04.01.1950
Sameinað þing: 13. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (3526)

7. mál, hraðfrystihús og fiskiðjuver í Flatey

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Fjvn. hefur haft þetta mál til athugunar og aflað sér upplýsinga varðandi það.

Árið 1947 var hafin almenn fjársöfnun í Flatey á Breiðafirði til þess að koma þar upp hraðfrystihúsi og fiskiðjuveri, og söfnuðust þá þegar 350 þús. kr. sem hlutafé, en þar af voru 150 þús. kr. frá Flateyjarhreppi. Hreppurinn þurfti þá að taka 150 þús. kr. lán, sem ríkissjóður ábyrgðist, til þess að geta gert þetta og gerzt hluthafi í fyrirtækinu.

Á síðastliðnu ári kom svo í ljós, að allur kostnaður við að koma þessu fyrirtæki upp var miklu meiri og dýrari, heldur en upphaflega hafði verið áætlað, eða 1,4 millj. kr. í staðinn fyrir tæpa milljón. Það var því gerð um það krafa frá lánsstofnununum, að hlutaféð yrði aukið, og var þeirri ósk mætt með því að auka það upp í 525 þús. kr. Flateyjarhreppur tók þá að láni 175 þús. kr., eða alla hlutafjáraukninguna, svo að nú er hann eigandi 325 þús. kr. af hlutafé. Nú fer hreppurinn fram á, að ríkissjóður ábyrgist allt að 75 þús. kr. viðbótarlán, til þess að geta fullgert þetta fyrirtæki.

Nefndin hefur átt þess kost að kynna sér öll gögn í málinu og leggur til, að þáltill. verði samþ. og orðið þannig við beiðninni.

Í tilefni af fyrirspurn hv. 1. þm. S-M. um hag frystihúsa almennt og hvort ekki væri rétt að afgreiða þetta mál í sambandi við þá athugun, vil ég taka þetta fram:

Nefndin sneri sér til stjórnar fiskimálasjóðs og fékk það svar, að það væri ekki hægt að gefa skýrslu um hag frystihúsa almennt á skömmum tíma, og sömuleiðis hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, en þessir aðilar lofuðu því að veita upplýsingar um þetta mál svo skjótt sem unnt væri. Nefndin getur því ekki gert nákvæma grein fyrir þessu núna, en mun gera það síðar.

En það má engan veginn rugla þessu tvennu saman, því að þetta er hvort öðru óskylt. Það, sem hér er um að ræða, er ábyrgð á hluta af framlögðu hlutafé Flateyjarhrepps, og þess vegna getur þetta mál ekki heyrt undir 22. gr. VI. í fjárlagafrv., þótt sú aðstoð yrði á sínum tíma samþykkt óbreytt, og enda er hreppnum nauðsynlegt að fá þessa umræddu aðstoð nú þegar, og kom nefndinni saman um það, að ekki kæmi til mála að bíða eftir því með þetta mál. Nefndin leggur það því einróma til, að þessi till. verði samþ. eins og hún liggur fyrir á þskj. 8.