19.12.1949
Sameinað þing: 11. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í D-deild Alþingistíðinda. (3481)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Með því að gerð var fyrirspurn um það hér á hæstv. Alþ. nú nýlega, hvað liði afgreiðslu þessa máls hjá fjvn., sem ég geri ráð fyrir, að hafi stafað af því, að hv. flm. hafi ekki þótt afgreiðsla málsins ganga nógu fljótt, þykir mér rétt að taka fram, að þessi till. var send til fjvn. 28. nóv. og tekin fyrir til umr. í n. strax næsta dag, samkv. beiðni hv. flm. Fjvn. þótti þó ekki gerlegt að afgr. málið fyrr en hægt væri að ræða það við hinn nýja hæstv. fjmrh., vegna þess, hversu mikil fjárútlát till. hefði í för með sér fyrir ríkissjóð, ef hún yrði samþ. hér á Alþ. N. aflaði sér ýmissa og margvíslegra upplýsinga um málið. M. a. fékk hún álit hinnar stjórnskipuðu nefndar, sem af ríkisstj. var skipuð til þess að gera rannsókn og samanburð á launum embættismanna, miðað við laun annarra starfsmanna í landinu. Einnig kynnti n. sér sérálit hv. þm. V-Húnv. (SkG), en hann var einn af nm. í þessari stjórnskipuðu n. Sömuleiðis kynnti fjvn. sér bréf, sem farið höfðu á milli viðkomandi aðila í sambandi við úthlutun uppbótanna. Og það hefur gengið nokkuð erfiðlega að geta fengið sumt af þessum upplýsingum, og skal skýrt frá því nokkuð síðar. Meiri hl. fjvn. sér ekki ástæðu til að birta þessi gögn sem fskj. með nál., því að það yrði töluvert stór bók og það mundi tefja fyrir afgreiðslu málsins, sem ljóst er, að hv. flm. liggur mjög mikið á, að afgreitt verði fyrir þingfrí, sem hefst fyrir jólin, og vænti ég, að hv. flm. taki það ekki sérstaklega sem andúð gegn málinu, að skjöl þessi hafa ekki verið birt með nál. En það mun verða vísað til þeirra hér í minni ræðu og notað ýmislegt, sem birt er í þeim skjölum, til stuðnings máli meiri hl. fjvn., og verður það látið nægja að kynna hv. þm. það þannig. — Þá var málið rætt við hv. fyrsta flm. þess og við form. stjórnar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og enn fremur við hæstv. núv. fjmrh.

Áður en farið er lengra í þetta mál, er nauðsynlegt að skýra hér nokkuð forsögu málsins og það allt fram á síðasta Alþ., þar sem málið var afgr. hér á mjög skömmum tíma, þ. e. a. s. þáltill. á þskj. nr. 800 á síðasta Alþ. Það var borin fram á því þingi þáltill. um þetta efni, sem ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa hér upp. Hún hljóðar svo :

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta nú þegar rannsaka, hvort rétt sé, að kaup og kjör starfsmanna ríkisins eftir launalögum séu nú mun lakari, en annarra starfsstétta vegna kauphækkana þeirra og kjarabóta eftir setningu launalaganna 1945, og ef svo reynist, heimilar Alþingi ríkisstjórninni að verja allt að 4 milljónum króna úr ríkissjóði til greiðslu uppbóta á laun starfsmanna ríkisins á yfirstandandi ári. Ríkisstjórnin ákveður í samráði við stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hverjir fái uppbætur greiddar og eftir hvaða reglum.“

Þessari þáltill. var útbýtt 17. maí og tillgr. samþ. við fyrri umr. með 27:20 atkv., en henni er 18. maí, þ. e. a. s. daginn eftir, vísað til síðari umr. með 28:8 atkv. Síðan er hún þann dag samþ. sem ályktun Alþ. með 26:22 atkv.

Það kom undir umr. fram till. um að vísa þessu merka fjárhagsmáll til fjvn., en sú till. er felld í Sþ. með 25:12 atkv. — Þetta er þá sú þinglega meðferð, sem þessi till. fékk á síðasta Alþ. og nú virðist kosta ríkið a. m. k. sex millj. kr. útgjöld á þessu ári og mundi, ef sama regla yrði framkvæmd áfram, e. t. v. kosta ríkissjóð 12–15 millj. kr. útgjöld á næsta ári.

En þetta er þó ekki nema hálfsögð sagan, því að við má bæta því hér, að þáv. hæstv. fjmrh. gerði við afgreiðslu þessarar þáltill. á síðasta vori svo hljóðandi grein fyrir atkv. sínu (með leyfi hæstv. forseta) :

„Út af þessari þáltill. vil ég taka þetta fram: Enda þótt ég sé því ósamþykkur, að þessi samþykkt sé gerð, mun ég mæla með því, að rannsakað verði, hvernig hagur og aðstaða launamanna ríkisins nú er og hvert réttlæti ríkir í kjörum þeirra í hlutfalli við hag annarra stétta. En um greiðslu þá, að upphæð 4 millj. kr., sem hér á að heimila, vil ég segja það sama og um flestar aðrar heimildargreiðslur, að hún verður því aðeins greidd, að í ljós komi, að hægt verði að greiða allar lögbundnar fjárlagagreiðslur, og það kemur að sjálfsögðu ekki til hlítar í ljós fyrr en seint á þessu ári.

Að öðru leyti tel ég Alþingi skylt að sjá fyrir nýjum tekjum til að standast þau útgjöld, sem af þessari þáltill. kann að leiða, og er ósamþykkur því, hvernig málið hefur að borið, og ósamþykkur þeim hætti í launamálum, sem hér er upp tekinn. Ég segi því nei.“

Á þessu sést, að meðferð málsins frá upphafi hefur verið mjög óþingleg. Og þegar vitað er, að hálf hæstv. ríkisstj. var á móti till., meiri hl. hv. fjvn. var á móti henni og svo sjálfur hæstv. fjmrh. á móti henni og aðeins sextán hv. þm. af stjórnarliðinu, þ. e. af þeim hv. alþm., sem studdu fyrrv. ríkisstjórn, af þeim 42, sem fulla ábyrgð báru á afgreiðslu fjárl., eru með þáltill., þá er furðulegt, að hæstv. fjmrh. skyldi yfirleitt taka ályktunina alvarlega, því að honum sem öðrum var fullljóst, að till. var samþ. með fylgi óábyrgasta hluta hv. þm. hér á Alþ., þ. e. a. s. stjórnarandstöðunnar, sem enga ábyrgð bar á afgreiðslu fjárlaga eða fjárhag ríkisins yfirleitt.

Ég vil í sambandi við þetta leyfa mér að benda á, að þessi sami þingflokkur, þ. e. a. s. Sósfl., bar fram á þessu þingi, sem þá var um að ræða, við afgreiðslu fjárl. brtt. við fjárlagafrv., sem námu um 13 millj. kr. útgjöldum. Og hæstv. þáv. fjmrh. taldi það þá svo mikið ábyrgðarleysi, að slíkt gæti ekki hent neinn flokk á þinginu nema Sósfl. Margar af þessum till. voru þó allt í senn miklu nauðsynlegri, miklu réttlátari og miklu skynsamlegri en till., sem samþ. var 18. maí s. l. um launauppbótina. Þótt ég hafi hér minnzt á Sósfl. sem óábyrgasta þingflokkinn, með tilliti til þess, að hann var þá einn í stjórnarandstöðu, mega hv. þm. þó ekki skilja orð mín þannig, að allir hv. þm. þessa flokks séu óábyrgustu þm. í afgreiðslu mála á Alþ. yfirleitt. Þar geta komið til greina ýmsir aðrir hv. þm., sem geta gengið enn lengra í ábyrgðarleysi í þeim málum.

Þegar vitað var um þessa afgreiðslu þessa máls á Alþ., þál. frá 18. maí s. l., þá var ekki nema eðlilegt, að allur sá fjöldi hv. þm., sem var á móti málinu, og allur sá fjöldi skattborgara í landinu, sem réttilega töldu, að með þessu væri verið að torvelda lausn dýrtíðarmálanna, þættist mega örugglega treysta því, að uppbótargreiðslurnar á þessi laun yrðu ekki látnar fara fram, fyrr en eftirfarandi atriði hefðu verið stranglega uppfyllt:

1) Að rannsókn hefði farið fram á því, hvernig kaup og kjör starfsmanna ríkisins væru, og að sú rannsókn hefði sýnt, að kjör þeirra væru nú mun lakari, en annarra starfsstétta vegna kauphækkana þeirra og kjarabóta síðan launalögin voru sett 1945. Og ákveðið var í þál., sem gerð var um launauppbæturnar 18. maí s. l., að þetta væri frumskilyrði fyrir því, að heimilt væri að greiða nokkurn hlut úr ríkissjóði í uppbætur samkv. ákvörðun þingsins og fyrirmælum þessarar þál.

2) Að full vissa lægi fyrir um það, að afkoma ríkissjóðs yrði þannig í lok þessa árs, að greiðslujöfnuður á ríkisreikningnum yrði sem næmi þeirri upphæð hagstæður, sem áætluð var í till. til launauppbótanna. Þetta var annað frumskilyrðið fyrir því, að nokkuð mætti greiða út samkv. þál. þessari.

3) Að fyrir lægju till. frá stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um það, eftir hvaða reglum skyldi greiða uppbæturnar.

4) Að aldrei yrði greitt meira á árinu 1949 í þessar uppbætur en þær fjórar millj. kr., sem teknar voru upp í þál.

Þessi fjögur atriði voru í raun og veru öll meginskilyrði fyrir því, að hægt væri að greiða nokkurt fé samkv. þessari till. Mér þykir nú rétt að athuga hér, á hvern hátt framkvæmdin hefur orðið á þessu hjá hæstv. fyrrv. ríkisstjórn.

Þann 9. júní s. l. skipar fjmrn. fimm manna nefnd til þess að rannsaka kjör starfsmanna ríkisins samkv. ákvæðum þál., og skilaði sú nefnd áliti 5. júlí s. l. Undirrita fjórir nm. álitið, en einn nm. hafði sagt sig úr n., vegna ágreinings um starfsgrundvöll, er n. starfaði á, og var það hv. þm. V-Húnv. (SkG), sem ekki gat orðið hinum nm. sammála um þetta, eins og þegar hefur verið tekið fram. Strax í upphafi greindi nm. nokkuð á um það, hversu skilja ætti orðalag þál., og hafði það nokkur áhrif á gagnaöflun n. og störf hennar. En að lokum úrskurðaði svo hæstv. fjmrh., að n. skyldi miða starf sitt við að rannsaka breyt. þær, sem orðið hefðu á kaupi og kjörum hinna ýmsu starfstétta frá því að launalögin voru sett, til þess að komast að raun um það, hvort og hve mikið kjör opinberra starfsmanna hefðu rýrnað samanborið við aðrar stéttir, enda var n. þessari ekki ætlað að endurskoða grundvöll launal., heldur skyldi að svo stöddu ganga út frá því, að hlutföllin hefðu verið eðlileg á milli launa og kjara opinberra starfsmanna annars vegar og kjara annarra stétta hins vegar, og eru niðurstöður þessarar stjórnskipuðu n. byggðar á þessum grundvelli.

Þegar litið er á ummæli hæstv. þáv. fjmrh. undir umr. um þessa þáltill. um launamálin, sem samþ. var á síðasta vori, og á afstöðu hans við atkvgr. um þá till., og þó einkum á tillgr. sjálfa, er þessi úrskurður hæstv. fjmrh. lítt skiljanlegur. Tillgr. kveður alveg skýlaust á um það, að rannsaka skuli „hvort rétt sé, að kaup og kjör starfsmanna ríkisins, eftir launalögum séu nú mun lakari, en annarra starfsstétta, vegna kauphækkana þeirra og kjarabóta eftir setningu launalaganna 1945.“ Og ef svo reynist, er ríkisstj. heimilað að greiða hina tilskildu upphæð. Hér mátti því einmitt ekki ganga út frá því, að órannsökuðu máli, að hlutföllin í þessum efnum hefðu verið eðlileg, þegar launal. voru sett 1945, enda er vitað, að vegna setningar launal. kom fram kapphlaup á milli ýmissa stétta í þjóðfélaginu um kauphækkanir til samræmingar m. a. við þá menn, sem tóku laun eftir hinum nýju launal. Nægir í því efni að benda á kjarabætur þær, sem kennarastéttin fær með þessum lögum. Hinn gífurlegi launamunur á milli starfsstéttanna síðan 1945, sem samkv. skýrslu milliþn. er frá 4,48% og upp í 43,29%, sýnir langbezt, að hlutföllin innbyrðis á milli stéttanna í þjóðfélaginu hafa engan veginn verið talin eðlileg, og þá ekki heldur borið saman við launakjör starfsmanna ríkisins. Þetta er skýrasta sönnunin fyrir því, að grundvöllurinn, sem n. byggir störf sín á, er gersamlega rangur í þessu sambandi, og að það mátti ekki byggja á þessum úrskurði, ef átt hefði að byggja á sanngjörnum úrskurði. Hitt verður að játa, að þáltill., sem samþ. var í vor s. l., var klaufalega orðuð, þar sem sagt er „vegna kauphækkana þeirra og kjarabóta. . .“ o. s. frv., þar sem hefði átt að standa: þrátt fyrir kauphækkanir þeirra o. s. frv., þannig að það hefði átt að miða við það, hvernig launakjörin væru nú, samanborið við aðrar stéttir, en ekki, hvernig þetta var 1945, miðað við aðrar stéttir. Grundvöllur sá, sem n. byggir á störf sín og niðurstöður, samkv. úrskurði hæstv. ráðh., er því að mínu áliti algerlega rangur og í engu samræmi við fyrirmæli ályktunar þeirrar, sem samþ. var 18. maí s. l. um launauppbætur.

En auk þessa þá er samanburður sá, sem n. gerir, á mörgum sviðum mjög villandi, bæði hvað snertir kaup og þó einkum kjör stéttanna, eins og hér skal sýnt fram á með eftirfarandi dæmum.

1) Hækkun á tímakaupi, vikukaupi og mánaðarkaupi er reiknað á hvern einstakling ákveðinna félaga, en ekki á hvern flokk, og kemur við það út nokkru hærri hundraðshlutatala, en ef hver flokkur væri reiknaður út, sem sýnist vera sú eina rétta aðferð. Auk þess eru allir útreikningar miðaðir við Reykjavík eina, eins og enginn staður sé til á landinu nema Reykjavík, en ekki við allt landið, sem hefði þó verið eðlilegast.

2) Gengið er út frá því, að stéttir þær, sem laun taka, hafi trygga vinnu, á sama hátt og starfsmenn ríkisins, en fyrir því er þó engin trygging. Hins vegar er ljóst, að hver vinnustund sem niður kann að falla, dregur meðalkaupið niður og lífskjörin, og því meir sem þær eru fleiri. Sýnist því hér ekkert tillit tekið til þess öryggis, sem starfsfólk ríkisins hefur fyrir tekjum sínum. Og ekki sízt þar sem nú þessi hætta er miklu, miklu meiri fyrir vinnandi stéttir í landinu, sem ekki eru í föstu starfi, heldur en áður, mátti ekki ganga fram hjá þessum stórkostlega aðstöðumismun stéttanna í þjóðfélaginu.

3) Nefndin getur þess að vísu, að vinnutíminn sé styttri hjá starfsmönnum ríkisins en hjá sambærilegum starfsmönnum hjá einstaklingum eða félögum, en getur þó ekki um vinnutímahlutföllin á milli þeirra. En hvers vegna ekki? Það er af því, að hún af ásettu ráði gefur skýrslunni þann blæ, að það verði sem minnst dregið fram, að starfsmenn ríkisins taka tilsvarandi launaupphæðir samanborið við aðrar stéttir í landinu fyrir vinnu, sem tekur styttri tíma en aðrar stéttir í landinu þurfa til þess að vinna fyrir sömu upphæðum. Hins vegar sést í nál. launamálanefndar starfsmannafélags ríkisstofnana, að vinnutíminn hjá starfsmönnum ríkisins er allt að 8% styttri en hjá fyrr nefndum aðilum, sem ekki taka kaup hjá ríkinu. Starfsmenn ríkisins hafa þá um 8% hærri laun, sem verður vegna hins stutta vinnutíma. En þetta gefur ekki milliþn. upp í sínu nál.

Þá er einnig bent á, að eftirvinna sumra starfsmanna ríkisins sé svo mikil, að lágt launaðir starfsmenn komist upp fyrir hátt launaða starfsmenn, vegna eftirvinnunnar, án þess þó að þurfa að vinna jafnlangan eða lengri vinnutíma. Er þetta nú einskis virði, þessi kjör hjá starfsmönnum ríkisins, þegar því er slegið föstu af rannsóknarnefndinni, að lágt launaður maður geti vegna eftirvinnu þannig komizt í heildarlaunum langt upp fyrir hátt launaðan mann, þegar allt er reiknað, hvað hann tekur í laun? Þetta er í nál., og geta hv. þm. fengið að lesa þessi gögn, ef þeir vilja, og m. a. hv. fyrsti flm. þáltill. — Er þetta ekki látið hafa nein áhrif á útreikning n. til samanburðar á laununum.

4) Ekkert tillit er tekið til þess, að starfsmenn ríkisins njóta eftirlauna, og oft miklu meiri en lög mæla fyrir um, jafnskjótt og þeir af einhverjum ástæðum geta ekki sinnt störfum, og enn fremur, að fjölskyldur þeirra halda þessum fríðindum oft langt fram yfir fráfall starfsmannsins. Er þetta mikið öryggi, sem þó kostar ríkissjóðinn nú yfir 5 millj. kr. á ári. Þó er í engu miðað við þetta eða tekið tillit til þessa í þeim samanburði, sem ég ræddi um, bókstaflega gengið fram hjá því.

5) Nefndin telur, að kaup bóndans hafi frá 1944 til 1948 hækkað um 43%. Þessi samanburður er fullkomlega villandi. Hvað sem líður afurðaverði landbúnaðarins, sem sett er með hliðsjón af því, að meðalbú skili ákveðnum tekjum til bóndans, þá eru hinar raunverulegu tekjur hans engu síður undir því komnar, hvernig árferðið er hverju sinni, skepnuhöld, grasspretta, sól, vindar o. fl., og er ljóst, að ef þetta allt er honum meir eða minna óhagstætt, þá nær hann alls ekki þeim tekjum, sem miðað er við í nál. Hefur þetta komið einna skýrast fram á yfirstandandi ári. Hins vegar gengur n. alveg fram hjá því að bera saman laun bóndans, miðað við meðalbú, vinnustundafjölda og afurðaverð bæði fyrr nefnd ár, við laun og vinnustundafjölda starfsmanna ríkisins. En sé þetta athugað, þá er bóndanum áætlað kaup, sem svarar kr. 8,40 á klst. árið 1948, en starfsfólki ríkisins samkv. XIII. launaflokki — en það er það fólk, sem greitt er 5.400 kr. í grunnlaun — er þó greitt án launauppbótarinnar, sem hér er talað um, kr. 8,82 á klst., eða m. ö. o. um 40 aurum hærra kaup á hverja klst. en reiknað er með, að bóndinn fái á klst. Og þessi flokkur manna, sem tekur þessi laun hjá ríkinu, stundar a. m. k. áhættulausa atvinnu, hvað öryggi teknanna snertir, en slíkt er ekki til staðar viðkomandi landbúnaðinum. Starfsmaður ríkisins, sem hér er um að ræða, tekur sín laun fyrir 35½ klst. vinnu á viku og hefur þó möguleika til þess að geta í heildartekjum komizt upp fyrir hátt launaðan embættismann, eins og tekið hefur verið fram. Verður þetta þó enn skýrara, hve fráleitur þessi samanburður er, þegar athugað er, að á árinu 1944 var tímakaup bóndans kr. 5,87, miðað við kr. 1.6031.00 árstekjur, og var þá reiknað með 9,1 klst. vinnu á dag í 300 daga, eins og lagt er til grundvallar í skýrslunni. Sýnir þetta bezt, hvílík fjarstæða það er að nota þennan samanburð sem ástæðu til að krefjast launahækkunar fyrir starfsmenn ríkisins. Ég vil spyrja hv. þm.: Þekkir nokkur hv. þm. til þess, að nokkur meðalbóndi á landinu geti náð því að leggja þetta, sem miðað hefur verið við sem meðaltekjur hans, fram frá meðalbúi, með því að vinna 9,1 klst. á dag í aðeins 300 daga og með því að vinna aldrei næturvinnu? Ég fullyrði, að það sé ekki hægt. Og þó breytist þetta enn þá meira frá áætlun n. gagnvart þeim mönnum, sem ég vil taka nú til samanburðar.

6) Nefndin tekur réttilega fram, að erfitt er að gera samanburð á launum starfsmanna ríkisins annars vegar og launum sjómanna hins vegar, og hafa togarasjómenn þar sérstöðu, sem skapast af tveimur meginástæðum. Fyrst vegna áhættuþóknunarinnar, sem var greidd löngu eftir að áhættan, sem hún var miðuð við, var horfin, og áhættuþóknunin var því þá orðin hluti af launum þessara manna, sem ekki reyndist gerlegt að draga úr, meðan togararnir græddu stórfé. Hin ástæðan er sú, að nýju skipin gáfu togarasjómönnunum miklu hærri tekjur en gömlu skipin, þótt farið væri eftir óbreyttum kjörum um premíu og lifrarhlut. Hafa tekjur togarasjómanna verið allt aðrar og miklu lakari á hinum gömlu skipum, og það svo, að svo að segja ógerlegt hefur verið að fá menn á þau af þeim ástæðum. Skýrsla sú, sem n. birtir um tekjur sjómanna á nýju togurunum, er þó tekin í samanburð n. til þess að sýna, hve langt togarasjómenn séu í tekjum fyrir ofan þá, sem taka laun hjá ríkinu, jafnvel hvaða launaflokk sem miðað er við. Hér er þá sérstöðu um að ræða, að ekki var sæmandi fyrir milliþn. að láta sér detta í hug að taka þetta atriði til að hafa til samanburðar í þessu efni.

Um samanburð á launum hlutarsjómanna við laun starfsmanna ríkisins er allt öðru máli að gegna. Þar er kauptryggingin lögð til grundvallar og sýnt fram á, að hún hafi á síldveiðum hækkað um 44,5% og á togveiðum um 62,5%. Hlutaskiptin hafi hins vegar ekkert breytzt. Að vísu er tekið fram í nál., að tryggingin komi ekki fram sem beinar kjarabætur, en þó jafnframt fullyrt, að einu vísbendinguna um raunverulegar kjarabætur sé að finna í kauptryggingunni og hlutaskiptunum. Og hvers vegna er þetta tekið svona fram? Það er til þess í þessu atriði að gefa skýrslunni þann blæ, að þessar stéttir hafi fengið stórkostlegar hækkanir launa sinna. Eðlilegast hefði verið að bera hér saman meðalhlut 1945 og kauptrygginguna 1948, ef hún var hærri en meðalhlutur það ár, þar sem hlutaskiptin eru óbreytt. En þetta er ekki gert. Heldur er með fyrr nefndum samanburði látið líta svo út, að hér hafi átt sér stað stórfelldar kjarabætur.

Ef athugað er yfirlit yfir hásetahlut á öllu landinu 1948, kemur í ljós, að meðalhlutur er talinn kr. 14.320,80, miðað við 185 úthaldsdaga. Er þetta samsvarandi kr. 8,50 tímakaupi, ef reiknað er með 9,1 vinnustund á dag, eða sama tíma og bændum er áætlaður. Ber þá hér að sama brunni, að þessir menn, sem stunda þessa áhættusömu og erfiðu atvinnu, eru miklu verr settir, en starfsmenn ríkisins í XIII. flokki. Auk þess er vitað, að þótt úthaldsdagarnir séu taldir 185, þá fer mikill tími hjá sjómönnum til einskis, til þess að komast að og frá skipi eða að komast í aðra atvinnu. Þess utan treystir sér víst enginn til þess að halda því fram, að vinnutími þessara manna sé aðeins 9,1 klst. á dag og það ávallt í dagvinnu. Það er alls ekki svo, — ef þeir menn, sem þekkja lítið til útgerðar, halda það, — að þessir menn, sem á sjónum vinna, geti alltaf stokkið í land, þegar kominn er 9,1 klst. vinnutími í dagvinnu hvern dag, eða geti látið vera að fara á sjóinn fyrr en kominn er dagvinnutími. Það er því alveg sjáanlegt af þessum samanburði, að þessi flokkur manna þarf miklu frekar kjarabætur en starfsmenn ríkisins, í hvaða flokki sem þeir eru.

7) Nefndin gerir einnig samanburð á kjörum farmanna milli áranna 1942 og 1948 og telur kaup þeirra hafa hækkað um 42% og síðar með nýjum samningi um 8%. Þessi samanburður er mjög villandi, vegna þess að miðað er við allt annað tímabil. Auk þess er vitað, að tekjur togarasjómanna hafa ávallt nokkur áhrif á kjör annarra farmanna, en ástæðum fyrir þeim kjörum hefur verið lýst hér að framan.

8) Nefndin hefur kynnt sér kjör starfsmanna í ríkisstofnunum, sem starfa utan ramma launal., og kjör starfsmanna hjá Reykjavíkurbæ, og kveður þar enga launahækkun hafa orðið síðan 1945. Og þetta var eini samanburðargrundvöllurinn, sem nefndin mátti vinna á. En þar kom í ljós, að í sambærilegum stofnunum við störf hjá ríkinu höfðu engar launahækkanir orðið. Benda þessar niðurstöður til þess, að enginn grundvöllur hafi verið fyrir því að greiða launauppbætur samkv. þál. En bærinn kom svo með launauppbætur á eftir, þegar vitað er, að ríkið hefur gengið þarna á undan. Þá var honum ekki stætt á öðru, en að koma með launauppbætur samkv. till, sem fram voru komnar í málinu, sem voru samkvæmt aðgerðum ríkisins með samþ. og framkvæmd till. um launauppbætur, þannig að óbeinlínis hefur þessi þál. og framkvæmd hennar orðið til þess, að laun starfsmanna Reykjavíkurbæjar hafa hækkað einnig.

9) Nefndin hefur einnig fengið upplýst, að V. R. hafi samið um launahækkun 1948 til samræmingar með hliðsjón af kjörum ríkisstarfsmanna. Sýnir þetta bezt, að þessir menn, sem þarna fengu launabætur, hafi álitið kjör sín lakari, en kjör starfsmanna ríkisins, enda er yfir lýst, að þessir starfsmenn muni gera kröfur um hærri laun, þegar vitað er, hvað þingið vill greiða í viðbót til opinberra starfsmanna. Þannig að hjólið er komið af stað, og verður ekki stöðvað, ef þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, er samþ.

10) Niðurstaða n. er, að hlutfallið milli launa ríkisstarfsmanna og annarra starfsstétta frá setningu launal. hafi raskazt verulega, ríkisstarfsmönnum í óhag. Hún telur því eðlilegt, að ríkisstarfsmenn fái einhverjar kjarabætur. En henni dettur ekki í hug að taka þá ábyrgð á sig að segja til um það, hvað hún teldi, að þær ættu að verða, vegna þess að hún vissi, að allur grundvöllurinn undir áliti hennar var rangur. Þess vegna gerir n. ekki till. um, hvernig launauppbótunum skuli vera fyrir komið.

Mér hefur þótt rétt að skýra þetta nokkuð hér, m. a. til þess að sýna, að fjvn. hefur aflað sér ýmissa gagna í málinu, áður en hún skilaði áliti. Og ég vona, að hv. þm. álasi ekki fjvn. — ekki heldur sá hv. þm., sem gerði fyrirspurn um, hvenær þetta mál kæmi frá n. — fyrir það, þó að hún þyrfti nokkurn tíma til þess að afla þessara gagna. Og full ástæða hefði verið til að taka miklu lengri tíma til þess að afla meiri gagna í þessu máli. En einmitt vegna þess mikla áhuga, sem hefur verið á því hjá sumum hv. þm. að taka á sig þessa fjárhagslegu ábyrgð fyrir ríkisins hönd, og það einmitt nú fyrir jól, hef ég ekki viljað halda málinu inni, en skila því heldur með þeim upplýsingum, sem ég gat skilað.

Ég ræddi sem form. fjvn. um öll þessi atriði við hv. 1. flm. þáltill. og formann stjórnar Bandalagsins og sýndi þeim fram á, að rannsóknin, eins og hún var framkvæmd, gæfi á engan hátt rétta hugmynd um kjör og kaup starfsmanna ríkisins, miðað við kjör og kaup annarra stétta. Töldu þeir, að það atriði væri þessu máli óviðkomandi. Hitt væri kjarni málsins og samkv. orðalagi þál., að fá það upplýst, hve mjög aðrar stéttir hefðu bætt kjör sín eftir 1945 á meðan kjör starfsmanna ríkisins væru óbreytt. Skal þetta athugað nánar.

Sannleikurinn er sá, að það þarf ekki lítil brjóstheilindi til að halda svona fjarstæðu fram, að það þyrfti að samþ. um það þáltill. að setja upp fimm manna nefnd til þess að rannsaka, hve mikið hafi hækkað föst laun annarra starfsmanna síðan 1945. Þetta var hægt að fá upplýst á einum degi. En það, sem lá á bak við samþykkt þessarar þáltill., var það, að ætlunin var, að rannsakað yrði, hvort kjör starfsmanna ríkisins væru það miklu lakari en annarra starfsstétta þjóðfélagsins, að ástæða væri til þess að greiða þeim það, sem hér var um að ræða. Ekkert annað gat legið á bak við orðalag till.

Af þessu er ljóst, að frumskilyrðið fyrir greiðslu uppbótanna er aldrei uppfyllt, og vísa ég þar m. a. til yfirlýsingar þáv. hæstv. fjmrh. við atkvgr. um þáltill., sem ég þegar hef lesið hér upp.

Eftir því sem nú er vitað, var fyrsta uppbótagreiðslan látin fara fram 1. ágúst síðastliðinn, og síðan hafa allar þær 4 millj., sem ræðir um í þál., verið greiddar. Fjvn. þótti því rétt og skylt að afgreiða ekki till. þá, sem hér er til umr., frá sér fyrr en hún hefði fengið tækifæri til að ræða við núv. hæstv. fjmrh. um till. og m. a. um afkomu ríkissjóðs á þessu ári og hvernig væri hugsað fyrir nýjum tekjustofnum á næsta ári á móti þessum nýju, óvæntu útgjöldum. Mætti hæstv. ráðh. hjá fjvn. þann 13. þ. m. Voru þar lagðar fyrir hann eftirfarandi spurningar (með leyfi hæstv. forseta):

1) Telur hæstv. fjmrh., að hægt sé að greiða þau útgjöld, sem samþ. þáltill. á þskj. nr. 29 hefur í för með sér fyrir ríkissjóð, af tekjum ríkisins á yfirstandandi ári?

2) Ef ekki, mun þá hæstv. fjmrh. taka við þál. og framkvæma hana, ef hún verður samþ., nema jafnframt að afla sér heimilda til nýrra tekna til þess að mæta þessum útgjöldum?

Hæstv. fjmrh. vildi ekki svara þessu fyrirvaralaust hjá fjvn. og óskaði eftir fresti. Næsta dag, þann 14. des., afhenti hann mér svo hljóðandi svör:

„Ég get ekki á þessari stundu gefið yfirlýsingu um það, hvort ríkissjóður getur greitt þetta af tekjum þessa árs frekar en aðrar aðkallandi kvaðir.“ Þetta er svarið við fyrri spurningunni. Við þeirri síðari var svarið: „Stefna ríkisstjórnarinnar er að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög og auka ekki skuldir ríkisins. Ef þingið samþykkir tillöguna eða aðra bráðabirgðalausn á þessu máli, mun stjórnin taka við tillögunni og síðan bera fram tekjuauka, ef með þarf til afgreiðslu hallalausra fjárlaga.“

Þetta er stefna ríkisstj., að afgr. greiðsluhallalaus fjárlög og auka ekki skuldir ríkissjóðs. En af þessu er það að öðru leyti ljóst, að þann 14. des. s. l. veit hæstv. fjmrh. ekki enn, hvort frumskilyrðið fyrir því að greiða út uppbótina á laun opinberra starfsmanna er fyrir hendi, uppbótina, sem þó er byrjað að greiða 1. ágúst. Ekki veit ég nú, hvort hæstv. fjmrh. getur gefið þinginu upplýsingar nú í dag um það, hvernig fjárhagur ríkissjóðs er eða hvort hagur ríkissjóðs er þannig, að ríkissjóður geti greitt þetta af tekjum, þannig að greiðslujöfnuður verði ekki óhagstæðari 1949, þó að þetta sé greitt allt, eins og tilskilið er með þáltill., ef hún verður samþ. nú, heldur en ætlazt var til að hann yrði, þegar fjárl. voru afgr., en það var alltaf annað frumskilyrðið fyrir því, að greiða mætti út uppbætur eftir þál., sem samþ. var á s. l. vori. Síðan hæstv. fjmrh. gaf þessi svör, eru nú liðnir fimm dagar. Og þar sem frétzt hefur, að hæstv. fjmrh. ætli sér næsta dag að flytja framsöguræðu fjárl., þá þykir mér líklegt, að hann sé kominn það vel inn í þetta mál, að hann geti gefið hæstv. Alþ. upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á þessu ári, því að á því á það að velta, hvort þessi þáltill, verður samþ. eða felld. Ég leyfi mér því að endurtaka hér undir umr. þessa fyrri spurningu fjvn. og vænti þess, að hæstv. fjmrh. svari henni nú, með tilliti til hinnar nýju þekkingar, er ég tel víst, að hann hafi nú öðlazt um afkomu ríkissjóðsins á yfirstandandi ári. En spurningin er: Telur hæstv. fjmrh., að hægt sé að greiða þau útgjöld, sem samþ. þáltill. á þskj. nr. 29 hefur í för með sér, af tekjum ríkissjóðs á yfirstandandi ári? Ég hef ekki haft ástæður til að kynna mér vitneskju hæstv. fjmrh. um þetta nú, en vil þó leyfa mér að benda á, að hér á laugardaginn lýsti hæstv. forsrh. yfir í sambandi við annað mál sem hér segir:

„Þær upplýsingar um ástandið, sem ég hef átt kost á að fá eftir frumheimildum, eftir að ég kom í ríkisstjórn, draga upp svo dökka mynd, að ég tel ekki hægt fyrir ríkisstjórnina í dag og ekki fyrr en hún hefur fengið hæfilegan umhugsunarfrest, eftir að kröfur frystihúseigenda einnig liggja fyrir, að kveða á um, hvort auðið verði að bera fram bráðabirgðalausn sem undanfara þeirra tillagna um grundvallarbreytingar, sem ríkisstjórnin vinnur að undirbúningi að, eða hvort biða verður þessara grundvallarbreytinga.“

Þessi yfirlýsing hæstv. forsrh., þremur dögum síðar, en hæstv. fjmrh. svarar fjvn., bendir til þess, að fjárhagsástandið hjá ríkissjóði í dag sé ekki þannig, að það sé neitt sérlega bjart yfir því. Ég geri ráð fyrir, að þessi ummæli séu byggð á upplýsingum frá fjmrn., og það er því ástæða til að stinga við fótum og hugsa sig vel um, áður en þáltill. þessi verður samþ., ef nokkuð má marka það, sem kemur fram í þessari yfirlýsingu. Og ég þekki þá hæstv. forsrh. illa, ef hann lætur slíkt uppi við hæstv. Alþ.. — ef hann hefur ekki mjög mikil gögn í höndum — án þess að ástandið sé allt annað en það, að hægt sé að taka á ríkissjóðinn þá gjaldakvöð, sem hér er um að ræða. Þetta, sem hæstv. forsrh. sagði og ég gat um, er sagt þremur dögum eftir að hæstv. fjmrh. svaraði, eins og ég gat um áðan. En þá liggur líka fyrir um þetta í dag vitneskja, sem ég vænti, að hæstv. fjmrh. gefi þinginu upplýsingar um, áður en frestað verður fundi.

Það er ljóst af þessu, að hæstv. fjmrh. veit ekki þ. 14. þ. m., hvort tekjur ríkissjóðs fari það langt fram úr gjöldunum á yfirstandandi ári, sem nemur útgreiddum upphæðum launauppbótanna. En vitneskjan um það var frumskilyrðið fyrir greiðslu uppbótanna. Og séu þessar nýju upplýsingar nokkuð nærri sanni, þá verð ég að telja það alveg óverjandi af fyrrv. hæstv. ríkisstj. að hafa greitt launauppbæturnar svo sem gert hefur verið, og því meira ábyrgðarleysi af Alþ. nú að samþ. þáltill. á þskj. 29, eins og hún liggur nú fyrir.

Ég hef undir meðferð málsins reynt að fá það upplýst, hverjar hafi verið tillögur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um skiptingu á launauppbótafénu og hvort það sé eftir till. eða kröfu frá því, að greitt hefur verið 20% á laun allra starfsmanna ríkisins. Eftir ýmsum krókaleiðum hefur mér tekizt að fá eftirfarandi upplýsingar, sem ég vil ekki baka ábyrgð á, að séu réttar. Ég hef orðið að fara krókaleiðir til þess að fá þetta upplýst.

1) Stjórn Bandalagsins samþykkir að gera till. um, að uppbæturnar verði greiddar á laun allra starfsmanna ríkisins. Þetta veigamikla atriði mun þó ekki vera tilkynnt bréflega til ríkisstj., og er það furðulegt, þar sem þetta er eitt af skilyrðunum fyrir greiðslu uppbótanna í þál. frá 18. maí s. l. Þær upplýsingar hef ég frá stjórn B. S. R. B., að þeir í Bandalaginu hafi aldrei gert þessar till. skriflega. M. a. vegna þess, að ekkert liggur skjallegt fyrir um þetta atriði, hvort Bandalagið hafi ætlazt til þess, að greidd væri uppbót á öll laun ríkisstarfsmanna, þá liggur ekkert fyrir um það, hvort Bandalagið ætlast til þess, að greidd sé uppbót á laun þessara manna fyrir aukastörf. Er t. d. ætlazt til þess, að þessi uppbót verði greidd á laun lækna, sem taka meira en einföld laun? Í landinu er talsvert af læknum, sem gegna fleirum en einu læknishéraði. Héraðslæknirinn á Ísafirði gegndi t. d: Hesteyrarlæknishéraði ásamt Ísafjarðarlæknishéraði. Hann sat á tvennum fullum launum. Er ætlazt til þess, að full uppbót sé greidd á slík laun? Það liggur ekkert fyrir um það í þessum gögnum, sem fjvn. hefur aflað sér. Sama gildir um yfirsetukonur. Þær hafa að vísu ekki há laun. En ef þær gegna fleirum en einu umdæmi, á þá að greiða þeim fulla uppbót á öll laun, sem þær taka? Og hvað um presta? Ef þeir gegna tveimur prestaköllum, fá þeir hálf önnur laun. Er það hugsað, að þeir fái í þeim tilfellum uppbót á öll sín laun? Og hvað um ýmsa nefndarmenn, sem vinna t. d. í þágu Búnaðarfélags Íslands o. fl.? Þar hafa ýmsir menn hálf laun, m. a. menn, sem vinna í Atvinnudeild háskólans. Kennari á Hvanneyri hefur full laun sem kennari og svo auk þess hálf laun hjá Búnaðarfélagi Íslands. Og það úir og grúir í ríkisrekstrinum af starfsmönnum, sem taka laun á líkan hátt og þessir, sem ég nú hef nefnt. Hefur orðið samkomulag um það að greiða einnig uppbætur ofan á öll þessi laun? Ég nenni ekki að slá hér upp öllum dæmum, sem eru um slíkar launagreiðslur til starfsmanna ríkisins. En við, sem setið höfum í fjvn. á undanförnum árum og staðið í sífelldri baráttu um að afnema þetta fyrirkomulag í launagreiðslunum, þannig að það væri ekki verið að greiða mönnum hálf önnur laun, tvöföld laun og meira en það, við vitum, hversu úir og grúir af þessum launagreiðslum til starfsmanna ríkisins í okkar landi. Og þar, sem ekki hefur verið hægt að koma því við að láta menn hafa meira en sín laun samkv. launal., hafa menn oft verið látnir fá úr ríkissjóði stórkostlegt risnufé sem launauppbætur. Gildir þetta um ýmsa starfsmenn ríkisins hjá okkur. Er líka greidd á þessa risnu 20% uppbót? Ég veit ekki betur, en einnig hafi verið í mörg ár greitt ferðafé til ákveðinna lækna og prófessora til þess að kynna sér nýmæli viðkomandi starfi sínu, sem þeir hafa ekki notað til þess að ferðast fyrir, heldur hafi fé þetta verið greitt sem launauppbætur. Er líka greidd uppbót á þessi laun? Ég gæti nefnt mörg slík dæmi, sem úir og grúir af. Og þetta mein er sjálfsagt búið að vera lengi, um tugi ára, og ákaflega erfitt að fá því breytt.

Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hefur hins vegar, eftir því sem hún tjáði mér, engar till. gert um það, hversu há uppbót skuli greidd á launin. Aftur á móti gerir hún till. um það, að uppbótin skuli greidd út í fimm greiðslum, þ. e. 1/5 eða 20% af uppbótaupphæðinni, eins og hún kynni að verða ákveðin, á hverjum mánuði frá júlí til nóvember. Eru þær till. birtar ráðun. bréflega, og mér er nær að halda, eftir upplýsingum sem ég hef, að hér hafi skolazt á milli, þannig, að þeir hafi lagt til, að uppbótin yrði greidd á fimm tímabilum, 20% af upphæðinni á hverju tímabili, en síðan hafi verið farið inn á að greiða 20% á launin. Eftir upplýsingum, sem ég hef fengið frá þessum aðilum, þá var fyrst hugsað, að þessi uppbót gæti verið 8–8,33% hækkun, miðað við allt árið og miðað við, að heimildin um 4 millj. kr. greiðslur í þessu skyni væri notuð að fullu. Síðar hefur verið hugsað að greiða þetta á sex mánuðum og þá hefðu komið 16% uppbætur á launin á mánuði, miðað við að nota að fullu 4 millj. kr. heimildina, en 19,2% mundu koma á launin á mánuði með því að skipta uppbótagreiðslunum jafnt á fimm mánuði. Er þetta miðað við þá ríkisstarfsmenn, sem greiða í lífeyrissjóð. Og mér hefur verið tjáð, að svo sterk ósk hafi komið frá stjórn B. S. R. B., að þetta fé yrði greitt út á fimm mánuðum, að á þá till. hafi verið fallizt. Svo mun hafa þótt hægara að reikna með 20% og því sú upphæð tekin í stað 19,2%. En hvernig sem þessu er velt fyrir sér, er sjáanlegt, að B. S. R. B. hefur aldrei gert till. beinlínis um skiptin á þessu 4 millj. kr. uppbótafé.

Það mun hafa verið reiknað út af ráðun., að ef greiddar væru uppbætur á laun þeirra manna einna, sem greiða iðgjald í lífeyrissjóð, þá mundi hér vera um 50 millj. kr. launagreiðslur að ræða og því 8% uppbót á þessi laun þær 4 millj. kr., sem heimildin um launagreiðslurnar til þessara manna hljóðaði um. Og fyrst mun hafa verið reiknað með að greiða uppbæturnar þannig. En síðan, þegar til framkvæmdanna kom, hefur, eftir því sem fyrir liggur, ekki þótt duga að stöðva þetta við þann hóp manna, sem í lífeyrissjóð greiddi, heldur yrði að fara langt út fyrir þetta, og það varð þess valdandi, að uppbótagreiðslan varð 5 millj. kr. á þessum 5 mánuðum, í staðinn fyrir 4 millj. kr., þ. e. 20% uppbótin til þessara manna allra.

Það er af þessu sjáanlegt, að það atriði þál. frá 18. maí s. l., að greiða ekki uppbæturnar fyrr en hreinar till. lægju fyrir frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja um skiptingu á þessu fé, hefur ekki verið uppfyllt. Og ef það hefði komið till. frá Bandalaginu um 20% launauppbótagreiðslur, bar ríkisstj. að senda þá till. til baka til Bandalagsins, með þeim ummælum, að það væru ekki 6 millj. kr., sem ætti að skipta í uppbótagreiðslur á laun ríkisstarfsmanna, heldur 4 millj. kr., og biðja þá að stokka upp og gefa aftur. En það hafa ekki komið a. m. k. til mín sem form. fjvn. nein gögn, sem sýni, að þannig hafi verið farið með málið.

Þá spurði ég hv. form. Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um það, hvort frá þeim hefðu komið óskir um það eða fyrir lægju nokkrar samþykktir um það hjá Bandalaginu, að þessum greiðslum yrði haldið áfram í desember og þar til fjárlög yrðu afgreidd. Hann kvað svo ekki vera, þannig að ég hef ekki getað fengið upplýsingar um það, að þessar kröfur hafi einu sinni komið frá launþegunum, né heldur, að þeir hafi gert kröfu um það, að þessi þáltill. væri borin fram. Og það væri þá gott að fá upplýsingar hjá hv. 1. flm. málsins um það, hver ástæða er til þess, að till. þessi er komin fram. Form. stjórnar B. S. R. B. hefur tjáð mér, að engin samþykkt hafi verið um þetta gerð í Bandalaginu, og þess vegna spyr ég: Hvaðan er þetta komið?

Öll meðferð þessa máls er svo frámunaleg, að maður fær ekki skilið, hvað veldur því, að hæstv. ráðh., sem er á móti till., sem samþ. var á s. l. vori, fellur skyndilega frá öllum skilyrðum, sem sett eru bæði af honum og þinginu, og leiðir málið inn á þá braut, sem kostar ríkissjóðinn milljónir í útgjöldum fram yfir það, sem ákveðið hafði verið og fram yfir það, sem þörf var á, eftir því sem upplýst hefur verið fyrir mér. Það er alveg óhugsandi, að hæstv. fyrrv. fjmrh. hafi gert þetta án þess að vera knúinn til þess af einhverju því, sem Alþ. enn hefur ekki fengið vitneskju um, en það á heimtingu á að fá að vita um, áður en þetta mál kemur til endanlegrar afgreiðslu hér í þinginu. Það er alveg óhugsandi, að hann hafi einn tekið á sig ábyrgð á þessum framkvæmdum, og hlýtur því fyrrv. hæstv. ríkisstj. öll að bera ábyrgð á þeim og svara til um það, hvað það var, sem knúði hana til þess að fara inn á þessa hættulegu braut í afgreiðslu fjármála.

Sú eina kjaraskerðing, sem starfsmenn ríkisins hafa orðið fyrir síðan launalögin voru sett, er stífing vísitölunnar. En þær ráðstafanir voru gerðar af Alþingi, sem taldi það nauðsyn vegna atvinnuveganna, afkomu ríkissjóðs og þjóðarinnar í heild. Að bæta ríkisstarfsmönnum þetta nú upp með launahækkun, er raunverulega ekkert annað en að afnema stífingu vísitölunnar fyrir ákveðnar stéttir þjóðfélagsins. Það er það, sem verið er að gera hér, og ekkert annað. Það er verið að afnema gerðir fyrrv. ríkisstj., þessi lagafyrirmæli um stífingu vísitölunnar, og gera þetta fyrir ákveðnar stéttir í þjóðfélaginu og þær stéttir, sem sizt þurfa þess með. Það er það, sem verið er að gera með þessari till. Slík ráðstöfun mundi framkalla enn nýja flóðbylgju af dýrtíð í landinu, enn nýtt kapphlaup um kjarabætur til samræmingar. Yrði þáltill. þessi samþ., væri ógerlegt og ranglátt að láta uppbæturnar ekki einnig ná til allra, sem fá eftirlaun og styrki sér til lífsviðurværis, og þá fyrst og fremst til allra ellilauna. Það sér hver maður, að svo framarlega að það eigi að ganga inn á þá braut að greiða 20% uppbætur ofan á hæstu laun embættismanna í landinu og e. t. v. líka ofan á þeirra aukalaun, þá er ekki stætt á því að neita þeim, sem bágast eiga í landinu, eins og þeim, sem verða að lifa mjög fátæklegu lifi af eftirlaunum og ellilaunum, um slíkar kjarabætur. Og það má því búast við, ef þessi þáltill. verður samþ., að hún fyrst og fremst framkalli það, enda eru þegar komnar fram till. á þessu þingi um að gera þetta. Og ég sé ekki, að þeir hv. þm., sem samþ. vilja þessa þáltill., sem hér liggur fyrir, geti undir nokkrum kringumstæðum leyft sér það ábyrgðarleysi að greiða þá atkv. á móti þeim till., sem fara fram á að bæta kjör þessara verr stöddu manna, því að þá væri framið mikið ranglæti gagnvart þeim fátækustu í landinu. En það mundi kosta í eftirlaunum eina millj. kr., en með ellilaununum um 4 millj. kr.

Þjóðinni er nú mest nauðsyn á því að stöðva dýrtíðarflóðið, en auka það ekki. Og þjóðin krefst þess, að fyrsta sporið komi frá Alþingi og ríkisstjórn. Gagnstætt því, sem farið er fram á í þessari þáltill., verður að draga mjög verulega úr öllum kostnaði við ríkisreksturinn, sumpart með því að fækka þeim verkefnum, sem ríkið hefur afskipti af, m. a. sérleyfisferðum, sem ríkið hefur greitt hundruð þúsunda kr. með, og láta þær til þeirra, sem kunna betur með að fara. (EmJ: Er það ekki eitthvað fleira?) Jú, vel mætti minnast á uppskipun hjá Skipaútgerðinni og Gretti, sem mætti kannske líka hafa einstaklingsstjórn á í staðinn fyrir það, sem nú er. (GÞG: En hvað um einstaklingsfyrirtæki, sem tapa?) Það mætti taka þau líka til athugunar. Við skulum tala saman á eftir um það. Og sumpart mætti draga úr kostnaði við ríkisreksturinn með því að krefjast meiri vinnu af starfsmönnum ríkisins, fyrir bætt kjör. Þegar þetta var rætt við fjvn. á síðasta þingi, vildi hún koma á móti kröfum starfsmanna ríkisins, með því að hækka launin og lengja vinnutímann, og ég veit ekki betur, en að það mál væri á mjög eðlilegri leið. Svo var gripið fram í fyrir þeim mönnum, sem voru að semja um það, sumpart af hv. flm. þáltill. í fyrra og sumpart af ríkisstj., með því að bæta kjör þessara manna án þess. En mér fannst, þegar við í fjvn. ræddum við þá, þeir vera vel við mælandi um það atriði að lengja vinnutímann, til þess að geta fengið betri kjör. — Getur þá einnig komið til mála að endurskoða laun þeirra, ef vinnutíminn yrði lengdur allverulega.

Mér þykir rétt í sambandi við þetta að leyfa mér að benda á, að þetta mál hefur nú tekið þá stefnu, að starfsmenn ríkisins þykjast nú orðið eiga heimtingu á því, fyrir gerðir Alþ. og fyrrv. ríkisstj., að fá 20% launahækkun, ekki út þetta ár og ekki þangað til fjárl. verða afgr., heldur bara allt næsta ár, 1950, og mundu telja sig svikna, eftir því sem mér skilst, ef meiri hl. Alþ. kippti nú að sér hendi og neitaði að greiða þessar uppbætur á laun þeirra allt árið næsta. En ef svo er gert, þá er alveg áreiðanlegt, að það verður margfalt torveldara en ella að leysa dýrtíðarmálin, sem ekki verða leyst á Alþ. með því að auka útgjöld þess opinbera og auka laun þeirra manna, sem skemmstan hafa vinnutíma í þjóðfélaginu. Það er alveg áreiðanlegt.

Mér þykir rétt að benda á, að verði þessi þáltill. á þskj. nr. 29 samþ. óbreytt, þá er alveg ljóst, að hún krefst þess, að 6 millj. kr. verði varið til uppbótanna á þessu ári, eða 50% meira en ákveðið var í skyndi á næturfundinum, þegar fyrri þáltill. var afgreidd, og þótti mörgum þá nóg um. En ef þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, verður samþ., verður að bæta við útgjöldin fleiri milljónum. Þá er líka ljóst, að þá verður gerð krafa um þær greiðslur í þessu sambandi á næsta ári sem munu kosta 12–15 millj. kr. Og það hefur í raun og veru enginn hv. þm. leyfi til þess að afgr. þessa till., sem hér liggur fyrir, nema hann geri sér ljóst, að samþykkt hennar muni kosta ríkissjóðinn 12–15 millj. kr. á næsta ári. Og hv. þm. eru þá líka skyldir til þess, sem greiða atkv. með þessari till., að bera fram till. um það, hvernig eigi að taka þetta fé. Mundi t. d. hv. 4. þm. Reykv. leggja til, að það væri dregið af framlagi til Tryggingastofnunarinnar sem svaraði þessari upphæð? Ég hygg ekki. Ætli það yrði ekki svo, að þegar draga ætti af útgjaldaliðum fjárl. vegna þessara uppbóta, þá segðu allir nei? Og væri það þá endilega eðlilegasta afgreiðsla þessa máls, að þeir, sem þessara uppbóta eiga að njóta,fengju annaðhvort engar uppbætur eða 12–15 millj. á næsta ári, sem hér er stefnt að að greiða, til þess að tryggja þessum mönnum, sem bezt eru settir í þjóðfélaginu, að geta haldið launum sínum? Nei. Og hvar á að taka það fé, sem til þessara uppbóta þarf? Með nýjum skatti? Kannske nýjum eignarskatti? Ef til vill. En hvers vegna bera þá ekki hv. þm. fram till. um það nú, hvernig eigi að taka þetta fé? Af því að þeim er ljóst, að það er ekki hægt. (PZ: Mætti taka það af ágóða af Hæringi?) Hæringur er alls ekki á fjárlagafrv., og það er hreint ábyrgðarleysi gagnvart afgreiðslu fjárlagafrv., ef menn ætla sér að samþ. þessa þáltill. hér og gefa þjóðinni hana í jólagjöf og hafa ekki komið með öruggar till. um það, hvernig eigi að ná fé í ríkissjóðinn, þannig að þetta ráðslag skaði ekki þjóðfélagið meira en orðið er. (GÞG: Fjárlögin eru ekki komin til umr.) Hv. 3. landsk. þm. hefði átt að hafa manndóm til þess að sýna, hvernig á að standa undir þessari vitleysu.

Ég vil í sambandi við þetta einnig leyfa mér að benda á, að 1944 er borin fram hér á þingi og samþ. þáltill. um að athuga starfskerfi og rekstrarútgjöld ríkisins, á þskj. 1163. Þessi till. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta nú þegar fara fram rækilega athugun og rannsókn á því, hvernig unnt væri að draga verulega úr rekstrarútgjöldum ríkisins og ríkisstofnana, og verði jafnframt leitað að leiðum til þess að gera þetta starfskerfi einfaldara og óbrotnara.“

Síðan er sagt í fimm liðum, hvaða leiðir skuli helzt fara. Í engri af þessum leiðum er tekin upp þessi dæmalausa úrbót, að hækka laun um 20%. Á hverju einasta þingi, sem síðan hefur verið, hefur fjvn. lagt á það ríka áherzlu, að þessari till. verði sinnt og horfið að því máli, hvernig væri hægt að draga úr rekstrarútgjöldum ríkissjóðs, en ekki auka þau, eins og hér er farið fram á. Og ég tel það hreint ábyrgðarleysi fyrir þá, sem hafa samþ. þessa till. og viðurkennt þessa þörf, að ganga nú framhjá henni og samþ. till. um 20% launahækkun til opinberra starfsmanna. Það er skylda meiri hluta Alþingis nú á þessum tímum, þegar þörf er að snúa við, að koma með einhverjar raunhæfar till. um úrbót í þessum málum, en bera ekki fram till., sem alveg auðsjáanlega torveldar alla viturlega lausn í dýrtíðarmálunum. Hver einasta ríkisstj., sem setið hefur að völdum síðan, hefur lýst yfir, að hennar aðalverkefni væri að reyna að draga úr dýrtíðinni. Fyrrv. ríkisstj. settist að völdum með það sem aðalverkefni að leysa hana. Þessi sama ríkisstj. hefur með meðferð þessa máls á síðasta þingi gengið inn á þá braut að torvelda stórkostlega þau verkefni, sem hún sjálf setti sér sem aðalverkefni að leysa, og það svo, að sú ríkisstj., sem ætlaði sér að taka við og laga dýrtíðarmálin, eftir að búið er að samþ. þessa till., hún er ekki öfundsverð, það verð ég að segja.

Ég vænti þess, að hæstv. fjmrh. undir þessum umr. gefi okkur í meiri hl. n. eða allri n. eða þinginu í heild meiri og betri og nákvæmari svör við því, sem við spurðum um, af því að ég geri ráð fyrir, að þau liggi nú lausari fyrir. Ég vænti, að ríkisstj. upplýsi, hvað það var, sem þvingaði fyrrv. ríkisstj. til að hlaupa frá þeim ákvæðum, sem sett voru um þessar launagreiðslur, og fara inn á þá braut, sem hér er farið inn á. Hvaða öfl þar liggja á bak við, höfum við ekki fengið að vita í fjvn. Þau hljóta að vera sterk, því að engin stj. hefði leyft sér að fara inn á þá braut, nema mjög sterk öfl hefðu knúið þar á.

Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða málið frekar, en ég vænti, að till. verði felld við atkvgr., eins og meiri hl. n. leggur til.