08.05.1950
Efri deild: 102. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í C-deild Alþingistíðinda. (3437)
158. mál, tilraunir í þágu landbúnaðarins
Þorsteinn Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara út í efni þessa máls, af því að mér er það ekki nægilega kunnugt. Hv. form. landbn. sýndi mér þetta lauslega. Ég vissi ekki, hvort það var hreinskrifað alveg eða bara uppkast, af því að ég leit á það fljótlega, og gat ekki tekið ákvörðun um það, hvort ég vildi vera flm. að því eða ekki. Aftur á móti vil ég ekki neitt sérstaklega í þetta skipti ámæla hv. form. n. fyrir það, þó að hann reyndi að flytja þetta mál upp á sitt eindæmi, með þeim forsendum, sem í grg. eru, að nm. séu alveg óbundnir gagnvart þessu máli um breyt. á því eða hvað sem við það verður gert í raun og veru. Get ég því alveg látið hjá líða að átelja hv. form. n., vegna þess líka, að nokkuð er satt í því, að mjög erfitt var að ná öllum nm. saman á fund. En ég held, að það verði ekki frekar til að flýta málinu, að þetta ráðslag er tekið; því að ég hefði haldið, að það þyrfti alveg eins að athuga málið, þó að frv. sé vísað til okkar í landbn. frá hv. d., eins og þótt við hefðum athugað það áður en það var flutt. Sem sagt, þetta frv. er flutt án allrar ábyrgðar af minni hendi, en ég átel ekki okkar hv. formann n., því að hann sýndi áhuga á því að halda fundi, og hef ég að jafnaði af veikum mætti reynt að fylgja honum á fundina.