10.01.1950
Neðri deild: 26. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í B-deild Alþingistíðinda. (333)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Eins og kunnugt er, hefur hv. d. að þessu gengið svo frá frv., að ríkisábyrgð er tekin, sem mun kosta ríkissjóð milli 40–50 millj. kr., ef svipaður afli verður nú og var í fyrra, án þess að hv. d. hafi tekið afstöðu til, hvernig standa á undir kostnaðinum af þessu. Nú vill hv. þm. V-Húnv. bæta enn á þennan bagga. Að vísu get ég nú ekki séð, hve mörgum milljónum það nemur, en þær eru ábyggilega þó nokkrar; samt sem áður gerði hv. þm. ekki tilraun til að benda á leiðir til að standa undir þeim bagga, sem lifrarábyrgðin mundi baka ríkissjóði. Það hefur mikið verið talað hér um óskir útvegsmanna að fá lýsið tekið á hinn svo nefnda frílista. Ég tel, að það hefði verið hægt og útgerðarmönnum miklu geðfelldara en það, sem þessi till. felur í sér. Auk þess hefði það verið ríkissjóði alveg að kostnaðarlausu. Ég hef nú sýnt fram á, bæði við 1. og 2. umr., að allt tal um misnotkun á þessum frílistagjaldeyri er á röngum hugmyndum byggt og blandað saman við allt annan gjaldeyri, sem ríkisstj. hefur ekki áhrif á. Hins vegar hef ég sýnt fram á, hvernig viðskiptan. hefur eftirlit með frílistagjaldeyrinum og hvernig af hálfu hæstv. fyrrv. viðskmrh. hafði verið lagður grundvöllur að ströngu eftirliti með honum. Sá gjaldeyrir getur því ekki verið skoðaður sem nein hneykslunarhella. Að þessu athuguðu væri því ekki óeðlilegt, að útvegsmenn fengju lifrina inn á frílistann, eins og fram kemur í nál. fjhn.

Nú er rétt að víkja að því, sem hv. þm. V- Húnv. sagði, að sín till. væri, ef samþ. yrði, til að bæta hag útvegsmanna. Það getur verið rétt svo langt sem það nær og ef hægt væri að framkvæma hana, en ég hef áður sýnt fram á, að hún er byggð í lausu lofti og óvíst, hvort hægt er að standa undir henni. En það er hægt að veita útvegsmönnum úrlausn í þessu efni með því að láta lýsið falla á frílista, og kostar það ríkissjóð aukalega ekki neitt. Ég hygg því, að réttara væri fyrir hv. þm. V-Húnv. og aðra hv. þdm. að fallast á sanngjarna kröfu útvegsmanna í þessu efni, en auðvitað er það á valdi hv. þd. að ákveða það, og skal ég ekki frekar blanda mér í það mál, þar sem ég á ekki sæti í þessari hv. deild.

Um brtt. hv. þm. Siglf. (ÁkJ) er það að segja, að hún stefnir mjög í sömu átt og brtt. frá hv. 2. þm. Reykv. (EOI). Og þar sem komið hefur í ljós í hv. d., að ekki er vilji fyrir því að láta ábyrgðina ná lengra en til miðs maí, þá virðist hún að ófyrirsynju fram komin. Ég get og bent á, eins og ég tók fram við 2. umr., að það er langt frá því hugmynd þeirra, er sömdu frv., að láta ábyrgðina stöðvast um miðjan maí, ef aðrar ráðstafanir hefðu ekki verið gerðar fyrir þann tíma, og þetta þýðir, að mér finnst skylda hvíla á hverjum þeim hv. þm., sem nú stendur að samþykkt frv., að sjá farborða útvegi landsmanna, svo fremi að aðrar varanlegar ráðstafanir verða ekki gerðar.