10.01.1950
Neðri deild: 26. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (337)
81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.
Sigurður Ágústsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð í sambandi við till. hv. þm. V-Húnv. um að setja ákvæði um lýsi í 1. gr. frv. þess, sem hér var til 2. umr. áðan. Mér er lítt skiljanlegt ofurkapp það, sem hv. þm. V-Húnv. leggur á það að fá þennan frílista úr sögunni. Ég held, að það sé ekki rétt athugað hjá honum, að það finnist nokkur útgerðarmaður, sem sé andvígur þeirri aðferð, sem hefur verið höfð í tvö ár í sambandi við þennan frílista, öðru nær. Útgerðarmenn halda mjög fast á þessum rétti sínum og sjá enga ástæðu til þess, að þessi virðulega stofnun skerði rétt þann, sem þeir hafa haft hvað þetta snertir undanfarið. Þetta er þeim mun einkennilegra, þar sem þessi frílistaaðferð hefur verið höfð tvö undanfarin ár og engin rödd komið hér fram á Alþ. um að hafa aðra skipan á þessum málum. Sömuleiðis var fyrir nærri tveim árum höfð mjög lík skipan á sölu einnar tegundar landbúnaðarvöru, gærum til Finnlands. Þær voru í raun og veru verðuppbættar á þann hátt, sem hefur verið hafður í sambandi við frílistavörurnar. Það hlýtur að liggja eitthvað annað á bak við hér, en hagsmunir okkar útgerðarmanna, sem við teljum, að sé bezt borgið með því að hafa frílistann áfram. Það má í þessu sambandi benda á, að enn geta þeir tímar komið, að erfitt verði með sölu á ýmsum afurðum sjávarútvegsins. Margar þær vörutegundir, sem eru á frílista, voru lítt seljanlegar og sumar hverjar ekki hirtar, en þessi frílisti er upphaflega til orðinn einmitt til þess, að þessum vörum yrði ekki kastað. Þær voru svo teknar á lista, og útgerðarmenn fengu fyrir þær hinn svonefnda frjálsa gjaldeyri. Það er hið mesta ranghermi að tala um frjálsan gjaldeyri í þessu sambandi, því að eins og allir vita, er þessi innflutningur alveg háður innflutningsyfirvöldunum. Þau úrskurða, hvaða vöruflokka skuli flytja inn fyrir gjaldeyrinn. Það er aðeins þetta: Í sambandi við frílistann hafa útgerðarmenn fengið nokkra verðuppbót eða fengið að leggja — þó með samþykki verðlagsyfirvaldanna — óeðlilega háan ágóða á þessa vöruflokka. — Þá vil ég taka það fram, að það er að sumu leyti ekki rétt hjá hv. þm. V-Húnv., þegar hann hélt því fram við 2. umr. málsins, að frílistinn hefði leitt til óheilbrigðra verzlunarhátta og ekki heyrt undir innflutningsyfirvöldin. Ég vil halda því fram, að hvort tveggja sé rangt hjá hv. þm. Frílistinn hefur heyrt undir innflutningsyfirvöldin, og það er fyrst nú í þessari hv. d., sem ég hef heyrt, að fólk hafi kvartað undan óeðlilegum verzlunarleiðum í sambandi við frílistavörurnar.
Ég vildi aðeins láta hv. þm. heyra álit mitt, einmitt sem útgerðarmanns, sem á að vera mjög vel kunnugur því, hver hugur útgerðarmanna er í þessu máli, en hann er allt annar en hv. þm. V-Húnv. hefur viljað túlka hér.