13.01.1950
Efri deild: 31. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í C-deild Alþingistíðinda. (3342)

87. mál, endurgreiðsla tolla af tilbúnum timburhúsum

Flm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Fáein orð út af ræðu hv. þm. Barð. Hann var að áminna mig um að taka rétt eftir, en það er alveg óþarfi, því að ég hef tekið rétt eftir, og svo vel vill til, að hv. 1. þm. N-M. ræddi það atriði, sem hv. þm. Barð. taldi mig hafa farið rangt með, og sannaði, að það, sem ég hélt fram, var rétt. Hv. þm. Barð. taldi þessa tollaeftirgjöf litlu skipta fjárhagslega fyrir þá menn, sem byggðu hús fyrir allt að 300 þús. kr. En ég benti á það í gær, að þótt húsin hefðu reynzt svona dýr, þá var áætlað, að þau mundu ekki kosta nema 110–120 þús. kr., og af þeirri upphæð munar talsvert um 7.000 kr. Hv. þm. talaði um það, að þessir húseigendur ættu að sækja til Alþingis um hjálp til að losna við hús sín. En það vilja þeir ekki. Þeir vilja búa í þeim, en ekki láta menn eins og hv. þm. Barð. standa fyrir sölu þeirra. Þá vildi hv. þm. gefa í skyn, að ég vissi ekki, hvað heimild þýddi, og vildi halda því fram, að heimild væri allt annað en fyrirskipun. Það kann nú út af fyrir sig að vera rétt, en hingað til hefur það þótt nokkurs konar fyrirskipun eða a. m. k. viljayfirlýsing til ríkisstj., þegar slíkar heimildir eru gefnar. Hins vegar hef ég ekkert ásakað hæstv. ráðh. fyrir að nota ekki þessa heimild til tolleftirgjafar, heldur fallizt á það, að ákvæðin væru óskýr og væri rétt að hafa þetta allt tvímælalaust, og þess vegna er frv. mitt flutt. Hins vegar er óþarfi að deila um það mikið hér, hvað heimildin hafi átt að þýða; það kemur í ljós við afgreiðslu frv., hvað hv. þm. vilja leggja mikið upp úr því, sem Alþ. hefur áður samþ. — Ég ætla ekki út í umr. á breiðari grundvelli, en vildi aðeins svara því, sem hv. þm. Barð. hreytti í mig út af því, að ég vildi vinna að því að rífa undan fjárhagsgrunni ríkissjóðs.