24.11.1949
Sameinað þing: 4. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í D-deild Alþingistíðinda. (3458)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Flm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta mál er framhald af sama máli, sem var afgreitt hér á Alþ. í lok síðasta þings síðastliðið vor, en þá var heimilað að greiða opinberum starfsmönnum allt að 4 millj. í launauppbætur fyrir yfirstandandi ár. Þar var einnig gert ráð fyrir, að rannsókn færi fram á því, hvort launakjör þessarar stéttar væru lakari en annarra stétta vegna kjarabóta, sem þær hefðu fengið síðan launalögin voru sett. Fjmrn. skipaði síðan n. til að athuga þetta, og starfaði hún í júnímánuði s. l. Niðurstöður n. benda til, að launakjör opinberra starfsmanna séu lakari en annarra stétta, ef miðað er við það hlutfall, sem var, er launalögin voru sett. Framkvæmdin hefur nú orðið sú, að uppbót hefur verið greidd mánaðarlega, sem svarar 20% hækkun á grunnkaupi, og hófust þessar greiðslur í júlí. Nú mun þetta hafa orðið svo í framkvæmdinni, að fleiri hafa notið þessara bóta frá ríkinu, en ákveðið var í upphafi, og mun nú svo komið, að þegar mun vera búið að greiða í þessu skyni nokkru hærri upphæð, en ákveðið var í þál. síðastliðið vor, eða nálega 5 millj. kr. alls. Þegar þessi mál eru athuguð, og þar sem nefnd vinnur nú að endurskoðun launal., þá þykir okkur flm. þessarar till. ekki annað fært, en þessum uppbótum verði haldið áfram og greiðslur þessar verði teknar inn í fjárl., þar til endurskoðun launal. hefur farið fram. Í þál. s. l. vor var gert ráð fyrir 4 millj. til uppbóta, eða 20% grunnkaupshækkun, en þrátt fyrir þessa hækkun fer því fjarri, að opinberir starfsmenn hafi við betri kjör að búa, en aðrar launastéttir í þjóðfélaginu, og þykir því rétt að halda þessum greiðslum áfram.

Till. þessi fer vafalaust til fjvn. að aflokinni þessari umr., og koma þar þá fram upplýsingar þær, sem fyrir liggja í máli þessu, m. a. athuganir n. þeirrar, sem starfaði að þessum málum á s. l. sumri. Ég vil vona, að n. leggi áherzlu á að hraða afgreiðslu þessa máls eftir föngum, því að æskilegt væri, að þingið gæti tekið afstöðu til þessa máls fyrir næstu mánaðamót.