24.11.1949
Sameinað þing: 4. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (3460)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Pétur Ottesen:

Í sambandi við till. þá, sem hér liggur fyrir, hefur verið vitnað til till. þeirrar, sem afgr. var á síðasta þingi. Hana bar harla einkennilega að. Hún kom fyrst fram rétt í lok þess, að fjárlög voru afgr., og þess vegna var ekki mögulegt að gera ráð fyrir þessum greiðslum á fjárlögum eða afla tekna til þeirra. Þrátt fyrir það, að þetta form var viðhaft, var till. samþ. Hér var þó nokkur vari hafður á af hendi hæstv. fjmrh. Ég man ekki betur, en að hann hafi sagt, að þessar greiðslur yrðu því aðeins inntar af hendi, að tekjur ríkissjóðs leyfðu, þ. e. a. s., að féð væri fyrir hendi. Ég held, að þetta hafi átt að skilja svo, að þetta yrði því aðeins greitt, að svo væri, en ekki ef það leiddi af sér skuldasöfnun. Nú er hæstv. ráðh. ekki við til þess að gefa upplýsingar um þetta, en það kemur sjálfsagt fram í n. og við meðferð málsins í þinginu síðar.

Það er upplýst af hv. 1. flm. og kemur fram í grg. frv., að búið er að greiða nokkru hærri upphæð, en till. gerði ráð fyrir, eða 5 millj. kr. í stað 4 millj. kr., og ef þessi till. verður samþ., nema greiðslurnar á þessu ári 6 millj. kr. Þetta hefur sem sagt valdið ríkissjóði 1 millj. kr. útgjöldum á mánuði, og líkur eru á því, að útgjöldin verði 6 millj. kr. á þessu ári í stað 4 millj. kr., eins og gert var ráð fyrir í till.

Ég vildi aðeins rifja upp það, sem var sérstakt við framburð till. á síðasta þingi, en það má líka segja um þá till., er hér liggur fyrir, að hún sé sérstæð að því leyti að ákveða á fjárframlög á næsta ári 1 millj. kr. á mánuði, áður en gengið er frá fjárlögum. Það er sérstæð ákvörðun að ákveða með þál. síðast á árinu útgjöld á fjárlögum árs, sem ekkert er farið að hreyfa við. Ég vil benda á þetta, til þess að vekja athygli á því, að framburður þessa máls er harla einkennilegur og óvenjulegur. Ég vil enn fremur benda á, að nú sýnast vera allskuggalegar blikur á lofti viðvíkjandi atvinnuvegum landsins. Það er ómaksvert að sjá, hvernig Alþ. tekst að leysa þau vandamál, áður en ákveðin eru milljóna króna útgjöld á næsta ári. Hér má til sanns vegar færa hin spaklegu ummæli Þórhalls Bjarnasonar: „Allur er varinn góður.“

Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um till. Ég lagðist á móti henni á síðasta þingi, vegna þess hvernig hana bar að. Afstaða mín til málsins nú mun koma fram í fjvn. og síðar hér á þingi, en ég teldi hyggilegt að sjá, hversu fer um rekstur atvinnuveganna, áður en hrapað er að því að afgr. stórar greiðslur úr ríkissjóði á næsta ári.