28.11.1949
Sameinað þing: 5. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í D-deild Alþingistíðinda. (3471)
25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna
Gísli Jónsson:
Út af ósk hv. þm. N-Þ. skal ég lýsa yfir því, að n. mun gera sér far um að afla allra gagna, er til gagns mega verða, til þess að fá rétta ályktun. Hve langan tíma það tekur, get ég ekki sagt, en n. mun gera allt, sem unnt er til þess að málið fái fljóta afgreiðslu.
Út af því, er komið hefur fram, vil ég benda á það, að meðferð þessa máls setur fjvn. og Alþ. í vanda. Ef till. verður samþ., er hér farið inn á nýja braut. Fyrst eru launin hækkuð með fyrri till. og svo lögfest áfram með annarri till. Ég felli mig ekki við slíka afgreiðslu. Rök hv. 1. flm. og hv. 8. þm. Reykv. um, að aðkallandi sé að hraða málinu á örfáum dögum, fá ekki staðizt. Það má vera, að svo hafi verið í vor, um það skal ég ekki deila nú, en nú er auðveldara að fresta því, þar sem fólkið hefur fengið uppbætur í sex mánuði og stendur því betur að vígi, en ef það hefði ekki fengið þessa uppbót á síðastliðnu vori. Og það er sannarlega ekki tekinn af þeim neinn réttur, þó að málið sé látið fá þinglega meðferð, þegar nægur tími er fyrir hendi til þess að afgreiða málið, sem ekki var fyrir hendi á síðasta vori. Ég vil vekja athygli á þeirri hálu braut, sem verið væri að fara inn á, ef það ætti að gera það að venju á Alþ. að samþykkja launahækkanir til mikils hóps manna með einfaldri þál. Það er ekki verkefni Alþ. að fara þannig að, og er misskilningur hjá þeim, sem það vilja gera, að svona eigi að fara að. Ég held, að það stríði á móti ákvæðum stjskr. Og önnur hætta liggur í því einnig, ef fara á að á þennan hátt, sú, að það verði stórkostlega dregið á langinn að endurskoða launal. og fá samkomulag um ný launalög, sem séu sanngjörn, bæði fyrir þann, sem á að greiða, og þann, sem tekur á móti launum. Því að undir eins og ákvæði eins og þessi þál. væri komið í gegn hér á Alþ., að greiða stórkostlegar launauppbætur til þessara manna, sem hér um ræðir, þá mundu þeir betur sætta sig við, að launal. yrðu ekki endurskoðuð, a. m. k. ekki á þessu þingi. Af þeirri ástæðu m. a. mun ég sem form. þeirrar n., sem málið fer væntanlega í, leita mjög mikilla og nákvæmra upplýsinga um málið, áður en það verður afgr. frá n.
Út af því, sem hv. 8. þm. Reykv. (RÞ) sagði, að hún hefði talað fyrir sig sjálfa í þessu máli, en ekki fyrir Framsfl., þá þótti mér það reyndar líklegra, ekki aðeins vegna þess, sem fram hefur komið á þingi, heldur og utan þings við framboð til Alþ., því að þar var þetta eitt aðalmálið, sem þessi hv. þm. sem frambjóðandi gerði að kosningamáli hér í bænum. Henni var leyft að hafa það hér í bænum sem auglýsingamál fyrir kosningarnar, þegar flokkur hennar þarf ekki að nota það á annan veg sem áróðursmál úti um sveitir landsins.
En ég vil beina því til hv. 8. þm. Reykv., hvort hún treystir sér til þess, af því að hún benti mér á það, að ég hefði ekki rætt um þá lægst launuðu, heldur þá, sem hefðu getað krækt sér í einhverja aukabita, — hvort hún treystir sér til, sem einn ráðandi aðili í starfsmannafélögunum, að fá samkomulag um það að minnka þennan mismun, sem er í laununum á milli fólksins, sem lægst er launað, og þeirra, sem ég minntist á, og fá samkomulag um það í félögum þessum að minnka þennan mismun. Þegar launalögin, eða frv. til þeirra, voru rædd á þingi 1944, þekkti ég, hversu það er erfitt að fá samkomulag um það, hvar þessi eða hinn ætti að standa í launastiganum. Það voru þá jafnan kröfur frá þessum og hinum félagsskap um, að þessir og hinir starfsmenn fengju meiri laun en aðrir, sem voru fyrir ofan þá í launastiganum. Ætli það verði ekki það erfiðasta í sambandi við endurskoðun launal., að kröfurnar verða svo háværar um, að þessi og þessi vill fá meira en hinn, sem hann bendir á. Og æskilegt væri, að hv. 8. þm. Reykv. gæti lagt fram fullt samkomulag um það, að launþegar sætti sig við eitthvað sanngjarnt um það, hvar í launastiganum launþegarnir séu, hver fyrir sig. — Nákvæmlega er sama að segja um vinnustundafjöldann. Það var rætt um það hér, þegar um það var að ræða að bæta launakjörin, að launþegar ynnu í stað 35 stunda á viku 48 vinnustundir. En það var ekki við það komandi. En sá, sem ekki vill vinna nema 35 klst. á viku fyrir sínum launum, á ekki skilið að fá launahækkun. Það er mín skoðun, hvort sem hann er lágt eða hátt launaður, því að það á að vera gagnvart launahækkun fyrsta skilyrðið í þessu þjóðfélagi, að launþegarnir vilji taka á sig þá skyldu að vinna fyrir laununum.