12.01.1950
Efri deild: 29. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í C-deild Alþingistíðinda. (3331)

87. mál, endurgreiðsla tolla af tilbúnum timburhúsum

Flm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Frv. þetta er um endurgreiðslu tolla af tilbúnum timburhúsum, nánar til tekið sænskum timburhúsum, sem flutt voru til landsins á árunum 1945–1946–1947, þar af var eitt hús flutt inn 1945, 86 á árinu 1946 og 21 í janúarmánuði 1947, þ. e. a. s. gegnum Reykjavík, auk þess voru flutt inn 7 hús til Akureyrar á árinu 1946. Hús þessi eru sem sagt talin 108 hér fyrir sunnan og 7 fyrir norðan, samtals 115 hús. Saga þessa máls er sú, að það var rætt um það hér á Alþ. og víðar að flytja inn þessi sænsku tilhöggnu timburhús og reyna með því að fá ódýrari byggingar heldur en annars gat orðið, og voru menn mjög hvattir til þess að færa sér þetta í nyt, enda var gerð áætlun, þannig að mönnum leizt bærilega á það og lögðu í þessar byggingar, menn sem ekki höfðu talið sig hafa ráð á því að byggja með þeim byggingarkostnaði, sem hér gerðist þá. Sem sagt, vegna þessarar hvatningar og áætlana, sem gerðar voru, drifu menn sig í það, og byggingarsamvinnufélög börðust fyrir því að fá flutt inn þessi hús. En þegar svo byggingarefnið kom til landsins, kom það fram, að krafizt var mjög hárra tolla, eða 30%, af efni í húsin, og það var ekki gerður greinarmunur á því, að hve miklu leyti þetta efni var í raun og veru tilbúið eða hvort það var óunnið efni, af öllu efni voru tollar reiknaðir 30%. Í sambandi við l. um opinbera aðstoð við byggingar í kaupstöðum, nr. 44 1946, var samþ. svofellt bráðabirgðaákvæði: „Ríkisstj. heimilast að endurgreiða toll af þeim innfluttum tilbúnum húsum, sem flutt verða inn á árinu 1946, að því leyti sem hann er hærri, en á því byggingarefni óunnu, er til húsanna þarf.“ Með þessa heimild í höndum var gengið út frá því af eigendum húsanna, að tollgreiðslan mundi ekki verða hærri ,en eðlilegt mætti telja. En það reyndist svo, að þessi heimild hefur ekki fengizt notuð, ríkisstj. hefur ekki talið sér fært að færa sér þessa heimild í nyt, og hefur því, þrátt fyrir miklar tilraunir af hálfu einstaklinga og byggingarfélaga, ekki verið unnt að fá þennan toll endurgreiddan. En tilraun var gerð hér á Alþ., í sambandi við afgreiðslu fjárl. 1947, til að fá þessa heimild endurnýjaða, en tókst ekki. Virtist koma fram sá skilningur hjá þeim, sem greiddu atkv. á móti till., að þar sem þessi heimild væri til, þá væri ekki ástæða til þess að fara að endurnýja hana í fjárl. Málið stendur þá þannig, að þessi heimild er búin að vera fyrir hendi síðan 1946, en hefur ekki fengizt notuð. En vilji þm. hefur komið fram bæði í samþykkt þessa bráðabirgðaákvæðis, sem samþ. var í byrjun, og jafnvel má segja, að vilji þm. hafi komið fram um leið og felld var till. við fjárlfrv. 1947. Enn fremur kom vilji þm. fram á síðasta þingi í undirskriftaskjali, sem 31 þm. sendu ríkisstj., þar sem þeir óska þess, að hún færi sér þessa heimild í nyt. Eins og ég sagði, hefur þetta ekki tekizt fram til þessa. Ég hef látið fylgja frv. ýtarlega grg., og einkum eru miklar og góðar skýringar í bréfi, sem tollstjóri ritaði fjvn. 18. marz 1947, en það bréf er birt í grg. Í þessu bréfi finnast upplýsingar, sem mættu verða hv. þm. til nánari skýringa, en það, sem er höfuðatriðið, er það, að tollstjóri telur endurgreiðsluheimildina illa framkvæmanlega vegna erfiðleika á því að fá skýrslur erlendra seljenda um það, hvert verðið hefur verið, til þess að fá tollinn endurgreiddan samkvæmt því. Hann telur því heppilegra, að Alþingi sjálft ákveði, hvað tollurinn skuli vera hár. Þá telur hann, að eigendur húsanna eigi raunar tolleftirgjöfina inni, en álítur, eins og áður segir, illmögulegt að framkvæma hana með þeim heimildum, sem nú gilda. Þetta frv. er alveg í anda þess, sem tollstjóri leggur til í bréfi sínu, en þar segir hann, að innflutningsverð húsanna hafi numið tæplega 3,7 millj. kr., en aðflutningsgjöld af þeim hafi verið 1.276.193,56 kr., og er þá reiknað með 30% verðtolli og 7 aura vörumagnstolli, en ef efni til húsanna er flutt óunnið, ætti það að tollast með 8% verðtolli, en meginefni húsanna er timbur, og af því óunnu er 10 aura vörumagnstollur á kúbikfet, eða sem svarar um ½ eyri af kg. Af mestum hluta annars efnis til húsanna. óunnins mun vörumagnstollur vera 2 aurar af kg. Þetta segir tollstjóri um tollhæðina, eins og hann hefur reiknað út og eins og hún hefði átt að vera. Um formið á endurgreiðslunni segir tollstjóri: „Ef Alþingi vill veita kaupendum margnefndra húsa tollaívilnun, væri því eðlilegra og mun auðveldara í framkvæmd, að horfið væri frá því að nota heimild bráðabirgðaákvæðis laga nr. 44 frá 1946, en í stað þess sett sérstök lög um, að verðtollur af tilbúnum húsum, fluttum inn á árunum 1945 og 1946 og til ákveðins dags á þessu ári (1947), t. d. 1. apríl, skuli lækkaður niður í lægri tollflokk, er þingið teldi hæfilegan ...“ Þess er einnig að geta, að heimildin náði aðeins til húsa, sem innflutt voru 1946. Þetta telur tollstjóri óeðlilegt, og telur, að ef veita eigi tollendurgreiðslu af húsum, sem flutt voru inn 1946, þá verði einnig að hafa sama hátt á um þau hús, sem flutt voru inn 1947, og það eina hús, sem flutt var inn 1945. Það er farið fram á það í 1. gr., að endurgreiðsla tollsins sé miðuð við það, að verðtollur sá, sem ríkissjóður fær af húsunum, sé 10%, og er þá stuðzt við uppástungu tollstjóra um það. Þá er einnig í 1. gr. lagt til, að vörumagnstollur verði 2 aurar á kg. Í áskorun 31 hv. alþm. til ríkisstj. um að endurgreiða eigendum húsa þessara tollana er bæði talað um verðtoll og vörumagnstoll, og þess vegna er vörumagnstollurinn einnig tekinn með. Með 2. gr. er reynt að koma í veg fyrir, að tollendurgreiðslan lendi hjá milliliðum, með því að ákveða, að þeir, sem séu eigendur húsanna, þegar lög þessi öðlast gildi, skuli fá tollendurgreiðsluna. — Ég vil að lokum geta þess, til stuðnings við þetta frv., ef verða mætti til þess að hræra hjörtu hv. þm., að það voru margir, sem af litlum efnum brutust í að byggja þessi hús, bæði vegna húsnæðisvandræða sinna og vegna hvatningar yfirvaldanna, sem töldu, að húsin mundu verða ódýr. Þetta reyndist hins vegar þannig, að hús, sem áætlað var, að mundu kosta 110–120 þús. kr., komust upp í 270 þús. kr. fullbyggð. Slíkur aukakostnaður kemur sér meir en lítið illa fyrir fátæklinga, sem ekkert eiga upp á að hlaupa, enda hefur þetta skapað mörgum slíka erfiðleika, að þeir geta jafnvel ekki haldið húsum sínum, en þessi tollendurgreiðsla, sem frv. fer fram á, mundi geta bjargað mörgum þeirra frá stórum vandræðum. Ég verð því að telja þetta stórkostlegt réttlætismál og skyldu yfirvaldanna að endurgreiða tollinn. Það hefur strandað á því hingað til, að heimildin er óskýr, en ef þetta frv. nær fram að ganga, þá er úr þessu bætt, og er þess að vænta, að endurgreiðslan fari þá fram bráðlega. Ég vil svo leyfa mér að óska þess, að frv. fái fylgi Alþingis og skjóta afgreiðslu og að því, að þessari umr. lokinni, verði vísað til 2. umr. og til hv. fjhn.