08.05.1950
Efri deild: 102. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 524 í C-deild Alþingistíðinda. (3440)
158. mál, tilraunir í þágu landbúnaðarins
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að ræða neitt málið efnislega að þessu sinni. En það hafa þegar tveir hv. þm., hæstv. dómsmrh. og hv. þm. Barð. (GJ), farið út í það á þeim grundvelli, sýnilega án þess að hafa lesið það (Raddir af þingbekkjum: Það þarf þá að lesa frv. fyrir þá.), og þess vegna held ég, að ég neyðist til þess að segja nokkur orð um frv. efnislega. En áður en ég kem að því vil ég fyrst minna á það, að 1940 voru sett lög um, að reyna skyldi verkfæri, sem flutt væru til landsins, jarðyrkjuverkfæri, heyvinnuáhöld og önnur heimilisáhöld, sem flyttust til landsins. Þetta var gert í nokkur ár, en þá komu skurðgröfurnar til sögunnar, sem inn voru fluttar, og var lagt á þá verkfæranefnd, sem hv. þm. Barð. las upp ákvæði um, að hafa alla umsjón með skurðgröfunum, en Búnaðarfélag Íslands hafði reikningshaldið við þær. Afleiðingin af þessu varð svo sú, að síðan þetta var gert, hefur þessi nefnd engin verkfæri prófað. Það litla fé, sem henni var ætlað á fjárl., hefur farið í það eingöngu að kosta n. til að sjá um reksturinn á skurðgröfunum, en n. hefur síðan engar vélar prófað. Nú skal ég ekki fara út í afleiðingar þessa, á þessu stigi málsins.
Þá skal ég geta þess næst, að þó að mál þetta, sem liggur fyrir, væri ekki tekið fyrir á fundi í landbn., þá talaði ég við fjóra nm., en einn nm. var veikur. Ég talaði við hv. 2. þm. Árn. (EE), hv. 11. landsk. þm. (ÞÞ) og hv. 4. þm. Reykv. (HG), sem töldu, bæði hv. 4. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Árn., að sjálfsagt væri, að n. flytti frv., án þess þó, að það væri tekið fyrir formlega á fundi, en hv. 11. landsk. þm. sagði ekkert um það. Það var því ekki tekið fyrir á fundi, og þar af leiðandi er ekkert bókað um flutning málsins. Og þegar ég þess vegna segi, að það sé flutt af landbn., tel ég, að ég geri það ekki út í loftið, þó að ekkert sé um þetta bókað. Og ég sagði frá þessu í upphafi hér á fundi í hv. d., því að það er ekki minn siður að vera með nein óheilindi í sambandi við mál, sem ég er með.
Þá vil ég benda hæstv. dómsmrh. á, í sambandi við b-lið 2. tölul. 1. gr. frv., að þar sem þetta stendur: „Sérhverjum innflytjanda eða framleiðanda landbúnaðarvéla og verkfæra skal skylt að afhenda nefndinni til reynslu eina vél eða verkfæri af nýrri eða breyttri gerð, er þeir flytja inn eða framleiða“, þá stendur þetta líka á eftir: „Skylt er nefndum aðilum, er láta reyna vélar eða verkfæri, að flytja þau á sinn kostnað að og frá tilraunastað. Verkfæranefnd ber ekki ábyrgð á tækjunum, en eigendum þeirra er heimilt að hafa mann við tilraunirnar til eftirlits með vélunum,“ og er það til þess að fylgjast með því, hvað gerist. Ég hélt, að af þessu væri nokkuð ljóst, að það væri ekki litið svo á, að þessar vélar, sem reyndar væru, væru þar með eign ríkisins, þó að þær kæmu undir þessa prófun, heldur væru þessar vélar, sem afhentar væru, afhentar til reynslu aðeins, þar sem tekið er fram, að þeir, sem eiga vélarnar eða tækin, eigi að flytja þessa hluti að og frá tilraunastað. Og ég hafði líka haldið, að það væri ljóst, að verkfærin og vélarnar væru ekki afhentar til eignar, þar sem tekið er fram, að verkfæranefnd beri ekki ábyrgð á tækjunum við prófun þeirra, þó að þessi tæki kynnu að skemmast í höndunum á þeim, sem þau reyndu. Hins vegar má náttúrlega athuga, hvort rétt teljist að taka þetta skýrar fram. Ég held, að engum hafi dottið í hug, þó að verkfæri hafi verið reynd af verkfæranefnd á fyrstu árunum eftir 1940, að þau ættu að afhendast til eignar, þó að þau væru prófuð. Ef svo hefði verið gert, þá væri einn bændaskólinn okkar búinn að eignast með auðveldu móti sex til sjö dráttarvélar t. d.
Nú er það svo, að ég þekki ekkert land, þar sem ekki eru ákvæði svipuð þessum, sem hér í frv. er gert ráð fyrir. Það er óleyfilegt að selja nokkra vél, slíka sem hér er um að ræða, t. d. í Bandaríkjunum, Englandi, Danmörku, Noregi eða Svíþjóð, fyrr en búið er að reyna hana af ábyrgri nefnd. Í Danmörku t. d., þar sem vélar eru reyndar þannig, er vél., sem reynd er, látin sýna, hve mörg hestöfl hún hafi og hve mikil áreynslan er á vélina, þegar hún er látin ganga svona eða svona, og vélin svo tekin sundur eftir hverja reynslu til þess að athuga, hvernig hún hefur staðizt prófið, og þegar þessi prófun á vélunum er búin, gefur verkfæranefnd ríkisins vottorð um hæfni vélarinnar. Og t. d. þegar reynd er þannig dráttarvél, fá viðkomandi aðilar ekki að selja slíka vél, fyrr en vottorð liggur fyrir frá verkfæranefnd um hæfni vélarinnar til sinna nota, og þess vegna er gert ráð fyrir því í þessu frv., að „hafi viðkomandi vélategund eða verkfæra verið reynd af opinberum aðila um erlendis, skuli innflytjandi afhenda verkfæranefndinni niðurstöður tilrauna þeirra, samtímis og hann óskar eftir hæfnisprófun vélarinnar.“ N. á að fá skýrslur um tilraunirnar, svo að ekki þurfi að gera þær hér, enda væri það ekki hægt nema með gífurlegum kostnaði, og þess vegna á umboðsmaður viðkomandi véla að senda n. þessar skýrslur og þá er verkefni n. að athuga og ganga úr skugga um, hvort vélin á við íslenzka staðhætti. Þetta gerði líka gamla nefndin fyrst í stað, en hefur alveg hætt því á síðari árum og ber við annríki, og til þess að bæta hér úr hafa nú nefndirnar verið gerðar tvær. Það má náttúrlega segja, að ein nefnd ætti að vera til þess að dæma allar vélar, sem inn eru fluttar, en ég er alls ekki viss um, að hægt sé að fá menn í eina nefnd, sem gætu t. d. sagt um það, hvort eitthvert herfi herfaði vel eða hvort plógur velti vel af sér, og ættu jafnframt að dæma um það, hvort einhver vél væri góð til að bræða lýsi o. s. frv. Sjávarútvegurinn hefur og engar tilraunir gert til að fá slíka nefnd skipaða á Alþingi og ekki iðnaðurinn heldur. Það er eingöngu landbúnaðurinn, sem hefur fengið slíka nefnd, gömlu verkfæranefndina, sem kostuð var af ríkissjóði, en nú er meiningin, að innflytjendur vélanna greiði þennan kostnað, sem verður mjög hóflegur. Af þessu vænti ég að hv. þm. Barð. sjái, að tilgangurinn er eingöngu sá að reyna að tryggja það, að þeir, sem kaupa vélar, viti nokkurn veginn, að hverju þeir ganga. Á það má minna, að hér hafa verið seldar undanfarið rakstrarvélar, sem ekki hafa komið að hálfu gagni. N. á einmitt að vera til þess, að svona lagað komi ekki fyrir, með því að reyna vélarnar og segja til um, hvort þær muni vel lagaðar fyrir staðhætti hér á landi. Af þessu leiðir það, að ákvæði e-liðar ber ekki þannig að skilja, að framleiðendum vélanna verði bannað að selja þær. Öllum er heimilt að kaupa vélarnar, n. á bara að segja til um, hvort það muni ráðlegt. En ef á að fara á bak við n. og ekki láta vélarnar koma til athugunar hennar, þá eru þær vélar upptækar og eign ríkisins. En ef vélarnar eru látnar ganga rétta leið og sendar n. til athugunar, þá dæmir hún um þær, og þegar sá dómur er fallinn, þá er hverjum heimilt að selja sína vél og hverjum heimilt að kaupa, hvernig sem dómur n. er. Þar sem gamla verkfæranefndin hefur vanrækt þetta starf, þá er nauðsynlegt að fá nýja nefnd, því að ef gamla n. á að vinna þetta verk, þarf hún að fá aukið fjármagn, en það yrði þá baggi á ríkissjóði, því að ekki er heimild til að taka gjald af vélunum, eins og lagt er til í þessu frv. Mér þykir eðlilegt, að innflytjendur greiði hóflegt gjald til þess að kosta þessa n., enda munar þá ekki meira um það en nokkrar auglýsingar í blaði. Gjaldið getur að vísu orðið nokkuð hátt hlutfallslega, ef lítil sala er í þeirri tegund, sem inn er flutt, en slík tilfelli verða varla mörg, því að búskapur okkar er ekki svo fjölþættur, að líkur séu til þess, að við flytjum inn öðruvísi tæki, en allir aðrir í sömu grein. Gjaldið er því yfirleitt tiltölulega lágt og betra að láta það bera uppi nefndarkostnaðinn, en ekki ríkissjóð, ef n. á að vera til meira en bara á pappírnum, eins og gamla n. hefur verið síðari árin. Ég vil því leyfa mér að óska þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og n., þótt óvíst sé, að það nái fram að ganga á þessu þingi.