þá væri líka miklu létt af sveitarfélögunum, sem þessi störf hafa haft með höndum. Dvalarsveitirnar, sem raunverulega hafa verið algerlega óþarfir milliliðir, hafa haft af þessu meiri örðugleika. Eins og kunnugt er, verða þær að leggja út allmikið fé í þessu skyni, en þar sem sveitarfélög eru flest mjög fátæk af rekstrarfé, hefur þetta reynzt mjög erfitt, enda þótt vissa væri fyrir því, að féð fengist endurgreitt. Hins vegar mun sú hlið málsins ekki hafa í för með sér nein óþægindi fyrir Tryggingastofnunina. Af þessum ástæðum held ég að allir, sem skilja þessa aukafyrirhöfn sveitarfélaganna og ekki vilja óþarfa skriffinnsku, hljóti að geta fallizt á þessa brtt.
Þá ætla ég að víkja að brtt. minni við 23. gr. frv., en sú brtt. er í raun og veru viðkomandi 109. gr. l., en í 109. gr. l. er kveðið svo á, að sveitarstjórn sé skylt að greiða tryggingunum iðgjöld fyrir þá, sem hafa svo lágar tekjur, að þeim sé það ofviða, en ákvæði 109. gr. um þetta eru óljós og vafasamt, að þau nái tilgangi sínum, og þess vegna leyfi ég mér að leggja til, að þetta komi ljósar fram, með því að ákveðið verði, í hvaða tilfellum sveitarstjórn sé skylt að greiða iðgjöld skv. 109. gr. l. og miðað við þau tilfelli, sem viðkomandi á ekki sök á því sjálfur, þó að tekjurnar hafi rýrnað, en það er í sambandi við slys, sjúkdóma, örorku, elli eða ómegð. Eins og þessu er nú háttað, verða sveitarfélögin að greiða fyrir ýmsa, sem raunverulega þurfa þess alls ekki með, enda þótt tekjur þeirra séu ekki mjög miklar. T. d. eru oft í þeim hópi börn efnaðra foreldra, sem síður en svo er ástæða til, að sveitarfélagið greiði iðgjöld fyrir. Ég lít svo á, að þessi brtt. skilji greinilega á milli þeirra, sem greiða þarf fyrir, og hinna, en verði ekki til að rýra hlut þeirra, sem rétt eiga og hafa þörf fyrir slíka aðstoð, enda getur áfrýjunarheimildin, sem n. gerir ráð fyrir, komið í veg fyrir, að á rétt nokkurs verði gengið.
Þá er 5. brtt. mín við 27. gr., en hún er um heimild sveitarfélaga til þess að leggja sérstakt gjald á fasteignaeigendur til að vega á móti því gjaldi, sem viðkomandi sveitarfélög verða að greiða til trygginganna vegna slíkra fasteigna. Tilefnið til flutnings þessarar till. er það, að í mörgum sveitarfélögum eru fasteignir, sem hækka gjöld sveitarfélagsins til trygginganna, án þess að viðkomandi sveitarfélag hafi af þeim eignum nokkrar tekjur, og má í því sambandi nefna eyðijarðir, sumarbústaði og ýmsar opinberar eignir. Þess eru dæmi, að eitt sveitarfélag hefur orðið að greiða 10–20 þús. kr. til trygginganna, án þess að fá nokkrar tekjur á móti. Einkum er þetta stór gjaldaliður fyrir sveitarfélög, þar sem sumarbústaðir eru í hundraðatali, en eins og kunnugt er, fá sveitarfélögin ekki tekjur af slíkum eignum. Þá mætti nú ef til vill segja, að ákvæði um þetta eigi ekki heima í þessum l., en mér virðist þó, að það sé ekki nein fjarstæða, þegar þess er gætt, að tryggingarnar ákveða gjald af þessum eignum.
Þá flyt ég brtt. við 13. gr. þess efnis, að Tryggingastofnunin taki þátt í kostnaði, ef sveitarfélag ræður stúlku til hjúkrunarstarfa til aðstoðar, þar sem veikindi ber að höndum. Í 13. gr. er gert ráð fyrir sjúkrabótum í slíkum tilfellum, og mætti þá ef til vill athuga, hvort þær ættu að falla niður, þegar aðstoð er veitt, en það tel ég þurfa sérstaklega að aðgæta og varla koma til greina nema fullkomin aðstoð sé veitt.
Síðasta brtt. mín á þskj. 397 er um það, að Tryggingastofnun ríkisins skuli gefa út handbók til leiðbeiningar um öll mál, er varða tryggingarnar. Það er mikil þörf á leiðbeiningum um þessi efni bæði fyrir bótaþega og þá, sem greiða eiga til trygginganna, og þó verður þörfin enn meiri eftir að þessi lagabálkur tekur gildi, því að í honum felast nokkrar breyt. frá l. eins og þau voru samþ. 1946. Fyrir þá, sem starfa að framkvæmd trygginganna, einkum úti á landsbyggðinni, eru slíkar leiðbeiningar mjög aðkallandi, þar sem þeir eiga miklu erfiðara með að fylgjast með breytingum og óhægara um vik að afla sér upplýsinga. Ég tel þessa till. því alveg sjálfsagða, en vil geta þess, að verði hún frekar talin eiga að fylgja sem bráðabirgðaákvæði, þá get ég fallizt á það.
Þá vil ég fara nokkrum orðum um aðaltill. mína, en hún fjallar um það, að Tryggingastofnunin komi upp og starfræki vinnustöðvar fyrir bótaþega, þar sem hver geti fengið vinnu eftir sinni getu og við sitt hæfi. Í því áliti, sem lagt var til grundvallar við setningu tryggingalaganna 1946, var till. um slíka stofnun frá Jóni heitnum Blöndal, en hann hugsaði sér hana sem lið í atvinnustofnun ríkisins, er hefði atvinnumál þjóðarinnar með höndum og tryggði ekki aðeins atvinnuleysishjálp, heldur fulla atvinnu í þjóðfélaginu. Í 17. gr. tryggingal. er gert ráð fyrir, að komið verði upp gamalmennaheimilum, og í 104. gr. er beinlínis gert ráð fyrir að veita til þess lán úr varasjóði. Í bráðabirgðaákvæðum er gert ráð fyrir, að sett verði l. um opinbera aðstoð til handa öryrkjum. Það má því segja, að það sé beinlínis gert ráð fyrir, að sett verði á fót stofnun eins og sú, sem till. mín gerir ráð fyrir. Í l. eru hins vegar ákvæði um alls konar bætur til öryrkja, sem greiddar eru í peningum, bæði lífeyri og styrkjum. Það liggur fyrir skýrsla yfir þessar bætur fyrir árið 1948 og hvernig þær skiptast. Niðurstöður þeirrar skýrslu eru þær, að alls hafa verið greiddar 6.297.000 kr., eða á sjöundu millj. til þessara aðila. Skýrsla fyrir árið 1949 liggur ekki fyrir enn. Hins vegar eru líkur til, að þar sé þessi upphæð verulega hærri, og má í því sambandi benda á, að öryrkjum hefur fjölgað ár frá ári, t. d. voru þeir aðeins 1.200 1943–44, en nú munu þeir vera um 2.400. Það er líka vitað mál, að með versnandi atvinnuástandi eykst ásóknin í þessa styrki. Ég skal fúslega viðurkenna, að þessir styrkir trygginganna eru til stórra hagsbóta fyrir öryrkjana, sem þeirra njóta, en mín skoðun er bara sú, að það mætti gera annað við þetta fé, sem bæði væri betra fyrir þessa bótaþega og þjóðfélagið í heild, það er að segja, sem væri bótaþegunum meiri og kærkomnari styrkur en þessir peningar. Það er öllum, sem komið hafa nálægt þessum málum, kunnugt um, hvernig fer fyrir þeim, sem verða veikir. Þeim er fyrst og fremst bannað að vinna. Oft fylgir líka sjúkrahúsvist og í mörgum tilfellum er afleiðingin meiri eða minni örorka. Þegar svo er komið er ekki í neitt hús að venda nema að fá örorkustyrk, því að jafnvel þó að þessir menn geti unnið eitthvað, þá komast þeir ekki að við venjulega vinnu, enda geta þeir ekki staðið að vinnu eins og heilir menn. Þetta hefur þær afleiðingar, að þeir reyna að fá örorku sína metna sem hæsta, því að með því móti fá þeir hærri styrk, og ekki veitir af honum til þess að lifa, enda er hæsti örorkustyrkur miðaður við lágmarksneyzlu. Og þó að þessi styrkur komi sér vel og sé út af fyrir sig góður, þá er hægt að gera annað og betra fyrir þetta fólk, en það er að útvega því vinnu við þess hæfi. Flestir þessara styrkþega geta unnið meira og minna, aðeins ef þeir fá verkefni, sem miðað er við krafta hvers og eins. Og það var þessi hugmynd, sem vakti fyrir Jóni heitnum Blöndal, og það er raunverulega alveg sama hugmyndin, sem ég hef tekið hér upp í tillöguformi. Till. gerir ráð fyrir, að Tryggingastofnunin skrái alla öryrkja og láti gera nákvæmar skýrslur um vinnugetu þeirra og vinnuhæfni, auk þess sem þeir verði líka flokkaðir eftir aldri og kyni og getið um, hvaða orsakir liggja til örorkunnar. Þegar slíkar skýrslur liggja fyrir, þá skal Tryggingastofnuninni skylt að útvega viðkomandi öryrkjum vinnu við hvers hæfi, eftir því sem föng eru á. Og með góðri samvinnu við atvinnurekendur ætti að vera hægt að ná góðum árangri í þessu máli, því að fjölbreytni atvinnulífsins er svo mikil, að flestir ættu að geta fengið eitthvað við sitt hæfi og getu. Þessi skipan hefur verið tekin upp hjá mörgum menningarþjóðum, og má í því sambandi geta þess, að slík starfsemi hefur verið rekin með góðum árangri í Bandaríkjunum, og sömuleiðis mun þessi aðferð vera notuð í Sovétríkjunum. — Hitt atriði þessarar till., sem tekið er úr álitinu frá 1945, er það, að Tryggingastofnunin komi upp verkstæðum og reki þau eða hafi samráð við aðra um rekstur þeirra. Slík starfsemi mætti ekki vera rekin í ágóðaskyni, heldur fyrst og fremst með hag öryrkjanna fyrir augum og um leið hag þjóðarinnar. Það væri líka sjálfsagt og eðlilegt, að ríkið styrkti slíka starfsemi á einn og annan hátt, og sömuleiðis gætu bæjar- og sveitarfélög veitt mikla aðstoð. Ég tel þess ekki þörf á þessu stigi málsins, á meðan þessi till. mín hefur ekki sætt andmælum af hálfu hv. meðnm. minna né annarra hv. þdm., að færa fram ýtarlegri rök henni til stuðnings, en mun ef til vill gera það síðar, ef þörf gerist. En áður en ég lýk máli mínu vildi ég leyfa mér að segja nokkur orð um frv. þetta almennt og afstöðu mína til þess.
Afstaða mín til þessa frv. er mjög mótuð af því, að sú endurskoðun tryggingal., sem farið hefur fram á síðustu 2 árum, hefur verið framkvæmd af mönnum úr öllum flokkum, sem ég ber gott traust til, mönnum, sem hafa allra manna bezt aðstöðu til að þekkja þá reynslu, sem fengin er af framkvæmd l., a. m. k. frá sjónarmiði þess aðila, sem hefur mestan veg og vanda af framkvæmd þeirra, þ. e. Tryggingastofnun ríkisins. Ég treysti þeim mönnum fullkomlega til þess að hafa haft í huga við endurskoðun l. hagsmunasjónarmið allra þeirra aðila, sem standa undir tryggingunum og bera af þeim fjárhagslegar byrðar, en þeir eru sem kunnugt er:
1) hinir tryggðu . . .. . . . . .. 27.5 millj.
2) ríkissjóður um .. ... ... ... 20.0 -
3) bæjar- og sveitarfélög . . 14.5 - (15% )
4) atvinnurekendur ............ 13.5 -
75.5 millj.
Heildarniðurstaða þessarar endurskoðunar er sú að raska ekki í neinum verulegum atriðum „fjárhagsgrundvelli trygginganna“ — eins og það er orðað, en af því leiðir, að ekki eru gerðar neinar verulegar breytingar á lögunum, en aðeins rýmkað um heimildir til Tryggingastofnunar ríkisins, sem veita einum eða öðrum flokk bótaþega úrlausn, eins konar glaðning, og Tryggingastofnuninni því fengið meira vald og svigrúm um framkvæmd l. á sama grundvelli og hingað til. Tryggingastofnunin virðist ekki hika við það í þessum tilfellum að taka á sig meira erfiði og vinnu við framkvæmd l. En veigamesta niðurstaðan af endurskoðun l. er vitanlega sú, að lagt er til, að framkvæmd heilsugæzlunnar verði enn frestað um 5 ár, eftir að henni hefur verið frestað ár frá ári. Þetta þýðir, að það tryggingakerfi, sem var samþykkt á Alþingi 1946, kemur ekki til framkvæmda fyrr, en í fyrsta lagi á árinu 1955. Það var haustið 1944, að þjóðinni var í hátíðlegum stjórnarsamningi heitið því, að á árinu 1945 yrði komið á hér á landi „svo fullkomnu kerfi almannatrygginga, sem nái til allrar þjóðarinnar án tillits til stétta eða efnahags, að Ísland verði á þessu sviði í fremstu röð nágrannaþjóðanna.“ Það er nú gefið fyrirheit um, að þetta tryggingakerfi geti loks komizt til framkvæmda 10 árum síðar, en heitið var. Og þó er þetta tryggingakerfi, sem lögfest var 1946, í mörgum og veigamiklum atriðum langt að baki því tryggingakerfi, sem þeir Jón heitinn Blöndal og Jóhann Sæmundsson gerðu tillögur um 1945 samkv. stjórnarsamningnum 1944. Ef það stig, sem við stöndum á í tryggingamálum, og það kerfi, sem við búum við í framkvæmd, er borið saman við „nágrannaþjóðirnar“, eins og það var orðað 1944, held ég, að við stöndum þeim langt að baki.
Það tryggingakerfi, sem við búum við í reynd, meðan 3. kafli l. er ekki framkvæmdur, veitir hinum tryggðu hlunnindi fyrst og fremst í formi bóta, sem greidd eru í peningum. Hitt kerfið, sem við eigum á pappírnum, lögfest að nafninu til í 3. kafla laganna, átti að veita hinum tryggðu hlunnindi í formi þjónustu, heilsuvernd og heilsugæzlu frá vöggu til grafar.
Það kerfi, sem við búum við, á meðan 3. kafli kemur ekki til framkvæmda, er kerfi alþýðutryggingal. frá 1943, sjúkrasamlagskerfið, með þess kostum og göllum. Það veitir að vísu nokkra þjónustu með bótum, sjúkrahjálp, trygga læknishjálp og lyf í veikindum, en það veitir ekki hitt, sem mörgum finnst meira virði, heilsuvernd, starfsemi til varnar gegn sjúkdómum.
Í grg. frv. frá endurskoðunarn. tryggingal. er sýnt fram á, að það tryggingakerfi, sem við búum nú við, kosti hina tryggðu mun meira, en ætla má að hitt fullkomna kerfið kosti þá. En samt er lagt til, að því sé slegið á frest um 5 ár að reyna að framkvæma fullkomnara kerfið fyrir allt landið, með þeim rökum, að skilyrði séu ekki enn til þess að framkvæma það, heilsuverndarstöðvar, lækningarstöðvar og sjúkrahús séu ekki til o. s. frv. Menn verða að beygja sig fyrir þeim rökum í því trausti, að allt verði gert, sem unnt er af hálfu Tryggingastofnunar ríkisins, til þess að ýta á eftir því og greiða fyrir því, að þessi skilyrði verði sköpuð á þeim langa fresti — 5 árum — sem nú hefur verið ákveðinn til þess að uppfylla þau.