09.05.1950
Efri deild: 103. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í C-deild Alþingistíðinda. (3424)

129. mál, kaup á ítökum

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég er sammála stefnu þessa frv., en frv. þarf mjög mikillar athugunar við, og held ég því, að ekki sé rétt að flaustra því af í svipinn, en ég vænti þess, að það verði athugað vel í Nd., og geri ég ráð fyrir, að hyggilegast sé að samþykkja það ekki á þessu þingi, en í trausti þess, að það verði vel athugað, segi ég já.