28.11.1949
Sameinað þing: 5. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (3557)
28. mál, vinnuhjálp húsmæðra
Flm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):
Herra forseti. Ég á hér till. til þál. á þskj. 32 um, að Alþ. álykti að fela ríkisstj. að láta undirbúa löggjöf um vinnuhjálp húsmæðra með svipuðu sniði og nú tíðkast annars staðar á Norðurlöndum og leggja frv. um þetta efni fyrir Alþ. á árinu 1950.
Þetta mál er nýjung hér á landi, og er nú þess vegna farið hægt í sakir og langar mig bara með örfáum orðum að skýra þetta mál í aðalatriðum.
Eins og öllum er kunnugt, er mjög erfitt að fá hjálp til heimila. Það, sem hér er gert ráð fyrir, er ekki varanleg hjálp, heldur aðeins hjálp, þegar eitthvað sérstakt ber að höndum, svo sem veikindi. Það eru mjög mikil brögð að því, bæði í Reykjavík og annars staðar, að það hafi orðið vandræði af þeim sökum, að hvað sem við liggur í forföllum húsmóður, er ekki nokkur leið að fá heimilishjálp. Og hefur komið til þess, að af þeim sökum hefur orðið að leysa upp heimilin, og skapast vandræði við það. Úti á landi hafa verið gerðar smátilraunir um að fá svona hjálp tryggða heimilum, einkum í veikindatilfellum, en hefur strandað á því, að ekki hefur verið hægt að búa að konum, sem taka þetta að sér, svo, að viðunandi væri. Hér í Reykjavík hefur sama reynsla orðið. Hjúkrunarfélagið Líkn hefur gert nokkuð að því að reyna að hafa stúlkur á sínum vegum, sem færu inn á þau heimili til hjálpar, þar sem bágar ástæður væru. En það hefur aldrei tekizt til lengdar að halda stúlkum í því starfi. Það hefur ekki verið hægt að búa svo að þeim, að þær gætu haldið áfram. Hér er um að ræða örðugt starf, en það horfir til stórvandræða, ef ekki fæst aðstoð til heimilanna, hvað mikið sem þar er í húfi.
Nokkur reynsla er komin á þessi mál á Norðurlöndum, einkum í Svíþjóð og Danmörku, og hef ég nokkuð kynnt mér, hvernig þeim er háttað í Svíþjóð. Þar hófu einstök félög ásamt Rauða krossinum þessa starfsemi, en verulegur árangur náðist þar ekki fyrr en ríkið tók hana upp á arma sína. Til þessara starfa hafa konur fengið ákveðna menntun, og hefur námi verið hagað nokkuð mismunandi eftir aldri þeirra og hæfni, þannig að námstími eldri og starfsreyndari kvenna hefur verið einir þrír mánuðir, en þær hafa með því fengið yfirlit um það, til hvers ætlazt var af þeim.
Þessar konur eru í Svíþjóð opinberir starfsmenn og hafa föst og ákveðin laun og ýmiss konar tryggingar og hlunnindi, svo sem í húsnæði, og allt er gert til að veita þeim öryggi í starfi þeirra. Þær eru ekki þjónar heimilanna, þar sem þær starfa, heldur hins opinbera. Heimilin sækja til opinberra aðila, og hjálpinni er ráðstafað þaðan og sé um kvartanir að ræða, er við nefnd eða bæjarstjórn að tala, en ekki heimilið. sem stúlkan vinnur á.
Hvað menntun þessara kvenna snertir vil ég benda á það, að hér á landi hefur orðið sú reynsla í barnagæzlumálum t. d., að síðan hér var stofnaður skóli í barnagæzlu, þá hefur hún tekið miklum framförum og framboð á hæfum stúlkum aukizt svo til þessara starfa, að það fullnægir nú eftirspurn; en áður skorti tilfinnanlega stúlkur til þessara starfa.
Um fjárhagshliðina á þessu er það að segja, að annars vegar er um að ræða hjálp handa þeim, sem geta greitt hana sjálfir, en hins vegar eru sveitar- og bæjarfélög, sem þurfa að fá hjálp handa fólki, sem ekki getur greitt hana sjálft. En þar virðist mér, að í mörgum tilfellum hljóti að verða um fjárhagslegan hagnað að ræða fyrir hjálparveitanda á móts við það, sem annars er oft eina ráðið, að leysa heimilin upp. Ætti því beinlínis að geta orðið af starfi hjálparstúlknanna fjárhagslegur hagnaður.
Um samvinnu ríkis- og bæjarfélaga yrði við samningu frv. að styðjast við staðhætti hér á landi, en hafa má þó hliðsjón af fenginni reynslu erlendis. Í Svíþjóð er það svo, að ríkið styður þetta að nokkrum hluta, og mér mundi þykja eðlilegt, að ríkið kostaði að minnsta kosti menntun stúlknanna, hvað sem annars yrði að ráði um þetta.
Ég mun ekki hafa um þetta fleiri orð. Málið mun koma til athugunar í nefnd, sem mér þætti eðlilegt, að yrði allshn., og mun ég fúslega gefa henni um þetta allar þær upplýsingar, sem í mínu valdi stendur að veita.