19.12.1949
Sameinað þing: 11. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í D-deild Alþingistíðinda. (3482)
25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna
Frsm. 1. minni hl. (Erlendur Þorsteinsson):
Herra forseti. Hv. þm. Barð., frsm. meiri hl. fjvn., hefur í allýtarlegri ræðu lýst gangi þessa máls eins og það hefur verið eftir að það var flutt hér inn í hæstv. Alþ. á síðastliðnu vori og afgreitt héðan. Ég vil ekki draga neinn efa á það, að rétt hafi verið skýrt frá sögu málsins, en hins vegar get ég ekki fallizt á þær niðurstöður og ályktanir, sem hv. þm. dró af þeirri sögu. Mér virðist, að eins og þetta mál liggur fyrir nú, þá séu það í raun og veru þrjú atriði, sem beri sérstaklega að athuga, og þau hljóti að liggja til grundvallar fyrir þeirri afgreiðslu, sem málið fær. Það fyrsta og veigamesta að mínu áliti er þá það, hvort líta beri á félagsskap starfsmanna ríkis og bæja sem stéttarfélag, félag, sem sé til þess stofnað að semja um kaup og kjör fyrir meðlimi sína, hvort líta megi á það sem slíkt eða ekki. Að vísu eru laun þessa fólks að forminu til ákveðin með samþykktum Alþ., og þessum launamönnum öðrum fremur er gert það lægra undir höfði í þjóðfélaginu, en öðrum vinnandi stéttum eða öðru vinnandi fólki, að því er bannað að gera verkfall. Það kemur út af fyrir sig ekki afgreiðslu þessa máls við, hvort það er réttmætt eða ekki, en ég hygg, að það ákvæði launal. að banna þessu fólki verkfallsrétt, sem er þó viðurkenndur í öðrum launastéttum, samkv. þeim ákvæðum sem þar gilda um stéttarfélög og vinnudeilur, — ég hygg, að það ákvæði sé orðið úrelt og hafi til orðið, þegar hér var um tiltölulega fámennan hóp manna að ræða og litið á þá sem nokkurs konar skyldulið eða jafnvel kannske herlið í landinu, enda ekki ólíklegt, að þetta séu leifar frá þeim tíma, þegar Íslendingar ákváðu ekki sjálfir um meðferð þessara sinna mála sem annarra. En hvað sem þessu líður, þá hlýtur að verða að líta þannig á, að hér sé um að ræða félagsskap, sem hafi fullan rétt á því sem samningsaðili að ráða nokkru um kaup sitt og kjör, og það beri ekki að draga úr þeim rétti, þó að til séu ákvæði í l., sem banna honum verkfallsrétt eða í raun og veru framkvæmdavald til þess að koma málum sínum í framkvæmd. Miklu heldur ber að líta til þessa félagsskapar með meiri sanngirni, þar sem hann hefur ekki tækifæri til þess að nota þetta afl til að koma kröfum sínum í framkvæmd. En þegar þannig er litið á málið, verður um leið að viðurkenna, að þessi félagsskapur á innbyrðis rétt til að segja til um laun hinna ýmsu starfsflokka, hvaða kröfur eru fram settar, og síðan verða mótaðilar, eins og í öllum öðrum samningsgerðum, að halda fram sínum sjónarmiðum. Ef menn eru sammála um að líta á þennan félagsskap sem stéttarfélag, hljóta menn líka að vera sammála um, að samtök þessara manna eigi og verði að segja mest til um það, hvernig launum þeirra er breytt, að svo miklu leyti sem samkomulag fæst um það við þá aðila, sem á að semja við. Þessari till. hér er ætlað að leysa þessi mál þannig til bráðabirgða. Að mínu áliti er ekki rétt að raska þeim grundvelli, sem þessi félagsskapur hefur gert um kaup og kjör starfsmanna sinna. Ég tel, að þeir með sínum félagsskap, svo sem önnur slík félög, hafi sjálfsákvörðunarrétt til að segja til um eins og unnt er, hvernig hlutföllin eigi að vera milli hinna ýmsu starfsmanna, sem eru innan vébanda þessa félagsskapar. Það er rétt að gera sér það ljóst, að sá hópur, sem hér um ræðir, er orðinn allfjölmennur í landinu og hefur vaxið mjög hin síðustu ár, og það er líka vert að benda á það, að samkvæmt óskum þessa félagsskapar var með launal. 1945 gerð tilraun til þess að samræma laun þessa fólks, sem þarna er um að ræða, en áður mun það hafa verið svo, að laun fyrir sömu vinnu voru greidd ákaflega misjafnt hjá ýmsum stofnunum þess opinbera. Með því að ganga inn á þessi sjónarmið hefur Alþ. einnig viðurkennt, að þessi félagsskapur er aðili að þeim breytingum, sem gerðar hafa verið og gerðar kunna að verða á lífskjörum þess fólks, sem í félagsskapnum er, og þess vegna verður enn að líta svo á, að þetta séu í raun og veru rök fyrir því. að því kerfi verði ekki raskað með bráðabirgðalausn hér á Alþingi.
Annað aðalatriði þessa máls er framkvæmd þeirrar þáltill., sem samþ. var 18. maí s. l., og þá vitanlega um leið störf þeirrar mþn., sem skipuð var til þess að athuga þessi mál og hv. frsm. meiri hl. veittist nokkuð að. Eins og fram kom í ræðu hv. frsm. meiri hl., varð ágreiningur um það í n., hvernig hún ætti að haga störfum. Til þess að geta fengið úr þessu skorið, sneri hún sér vitanlega til þess aðila, sem hafði skipað hana og vissulega átti að segja henni fyrir verkum, og hún sneri sér til hæstv. þáv. fjmrh. Í áliti n. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Að lokum var fenginn úrskurður fjmrh., er hljóðaði svo, að n. skyldi miða starf sitt við það að rannsaka breytingar þær, er orðið hefðu á kaupi og kjörum hinna ýmsu starfsstétta frá því að launal. voru sett, til þess að komast að raun um það, hvort og hve mikið kjör starfsmannanna hefðu rýrnað samanborið við aðrar starfsstéttir.“ Með þessu er alveg greinilega úr því skorið, að starf n. er ekki það að rannsaka, hvernig kjör starfsmanna ríkis og bæja séu í dag í samanburði við kjör annarra stétta, heldur að rannsaka, hvað kjör starfsmanna ríkis og bæja hafi rýrnað frá árinu 1945, þegar launal. voru sett, til þess tíma, er n. skilar áliti, miðað við það, hverjar kjarabætur aðrar stéttir og annað vinnandi fólk hefur fengið á þessum tíma, enda segir n. í sama nál., með leyfi hæstv. forseta: „N. var hins vegar ekki ætlað að endurskoða launal., heldur skyldi að svo stöddu gengið út frá því, að hlutföllin hafi verið eðlileg. Niðurstöður n. eru byggðar á þessum grundvelli.“ Þegar þessi ummæli n. eru athuguð og úrskurður hæstv. þáv. fjmrh., þá hygg ég, að nokkuð af því, sem fram kom í ræðu hv. þm. Barð., fái ekki staðizt, því að hér er eingöngu miðað við það að upplýsa, hvernig kjör þessara manna eigi að vera miðað við þær uppbætur, sem aðrar vinnandi stéttir hafa fengið. Hv. þm. Barð. sagði í þessu tilfelli, að ekkert tillit hefði verið tekið til þess öryggis, sem fastir starfsmenn ríkisins hafa, en ég vil benda á, að þetta öryggi var líka til staðar 1945, þegar launal. voru sett. Þess vegna var tekið tillit til þess eingöngu miðað við þann mismun, sem orðið hafði á kjarabreytingum annarra manna í landinu. Mér virðist því, að byggt á þeim úrskurði, sem fram kom frá þáv. fjmrh., hefði n. í raun og veru ekki getað unnið starf sitt öðruvísi, en hún hefur gert, og það hafa ekki komið fram nein rök fyrir því, að þær upplýsingar, sem fram koma í nál. þessarar n. um kjarabætur og hækkun annarra vinnandi stétta, séu rangar.
Þriðja meginatriðið í sambandi við afgreiðslu þessarar till. er að mínu áliti það, hvort rétt sé að samþ. hana nú. Ég hef áður bent á, að afgreiðsla sú, sem till. fékk hjá hv. n., var rökrétt afleiðing af því, sem á undan var gengið. Á það er einnig bent í grg. fyrir till. og tekið upp í álit 1. minni hl., okkar hv. þm. Ak., að sérstök n. vinnur nú að endurskoðun launal. Við leggjum á það áherzlu, að þessi n. ljúki störfum sem allra fyrst, vegna þess að við teljum eðlilegt og sjálfsagt að launakerfinu verði breytt eingöngu í samráði við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og það verði byggt á þeim till., sem þaðan koma, eftir því sem um semst.
Þess vegna lítum við svo á, að hér sé eingöngu um bráðabirgðalausn að ræða og þær uppbætur, sem greiddar eru samkv. þessari till. og greiddar hafa verið áður, beri ekki að skoða sem neina ákvörðun um endanlegar uppbætur eða ákvörðun um 25% launauppbót á öll laun starfsmanna ríkis og bæja, eins og virtist koma fram hjá hv. frsm. meiri hl. Við teljum, að hér sé aðeins um bráðabirgðalausn að ræða og það þurfi að koma til samninga milli þessara tveggja aðila, sem ég hef rætt um, þar sem samið væri um það, hvað endanlegt hlutfall launa skyldi vera milli hinna einstöku starfsstétta, sem í sambandinu eru, og ýmis önnur atriði, sem þar að lúta. Það virðist ekki óeðlilegt, að við þá samninga væri einmitt rætt um ýmis þau atriði, sem fram komu í ræðu hv. frsm. meiri hl., svo sem um það ástand, sem hann taldi hér vera um það, að fjöldi opinberra starfsmanna væri í tveimur eða jafnvel fleiri embættum, en ég tel, að það sé ekki réttmætt, að þingið eða einstakir þm. ásaki starfsmenn um það. Ég held, að þar geti líka verið um að ræða stjórnleysi þeirra, sem eiga að ráða, en ekki sviksemi þeirra, sem vinna. Sama má líka segja um vinnu eða vinnuafköst. Eftir því sem ég veit, hefur því aldrei verið mælt bót af stéttarfélögum eða forvígismönnum þeirra, að meðlimir þeirra skili ekki þeirri vinnu, sem óskað er eftir og krafizt er af þeim. Ef það er ekki gert, þá hlýtur veilan að vera hjá þeim, sem yfir þessu fólki ráða, en ekki fólkinu sjálfu. Það er að vísu hægt margt og mikið um þetta mál að segja, eins og t. d. ef talað er um samanburð á vinnu þessa fólks og vinnu bóndans og sjómannsins. Það getur engum dottið í hug að halda því fram, að ekki sé miklu meiri líkamleg áreynsla — og kannske andleg líka — að vera sjómaður á togara eða kannske bóndi uppi á landi. En það er líka viðurkennt, að við hvor tveggja þau störf, sem þar um ræðir, er ýmislegt það gott sem betur fer, sem dregur fólk að þeim, þannig að fjöldi manna vill fremur við þau vinna en þau störf, sem ég nú nefndi. En aðalatriðið er vissulega það, að hver þjóðfélagsþegn skili sínu starfi sem bezt, í hvaða stétt sem hann vinnur.
Ég sé ekki ástæðu til þess að vera að fara út í einstök atriði í þeirri framsöguræðu, sem haldin var hér áðan, enda var þar að miklu leyti vikið meir að fyrrv. ríkisstj. og þeim, sem áður höfðu um þetta fjallað. Hitt vil ég benda á, sem er vissulega rétt, að það mundi ákaflega oft hafa verið erfitt fyrir vinnandi fólk og stéttarfélög að fá fram nokkrar kjarabætur, ef alltaf hefði átt að miða við einhverja aðra í þjóðfélaginu, sem verr kynnu að vera settir. Það er aldrei hægt með slíkum samanburði að fá kjarabætur handa einum eða neinum. Ég held, að sú aðferð sé að verða meir og meir úrelt í okkar þjóðfélagi að vilja endilega miða launakjör eða annað við þá, sem eru kannske verst settir í þeim sökum eða í þjóðfélaginu af einhverjum öðrum ástæðum.
Ég vil svo að síðustu leyfa mér að leggja til, að þessi þáltill. verði samþ. eins og hún liggur fyrir.