13.01.1950
Efri deild: 31. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í C-deild Alþingistíðinda. (3341)
87. mál, endurgreiðsla tolla af tilbúnum timburhúsum
Hermann Jónasson:
Svo það á að fara að samþ. tollskrá eftir á; það eru, meinleg örlög, að það er lesið upp á eftir þessari ræðu þm. Str. Það er ómögulegt, að þm. Str. samþ. ekki tollskrána eftir á. Það er sök sér að leggja á skatta eftir á. En að leggja á tolla eftir á! Ég vildi svo svara þessari aths. hv. þm, út af fyrir sig. Ég ætla ekki að fara að ræða það, — það er leiðinlegt umræðuefni að ræða um syni þeirra manna, sem hér eru. En vegna þessara ummæla, sem féllu hjá hv. þm. Barið. um syni Páls Zóphóníassonar — að það sé ekki hægt að koma þeim út af fjárl. —, vil ég taka það fram, að það er kannske eðlilegt, af því að þeir eru svo duglegir námsmenn og hafa stundað námið svo vel, að þeir hafa alltaf fengið verðlaun. T. d. þessir tveir, sem stunduðu nám í Danmörku, fóru báðir með því skilyrði, að þeir tækju ekki atvinnu í Danmörku eftir að þeir hefðu lokið námi, en síðan hefur ráðun. fallizt á að þeir tækju embætti í Danmörku, af því að þeir voru fremstu menn hvor í sínum skóla. Nú hafa þeir beðið um að fara heim í þjónustu íslenzka ríkisins úr þjónustu danska ríkisins á háum launum. (GJ: Það er sorglegt, að danska ríkið skyldi ekki halda þeim áfram:)
Það getur vel verið, að hv. þm. Barð. óski ekki eftir því, að þeir, sem stunda vinnu hjá ríkinu, séu valdir eftir dugnaði, heldur eftir einhverju öðru, því að annað er ekki að hafa á móti þessum mönnum, því að þeir eru duglegir og sérstökum hæfileikum búnir.
Viðvíkjandi því, hvort Framsfl. og ráðh. hans bæru ábyrgð á Kaldaðarnesi og Silfurtúni og þeim ráðstöfunum, þá er því til að svara, að vitanlega bera þeir ábyrgð á því. Ráðh. Framsfl. dettur ekki í hug að skorast undan neinni ábyrgð í sambandi við sölu Kaldaðarness, enda mun þar hafa verið farin heppileg leið, eins og búið var að níða niður þá jörð. Viðkomandi Silfurtúni, þá ber Framsfl. einnig ábyrgð á því. Okkur hefur aldrei dottið annað í hug. Annars var öll ríkisstj. sammála um það. Viðkomandi láni úr útvarpssjóði, þá hygg ég, að það sé ávaxtað í öruggum bréfum, eða halda menn, að það sé illa tryggt að lána Silla og Valda með fasteignaveði? Hvers konar áróður er þetta? Halda menn, að það sé pólitísk hlutdrægni af hálfu hæstv. menntmrh. að lána þessa fjárhæð til Silla og Valda? Vitanlega ber ráðh. Framsfl. ábyrgð á þessu, enda er þetta ekkert óeðlileg ráðstöfun.
Þá segir hv. þm. Barð., að ég hafi unnið að því að spilla samstarfi flokkanna. Ég gerði þær kröfur, að óstjórninni í íslenzku fjármálalífi yrði lokið. Ég krafðist þess að sjá fram á eitthvað annað, en úrræðaleysi ráðh. Sjálfstfl:, sem eytt höfðu 175 millj. kr.. í halla á ríkisrekstrinum á 3 árum. Framsfl. sá, að á þessari braut varð ekki áfram haldið. En út af því, sem hv. þm. Barð. sífellt vitnar í, að hæstv. menntmrh. hafi ekki fallið frá 10 millj. kr. greiðslum á fjárl., þá voru þetta framlög, sem ákveðin voru í l. frá tímum hinnar svonefndu nýsköpunarstjórnar og ómögulegt var að komast hjá að greiða, eins og hv. 1. þm. Eyf. tók fram. Þetta voru fjárframlög til skólabygginga, sem ekki var hægt að stöðva, því að þá hefðu mikil verðmæti orðið ónýt, ef byggingarnar hefðu verið stöðvaðar í miðju kafi.
Ég skal nú stytta mál mitt, en ég vil benda á; að óstjórnin í okkar fjármálum stafar af því; að hlaðið hefur verið upp þyngri lagabáknum, en þjóðin fær risið undir, svo sem skólal., launal. o. s. frv., og af því, að ráðizt hefur verið í framkvæmdir af lítilli forsjálni. Nú er talað um of miklar framkvæmdir og of mikla fjárfestingu, en þessar offramkvæmdir hétu einu sinni nýsköpun og voru stolt Sjálfstfl. En það eru þessar offramkvæmdir og lög eins og launal. og skólal., sem valda þenslunni í fjármálalífinu og dýrtíðinni, sem er að verða óviðráðanleg, og þetta er fjármálastjórn Sjálfstfl. sem átti að mega laga með einu pennastriki, en eftir því pennastriki bíður þjóðin nú. Það er ekki hægt að ganga fram hjá því, að ráðh. ber ábyrgð á þeirri stjórnardeild, sem undir hann heyrir, og Framsfl. ber fulla ábyrgð á því, sem hann hefur gert, og mun þar ekki undan skorast, hvorki t. d. varðandi sölu Kaldaðarness né lánið til Silla og Valda, en á sama. hátt á fjmrh. að bera ábyrgð á fjármálum ríkisins, og ef Alþingi samþ. það, sem hann telur sér óaðgengilegt, á hann að segja af sér. Á kreppuárunum 1934–1942 neitaði fjmrh. að taka við óábyrgum samþykktum í fjármálum, og á þessu tókst að rétta við fjárhag ríkisins.
Út af því, sem hv. þm. Barð. sagði; að Framsfl. hefði innleitt það, að skattar væru lagðir á eftir á, þá er það ekki rétt, því að það var hans eigin flokkur, Sjálfstfl., sem fyrstur gerði þetta og hefur gert í 11 ár og ætlar enn að gera. Það er því auðsætt, að ásakanir hv. þm. Barð. á Framsfl. eru með öllu ósannar, og stendur hann ekki einungis höllum fæti þar, heldur er einnig, eftir að hv. þm. hefur haldið þessu fram, lesið upp þskj., sem ber með sér, að hæstv. fjmrh. ætlar nú einnig að láta tolla gilda aftur fyrir sig, en það er eins dæmi á Íslandi. Hér ræðst hv. þm. því á sitt eigið glerhús. Það er tvímælalaust rétt, að Sjálfstfl. ber að öllu leyti ábyrgð á fjármálaástandinu, og sést nú, hve miklir fjármálaspekingar nýsköpunarpostularnir voru. Þeir hafa tekið íslenzku fjármálalífi gröfina með offramkvæmdum og alls konar útgjaldafrekri lagasetningu. Þeir hafa þannig grafið undan grunni íslenzks fjármálalífs, að illmögulegt er að verjast hruni. Þeir hafa eyðilagt fjárhag ríkissjóðs, og sýnir þetta allt, að Sjálfstfl. á enga fjármálamenn. Þótt hagur ríkissjóðs væri góður um tíma undir þeirra stjórn, þá er það engin saga, því að það er enginn vandi að græða, þegar allir græða, en ásakanir þeirra í garð Framsfl. eru hlægilegar, að hann geti ekki stjórnað fjármálunum, því að það var Framsfl., sem öllu bjargaði 1934. En svo standa þessir menn upp, sem steypt hafa öllu í voða, og fyllast vandlætingu út af aðgerðum annarra í fjármálum þjóðarinnar. Áskorunum þessa fólks er sannarlega ekki hægt að taka þegjandi.