20.12.1949
Sameinað þing: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (3516)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að lýsa þeirri skoðun minni, að ég tel samþykkt þessarar till. sem siðferðislega ákvörðun Alþingis um að greiða uppbætur til uppgjafastarfsmanna, sem og er staðfest af meiri hl. Alþ. Einnig skoða ég hana sem uppörvun af hálfu Alþ. til almennra launahækkana í landinu, og í síðasta lagi sem yfirlýsingu Alþ. um, að ræða hæstv. fjmrh. hafi verið markleysa ein. Ég segi já.