19.12.1949
Sameinað þing: 11. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í D-deild Alþingistíðinda. (3579)

2. mál, heimilistæki

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég þakka n. fyrir, að hún hefur munað eftir öllu landinu. En ég er ekki ánægður, þótt svo sé og hún ýti undir í brtt. sínum, að vélar verði framleiddar í landinu. Í fyrsta lagi þykir mér ekki næg áherzla lögð á það hjá henni að heimila innflutning á þessum tækjum til þeirra heimila, sem á mis fara við öll önnur þægindi.

Hvaða vit er í því að flytja rafmagnsvélarnar til þeirra, sem hafa rafmagn, og láta hina elda á hlóðum, vegna þess að ekki fáist venjulegar eldavélar? Því vil ég, að aftan við tillgr. sé bætt eftirfarandi: „Þó skal gjaldeyrir til eldavéla — annarra en rafmagnseldavéla — veittur eftir sömu reglum og til almennra rekstrarvara.“ Það má deila um það, hvar þörfin sé mest. Legg ég því til, að bætt sé inn orðunum: „veittur eftir sömu reglum og til almennra rekstrarvara,“ svo að skýlaust sé, að maður þurfi eigi að liggja með beiðnir árum saman. Til eru tvær tegundir eldavéla, er jafnast á við rafmagnsvélar og eru eftirsóttar. Þær á að vera hægt að fá orðalaust, eins og sjómenn fá öngul til að veiða á, eða bændur ljá til að slá með. Þess vegna legg ég fram þessa skriflegu brtt., að gjaldeyrir til eldavéla skuli veittur eftir sömu reglum og til almennra rekstrarvara.