10.01.1950
Neðri deild: 26. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (344)
81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.
Jóhann Hafstein:
Þar sem bæði er búið að stytta gildi þess kafla, sem hér um ræðir, til 1. marz, og þar sem enn fremur kom fram í grg. frá ríkisstj., að hún teldi nauðsynlegt, að sumir af þeim tekjuliðum, sem í kaflanum felast, yrðu felldir úr gildi bráðlega, þá mun ég nú greiða atkv. á móti þessari till., enda þótt ég hafi áður flutt till. sama efnis.