09.05.1950
Efri deild: 103. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í C-deild Alþingistíðinda. (3443)
158. mál, tilraunir í þágu landbúnaðarins
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja mikið umr. um þetta mál.
Hv. frsm. hélt fram, að það væri alls staðar í þeim löndum, þar sem hann þekkti til, löggjöf um það, að ónotaðar vélar væru reyndar, áður en þær væru seldar, og ekki mætti selja þær, nema slík prófun hefði farið fram. Hann lýsti yfir, að sú prófun, sem þar væri gerð, gæti ekki farið fram hér á landi. Ef þetta er rétt, þá er miklu auðveldara að taka upp bann á innflutningi slíkra véla, nema þeim fylgi slík skírteini. Það er venjulegt í sambandi við skipabyggingar m. a., að skip séu byggð eftir ákveðnum reglum, sem viðurkenndar eru, svo sem reglur Lloyds, og fylgir þá vottorð frá þeirri stofnun, að verkið hafi verið framkvæmt undir þeirra eftirliti. Stundum er það undir eftirliti opinberra aðila, og sé ég ekkert á móti því, að inn í þessi l. verði sett það ákvæði, að engar vélar megi flytja inn, nema þeim fylgi vottorð frá opinberri stofnun, að þær séu smíðaðar gallalaust. Hitt er ekki hægt að setja í l., að það megi ekki selja þær, nema þær hafi verið reyndar á einhverju jarðræktarsvæði. Ég tel ekki ráðlegt að taka þessa starfsemi frá búnaðarskólanum, þar sem hefur verið byrjað á þessari starfsemi, einkum þar sem hann hefur verið aukinn mjög, og ef það er svo, að hún hafi lagzt niður á þessum árum, sem liðið hafa síðan þessi l. voru sett, 1940, þá er það því að kenna, að framkvæmdin hefur ekki verið fyrir hendi, en ekki lagabókstafnum að kenna. Það er því þýðingarlaust að fara að setja hér ákvæði um nýja menn eða nýja n. Ég vísa hins vegar til þess, sem ég hef sagt, að ákvæðið ætti að vera miklu víðtækara, svo að til landsins flyttust ekki vélar nema samkvæmt þessum ákvæðum, en þá þyrfti að athuga frv. miklu nánar.
Ég mun ekki geta fylgt frv. eins og það er, en skal annars ekki halda uppi neinu málþófi um málið.