24.11.1949
Sameinað þing: 4. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í D-deild Alþingistíðinda. (3462)
25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna
Skúli Guðmundsson:
Í grg., sem fylgir þessari till., er til þess vísað, að fjmrn. hafi 9. júní s. l. skipað 5 manna nefnd til þess að rannsaka kaup og kjör starfsmanna ríkisins, með hliðsjón af þál. frá 18. maí. Þess er enn fremur getíð, hverjir skipaðir voru í n., og er það rétt, er þar hermir, að ég var einn nm. Vegna þátttöku minnar í n. um skeið, vil ég segja nokkur orð, þar sem ég vil gjarnan, að upplýsingar komi fram um starf n. — Það varð fljótt vart ágreinings í n. um það, hvernig eðlilegast væri að haga störfum. Fór svo, að það varð þess valdandi, að ég sagði mig úr n. Ég held, að mitt viðhorf skýrist bezt með því að lofa þm. að heyra bréf mitt til fjmrn., er ég sagði mig úr n., en það hljóðar svo:
„P. t. Reykjavík, 30. júní 1949.
Með bréfi fjármálaráðuneytisins, dags. 9. þ. m., var ég skipaður í nefnd til að rannsaka kaup og kjör starfsmanna ríkisins með hliðsjón af þingsályktun frá 18. maí s. l. um heimild fyrir ríkisstjórnina til að greiða uppbætur á laun opinberra starfsmanna.
Nefnd þessi kom saman til fyrsta fundar föstudaginn 10. þ. m., og hélt einnig fund næsta dag, 11. þ. m. Síðan var hlé á fundahöldum í nefndinni, en fundir hófust aftur laugardaginn 25. þ. m.
Þegar í byrjun nefndarstarfanna kom í ljós, að skoðanir nefndarmanna voru skiptar um það, á hvern hátt ætti að vinna að rannsókninni. Tillögur komu fram um þessar tvær aðferðir:
1. Reynt yrði að afla sem greinilegastra upplýsinga um tekjur annarra stétta, eins og þær eru nú, til samanburðar við þau kjör, sem ríkisstarfsmenn eiga við að búa.
2. Reynt yrði að finna, hverjar breytingar hafa orðið á tekjum einstakra stétta síðan launalögin gengu í gildi árið 1945.
Á fundi nefndarinnar í gær, miðvikudaginn 29. júní, var ákveðið af meiri hluta nefndarinnar. með skírskotun til samtals, er formaður nefndarinnar hafði átt við fjármálarh., að nefndin skyldi byggja starf sitt á þeim grundvelli, sem nefndur er í 2. tölul. hér að framan.
Formaður nefndarinnar hefur í samvinnu við forstöðumann reikningaskrifstofu sjávarútvegsins gert yfirlit um tekjur sjómanna á nokkrum vélbátum í öllum landsfjórðungum s. l. ár. Þá hefur nefndin og kynnt sér, hvað miklar tekjur bænda eru áætlaðar verðlagsárið 1. sept. 1948 til 31. ágúst 1949, samkvæmt úrskurði um verðlag landbúnaðarafurða, sem birtur er í búnaðarblaðinu Frey, septemberhefti 1948, bls. 291, og áætlun, sem þar er um árlegan vinnustundafjölda hjá þeirri stétt. Í framhaldi af þessum athugunum hef ég gert yfirlit um vinnustundafjölda allmargra starfsmanna hjá nokkrum ríkisstofnunum, byggt á fyrirmælum reglugerðar fjmrn. um vinnutíma starfsmanna ríkis og ríkisfyrirtækja frá 11. marz 1946 og upplýsingum frá viðkomandi stofnunum, og reiknað út, hve miklu laun þeirra samkvæmt launalögum nema á hverja vinnustund. Tel ég, að slíkar athuganir ætti að gera í fleiri starfsgreinum og stofnunum, þ. á m. hjá opinberum fyrirtækjum, sem greiða starfsmönnum laun eftir öðrum ákvörðunum en fyrirmælum launalaga. En vegna þeirrar ákvörðunar, sem nú hefur verið tekin um starfsaðferð nefndarinnar, tel ég þýðingarlaust að halda slíkum athugunum áfram í sambandi við störf þessarar nefndar.
Til þess að komast að réttri niðurstöðu um það, hvort starfsmenn ríkisins búi nú við lakari kjör en aðrir, tel ég óhjákvæmilegt að safna saman upplýsingum um tekjur þjóðfélagsstéttanna og njóta m. a. aðstoðar skattanefnda við þær rannsóknir. Ég tel mjög þýðingarmikið og aðkallandi, að slíkar athuganir verði gerðar og í framhaldi af þeim ráðstafanir til þess að koma á sem fyllstu réttlæti í skiptingu þjóðarteknanna. Á þessum grundvelli tel ég að nefndin hefði átt að starfa. En, eins og áður segir, hefur meiri hluti nefndarinnar, í samráði við fjmrh., valið aðra starfsaðferð, og þar sem ég tel, að sú starfsaðferð muni ekki leiða til réttlátrar niðurstöðu, sé ég mér ekki fært að taka frekari þátt í störfum nefndarinnar.
Þetta tilkynnist hinu háa ráðuneyti hér með. Virðingarfyllst.
Skúli Guðmundsson.
Til fjármálaráðuneytisins, Reykjavík.“
Og samkv. þessu hætti ég þá störfum í þessari nefnd. Ég vil í samræmi við þetta taka það fram, að ég hef ekki tekið þátt í þeim prósentuútreikningum um kauphækkanir hjá ýmsum stéttum, sem birtir eru í grg. þáltill., sem fyrir liggur. Ég er ekki þar fyrir að efa, að þetta sé allt rétt út reiknað. En ég vil bara benda á það, að það er ekki neinn óskeikull dómur fyrir því, að á þeirri stund, sem launalögin komu í gildi árið 1945, hafi verið svo fullkomið samræmi í tekjum allra þjóðfélagsstétta sem æskilegt væri og ætti að vera. Það er náttúrlega gott að hafa það á þessu blaði prentað, að á þessu tímabili hafi kaup sjómanna, sem hafa tryggðar lágmarkstekjur, hækkað um 50–60%. En mér virðist einnig mega athuga, hvaða kjör þeir verða að sætta sig við nú, þrátt fyrir þessar hækkanir á kauptryggingunni, samanborið við starfsmenn ríkisins og aðra, sem vinna í landi.
Ég vildi aðeins, að gefnu því tilefni, sem fram er komið í þessari þáltill., gera grein fyrir störfum nefndar þeirrar, sem nefnd er í grg. þessarar till. Ég ætla ekki á þessu stigi að segja neitt álit mitt á því, hvort réttmætt sé að greiða starfsmönnum þess opinbera kauphækkanir, en ég tel sjálfsagt, að það mál verði rannsakað sem bezt. Ég mun því greiða atkv. með því, að þessi till. fari til athugunar í þingnefnd. Það er þegar komin fram till. um, að hún fari til hv. fjvn. Ég tel sjálfsagt og skylt að athuga þetta mál sem vandlegast, og ég tel, að það sé ýmislegt, sem þar þurfi að athuga, t. d. skipti það nokkru máli, ef ákvörðun er tekin um kauphækkun til opinberra starfsmanna til bráðabirgða, hvernig kaupið er hækkað, hvort allir starfsmenn fá hlutfallslega jafna viðbót við sín laun, hvar í launastiganum sem þeir eru, og hvort rétt sé, að þessar uppbætur nái jafnt til þeirra starfsmanna þess opinbera, sem hafa miklar fjárhæðir fyrir aukavinnu, eins og hinna, sem sennilega eru fleiri, sem ekki hafa orðið þeirra fríðinda aðnjótandi. — Þessi orð vildi ég láta falla þegar við fyrri umr. Og ég geri ráð fyrir því, að ef hv. n. vildi kynna sér nánar en nú er frá skýrt starf þessarar nefndar frá í júnímánuði s. l. í einstökum atriðum, þá muni hún eiga þess kost.