15.03.1950
Efri deild: 73. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í C-deild Alþingistíðinda. (3318)

68. mál, almannatryggingar

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Af því að ég hef um nokkurt skeið starfað við sveitarstjórnarmál og fengið nokkra reynslu í þeim efnum, tel ég mér skylt að segja nokkur orð.

Ég vil fyrst víkja að brtt. á þskj. 397, sem eru fluttar og reifaðar af hv. 7. landsk. (FRV). Ég er þessum till. yfirleitt fylgjandi og finnst þær bera þess vott, að hv. flm. hafi reynslu í sveitarstjórnarmálum. Ég er algerlega samþykkur 1. till. og tel hana þýðingarmikla til að taka af króka í framkvæmd þeirra málefnaliða, er þar er um að ræða. Till. er um það að taka það ómak af dvalarsveit að endurgreiða meðlög barna. Hv. 4. þm. Reykv. (HG) mælti heldur á móti till. í gær, og þótti mér það undarlegt um jafngerhugulan mann og hygg, að það muni stafa af því, að hann hefur ekki sett sig nógu vel inn í málið. Gangur málsins er sá, að barnsmóðirin snýr sér til umboðamanns Tryggingastofnunarinnar og tekur þar meðlagið, en umboðsmaðurinn snýr sér síðan til dvalarsveitarinnar. Sá krókur kostar 5–6 bréf. Venjulega er það svo úti á landi, að umboðsmaðurinn, sýslumaðurinn, skrifar dvalarsveitinni bréf. Dvalarsveitin skrifar og sendir endurgreiðslu, og umboðsmaðurinn skrifar kvittun og sendir dvalarsveitinni. En dvalarsveitin á ekki að greiða þetta endanlega, heldur framfærslusveitin. Venjulega skrifar dvalarsveitin sýslumanni, og hann snýr sér svo til framfærslusveitarinnar og sendir meðlagið til dvalarsveitarinnar. Það er fimmta bréfið. Loks skrifar dvalarsveitin og sendir kvittun. Það er sjötta bréfið. Ég sé ekki betur, en að hér sé um fullkomlega óþarfa skriffinnsku að ræða, æxli á framkvæmd l., sem þarf að sníða af. Þar sem 1. brtt. hv. 7. landsk. gerir það, skora ég á alla að greiða atkv. með henni og vona, að hv. 4. landsk. verði henni einnig fylgjandi, er hann hefur athugað málið nánar.

Þá er það 2. brtt., um að Tryggingastofnuninni sé heimilt að taka þátt í kostnaðinum, ef sjúkrasamlag eða sveitarstjórn hefur í þjónustu sinni hjúkrunarkonu eða aðstoðarstúlkur til þess að veita hjúkrun eða aðstoð á heimilum í veikindum. Mér skildist á hv. 4. þm. Reykv., að honum þætti þetta ofrausn af hendi Tryggingastofnunarinnar. En hér er um heimild að ræða, og Tryggingastofnunin getur því metið það, hvort þetta er rétt og fært, og ef fjárhagur stofnunarinnar er góður, tel ég að hún eigi að takast þetta á hendur. Ég tel till. til bóta og mun því greiða henni atkv.

Þá er það 3. brtt. Ég er henni samþykkur að því er anda hennar snertir, en tel að sú brtt., sem lögð hefur verið fram af hv. 4. þm. Reykv., hv. þm. Barð. og hv. 8. þm. Reykv., sé eðlilegri og að betur sé af stað farið í þessum efnum á þann hátt, sem hún gerir ráð fyrir. Ég mun því greiða henni atkv.

Þá er það 4. brtt. við 109. gr. tryggingal. Ég get sagt það, að mér hefur alltaf líkað illa við þessa gr. Mér virðist, að með núverandi ákvæðum sé Tryggingastofnunin að gera sér hægara fyrir og ýta undir skattleysingja til að fara til sveitarsjóðs. Mér finnst, að nóg sé sett á sveitarsjóð, þó að ekki sé hóað á fólk á þennan hátt. Jafnvel í árferði eins og verið hefur undanfarið hefur margt verið um skattleysingja, og þegar meira kreppir að, verða þeir fleiri og geta sveitarsjóða minni. Ég sé ekki betur, en að till. hv. 7. landsk. sé mjög heppileg til þess að stemma örlítið stigu fyrir þessa rás. Í till. er tekið fram, hvaða orsakir til fátæktar geta gert það að verkum, að sveitarsjóði beri skylda til að greiða iðgjöld. Þetta er til að vekja aðgát og gefa sveitarsjóði nokkra viðspyrnu. Í öðru lagi er gert ráð fyrir því, ef sveitarstjórn synjar, að umsækjandi verði sjálfur að áfrýja til yfirskattanefndar. Sú breyt., sem hv. heilbr.- og félmrn. leggur til, að gerð verði í þessum efnum, er að vísu úrbát frá því, sem er, en þar er svo undarlega lagt til, að það er sveitarstjórn, sem áfrýja skal til yfirskattanefndar. Það mun vera óvenjulegt, að einstaklingar eigi ekki sjálfir að sækja rétt sinn til enda. Skattleysingjar eru margir fleiri en rétt er, því að skattanefndir ganga ekki hart eftir framtölum hjá þeim, sem eru á takmörkunum, þar sem það skiptir litlu fyrir ríkissjóð. En það skiptir máli fyrir sveitarsjóð. Það er allvenjulegt, að ungt fólk, sem dvelur í foreldrahúsum, en vinnur úti, fær fæði ókeypis, en telur það ekki til tekna, enda telja foreldrar það ekki til frádráttar. Líkt er um bústýrur á heimilum vandamanna. Þær telja ekki fram tekjur eins og þær hafa af framfæri, af því að heimilisfaðirinn má ekki telja það til frádráttar. Hér er um allstóran hóp að ræða, og þetta er því þýðingarmikið mál fyrir sveitarfélögin. Ég mun eindregið fylgja till. hv. 7. landsk., því að mér virðist, að með henni sé settur eðlilegur hemill í þessum efnum.

Um 5. brtt. sé ég ekki ástæðu til að tala mikið, þar er um nauðsynlega leiðréttingu að ræða. — Þá tel ég 6. brtt. eðlilega. Yfirleitt eru einstaklingar og jafnvel sumir þeir, sem hafa framkvæmd löggjafarinnar með höndum, ekki nógu fróður um tryggingarnar og starfsemi stofnunarinnar.

Þá er enn ein till. á þskj. 395, sem ég vildi minnast á; það er 2. brtt. á því þskj. Hv. 11. landsk. (ÞÞ) talaði um hana í gær og var henni mótfallinn, og er ég það líka. Það er ekki vegna þess, að ég telji ekki Tryggingastofnunina ágætt fyrirtæki, heldur af því að ég sé ekki, að ástæða sé til og tel ekki eðlilegt, að stofnunin seilist inn á tekjusvið ríkissjóðs. Hins vegar á ríkissjóður að leggja fram fé til trygginganna eftir þörfum og í samræmi við eðlilegar kröfur. Fyrir tilmæli hv. form. fjhn. átti ég tal við hæstv. fjmrh., sem er veikur, um þessa till. í gær, að gefnu tilefni frá hv. 11. landsk. Hæstv. fjmrh. óskaði eftir því, að ég lýsti yfir því fyrir hans hönd, að hann væri till. mótfallinn og óskaði, að hún yrði ekki samþ., þar sem með því væru teknir út tekjuliðir úr fjárlagafrv. Eins og kunnugt er, er fjárlagafrv. veikt fyrir og veitir ekki af sínu, og er því þessi ósk hæstv. ráðh. eðlileg.

Ég skal svo ekki lengja mál mitt frekar. Til annarra till. mun ég taka afstöðu með atkv. mínu.