20.12.1949
Sameinað þing: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (3517)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég færði sterk rök fyrir því í umræðunum um þetta mál, að ekki ætti að samþ. þessa till. Ræða hæstv. fjmrh. nú í dag hefur enn fremur sannað, að rök mín eru rétt og að óverjandi er að auka nú greiðslur ríkissjóðs með samþykkt þessari. Ég vænti þess því, að þótt till. verði samþ., þá neiti hæstv. ráðherra að taka við henni, og segi nei.