20.01.1950
Efri deild: 39. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í C-deild Alþingistíðinda. (3398)

98. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Ég upplýsi, að þetta hefur nokkuð verið rætt. En n. þótti ekki rétt að láta bið verða á að leggja frv. fram til 1. umr. og hefur því flutt frv. að beiðni hæstv. ráðh. En l. eru til athugunar, og hefur málið verið rætt. Hins vegar óska ég þess, að málið sé eigi tekið fyrir, án þess að hæstv. forseti hafi um það samráð við mig.