30.11.1949
Sameinað þing: 6. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (3523)

7. mál, hraðfrystihús og fiskiðjuver í Flatey

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Herra forseti. Ég er viss um, að víða eru hliðstæð dæmi þessu, sem kemur fram í þáltill., og hygg ég, að helzt muni vera hægt að fá upplýsingar um þetta hjá stofnlánadeildinni eða Fiskifélaginu. Þetta hefur lengi verið hið mesta vandamál, og verður að fást lausn á því og eins að komast að raun um, hve málið er stórt.