01.03.1950
Sameinað þing: 29. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í D-deild Alþingistíðinda. (3596)

124. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Flm. (Hermann Jónsson) :

Herra forseti. Góðir hlustendur. Ég vil gera nokkra grein fyrir því, hvers vegna ég og hv. 1. þm. S-M. flytjum vantraust á núverandi ríkisstjórn.

Framsfl. tók, eins og vitað er, þátt í fyrrv. ríkisstjórn. Hann gerði það í þeirri von að geta sveigt stefnu ríkisstj. í fjármálum, atvinnumálum, viðskiptamálum o. fl. þannig, að komizt yrði hjá þeim afleiðingum, sem nú blasa við í þjóðlífinu og eru þó miklu geigvænlegri en menn gera sér almennt grein fyrir. — Framsfl. fékk vægast sagt litlu ráðið um starf og stefnu fyrrv. ríkisstj. Hann varaði við afleiðingunum af þeirri stefnu, sem haldin var, og loks var svo komið s. l. vor, að ráðherrar Framsfl. í fyrrv. ríkisstj. tilkynntu meðstarfsmönnum sínum, að þá þegar yrði að hefja samninga og undirbúningsvinnu til að breyta um stefnu í fjármálum og atvinnumálum og eftir að sumarið hefði verið notað til þessarar vinnu yrði að leggja fram á Alþingi undirbúið frv. um málin. Með því að semja um tryggan meiri hl. til að samþykkja þær úrlausnir, er um semdist, mætti byggja fjárlagafrv. fyrir 1950 á þessum nýja grundvelli, og framleiðslan gæti þá og starfað ótrufluð á þessum sama grundvelli, án stöðvunar. Ráðherrar flokksins lögðu samhliða þessu fram tillögur um það, hvernig þeir teldu að leysa bæri málir í höfuðatriðum. Var þar bent á, að fjármálum- og framleiðslumálum væri þannig komið, vegna verðbólgunnar, að ekki væri nema um tvær höfuðleiðir að velja, að lækka gengið eða færa niður verðlag og laun. En áður, eða samtímis, yrði Alþingi að gera ráðstafanir til þess að tryggja heilbrigða verzlun, að lækka okurhúsaleigu, að útrýma svartamarkaði og vöruokrun, að leggja á stóreignaskatt og gera aðrar slíkar ráðstafanir, þannig að þjóðin almennt fyndi það og treysti því, að þær byrðar, sem hún varð að taka á sig í bráð, meðan breytingar voru gerðar, væru lagðar á hennar bak með jafnrétti og engan umfram það, sem óhjákvæmilegt væri til að reisa við fallandi fjárhag þjóðarinnar. Með þessu móti gerðum við framsóknarmenn okkur von um að þessar ráðstafanir bæru árangur, en yrðu ekki ónýttar í framkvæmd í höndum þeirrar stjórnar, sem með þær færi.

Þessar tillögur Framsfl. fengu ekki undirtektir samstarfsflokkanna í fyrrv. ríkisstj. Þeir voru þeim sumpart andvígir, en töldu þær og sumpart ótímabærar. Ráðherrar Framsfl. tilkynntu þá, að þeir gætu ekki borið ábyrgð a aðgerðaleysi, sem auðsætt væri að mundi leiða til stöðvunar í fjármálum og framleiðslu, þar sem ekkert yrði undirbúið til að breyta um stefnu fyrir haustþingið.

Þannig rofnaði samstarfið og kosningar fóru fram. Alþfl. lýsti síg andvígan gengislækkun, Sjálfstfl. sló úr og í og sagði, að gengislækkun væri algert neyðarúrræði, Sósfl. taldi lausnina þá að selja íslenzkar afurðir til Austur-Evrópu.

Við framsóknarmenn einir sögðum þjóðinni það í sjálfri kosningabaráttunni, fyrir hana og eftir, að nú væri fjármálum og framleiðslu þjóðarinnar þannig komið, að ekki væru til önnur úrræði, en gengisbreyting eða niðurfærsla — sem réttara er, eins og nú er komið, að kalla niðurskurðarleið. En við lofuðum að samþykkja það ekki að gera þessar ráðstafanir, nema áðurnefndar hliðarráðstafanir væru gerðar samtímis, til að draga úr byrðunum fyrir almenning eins og framast væri unnt.

Það var oft sagt við okkur framsóknarmenn, að frámunalega óhyggilegt væri og ólíklegt til fylgisauka að segja þjóðinni í kosningunum. að færa þyrfti niður, og þó einkum að lækka þyrfti gengið, því að hvort tveggja og einkum hið síðarnefnda, væri óvinsælt með þjóðinni. En við höfðum ákveðið það og stóðum við það að segja þjóðinni það eitt, sem við að yfirveguðu máli álitum að væri satt og rétt. Þjóðin reyndist vera byrjuð að átta sig eftir gullvímuna. og hún svaraði í kosningunum með því að veita Framsfl. verulega aukið brautargengi.

Sú fyrsta skylda, sem við framsóknarmenn áttum að gegna, er Alþingi kom saman, var að framfylgja eftir beztu getu þeirri stefnu, er við álitum þjóðinni bezta, höfðum lofað að fylgja fram og fengið umboð kjósenda til.

Þegar herra forseti Íslands sneri sér til Framsfl. og óskaði eftir. að ég reyndi að mynda meirihlutastjórn, álitum við framsóknarmenn, að líklegasta leiðin til þess að koma fram stefnu þeirri, er við höfðum túlkað, væri, að Framsfl. og Alþfl. mynduðu eins konar bandalag eða samfylkingu í hinni nýju ríkisstj. Eftir að þessir tveir flokkar hefðu komið sér saman um lausn dýrtíðarmálsins, sem kæmi sem léttast niður á vinnandi stéttum landsins, ættu þeir að mynda stjórn um þá stefnu, og þótt sú stjórn hefði ekki alveg meiri hluta, mætti láta skeika að sköpuðu um það, hvort stefna flokkanna fengi meirihlutafylgi á Alþingi. Ef meiri hluti fengist fyrir stefnunni á Alþingi, var málið leyst, — ef tillögur flokkanna yrðu felldar, áttu þeir að ganga til kosninga í bandalagi og vinna stefnu sinni meirihlutafylgi með þjóðinni.

Alþfl. kvaðst ekki taka þátt í slíkri stjórn. En flokkurinn kvaðst mundu ræða málið, ef það væri frá byrjun meirihlutastjórn, sem hefði tryggt sér afgreiðslu fjárlaga og annarra aðkallandi mála. En þar sem bæði Framsfl.- og Alþfl. töldu sér ekki fært að mynda ríkisstjórn með Sósfl., var útilokað að leita eftir þeim stuðningi, sem Frams.- og Alþfl. vantaði til þess að hafa meiri hluta á Alþingi, annars staðar en hjá Sjálfstfl. En er leitað var til Sjálfstfl., kvaðst hann þá fyrst svara málaleitaninni, er Alþfl. hefði lýst yfir, hvort hann vildi taka þátt í ríkisstjórn og með hvaða skilyrðum. — Alþfl. neitaði að svara því að sinni.

Þannig var á þeim tíma lokað fyrir Framsfl. þeim leiðum, sem hann taldi færar til þess að framkvæma það, sem hann hafði barizt fyrir í kosningunum, lofað kjósendum sínum að berjast fyrir og fengið umboð þeirra til að framkvæma.

Eftir að Sjálfstæðisfl. hafði og mistekizt að mynda meirihlutastjórn, fól herra forseti Íslands honum að mynda þá minnihlutastjórn. er nú situr. Ýmsir — já, margir hafa rætt um það við okkur framsóknarmenn, hverju það gegni, að við bárum ekki fram vantraust á núverandi ríkisstjórn þegar í janúarmánuði, eftir að Alþingi hafði gert bráðabirgðaráðstafanir vegna bátaútvegsins.

Það er ekki óeðlilegt, að spurt hafi verið. En því er til að svara, að það er ekki tími til að nota stór orð og stórárásir til þess að ná eyrum þjóðarinnar, meðan hún er á leiðinni út úr ógöngunum og unnt kann að vera að afstýra því, að hún fari þangað. En eftir að slysið er orðið, er þýðingarlaust að nota stóryrði. Þá er tími til að reyna að starfa og bjarga.

Við óttuðumst, að í umræðum um vantraust mitt í hita bæjarstjórnarkosninganna kynni að verða ausið þeirri olíu á eldinn, að erfiðara yrði fyrir flokkana að ræðast skynsamlega við um vandamálin á eftir, og við framsóknarmenn. sem höfum verið harðorðir í aðvörunum, erum og höfum verið jafnstaðráðnir í því að taka á vandanum, þegar í hann er komið, með fyllstu ábyrgðartilfinningu, alveg án tillits til þess, að við teljum okkur ekki eiga þar mesta sök.

Með þessum hug gengum við að þeim samningatilraunum. sem átt hafa sér stað og ég mun nú greina frá.

Um afstöðu flokkanna, sem við ræddust, Frams.- og Sjálfstfl., fóru bréf á milli þeirra og því æðiljóst, hvað gerðist.

Það var 2. febr., sem forsrh. sneri sér bréflega til Framsfl. og spurðist fyrir um, hvort Framsfl. vildi tilnefna samninganefnd til að ræða við ríkisstj. um dýrtíðarmálin, er ríkisstj. hefði nú undirbúið tillögu um. Framsfl. svaraði því 4. febr., kvaðst telja eðlilegast, að hann fengi aðstöðu til að kynna sér tillögurnar, en mundi síðan taka afstöðu til þess fyrir sitt leyti, hvernig hann teldi hagkvæmast að vinna að málinu. Flokkurinn móttók síðan tillögurnar og kaus samstundis þrjá menn, þá Eystein Jónsson, Steingrím Steinþórsson og mig, til þess að ræða við Sjálfstfl. á þeim grundvelli, að ríkisstj. segði af sér, og síðan yrðu þegar teknir upp samningar um lausn mála og mynduð ríkisstj. til þess að hafa forustu þeirra á Alþingi. En áður höfðum við sömu menn, af hálfu Framsfl., athugað í framhaldi viðræðnanna við Alþfl. s. l. haust og í vetur, hvort nokkur lausn yrði fundin á vandanum með honum, og komizt að þeirri niðurstöðu, að sá möguleiki væri ekki til staðar að sinni.

En afstaða okkar framsóknarmanna skýrist einna bezt með því, að ég lesi bréf, er samninganefndin ritaði formanni Sjálfstfl., dags. 13. febrúar.

„Alþingi, 13. febr. 1950. Í framhaldi af bréfi formanns Framsfl., dags. 4. þ. m., viljum við undirritaðir taka þetta fram:

Eftir að flokkurinn móttók tillögur ríkisstj., án greinargerðar, kaus hann okkur til þess að ræða við Sjálfstfl. um stjórnmálaviðhorfið. Við höfum átt tal við hr. Ólaf Thors forsrh. og hr. Bjarna Benediktsson utanrrh. af hálfu Sjálfstfl., og viljum hér með staðfesta þá afstöðu, sem við tókum af hálfu okkar flokks í þeim viðræðum, og þau rök, sem við færðum fram í því sambandi.

1. Framsfl. er reiðubúinn til þess að verða við þeirri ósk Sjálfstfl. að taka upp samninga við hann um frv. ríkisstj. og um lausn vandamála í sambandi við það, ef sú aðstaða til samninga er fyrir hendi, sem rætt er um hér á eftir.

2. Framsfl. telur fullvíst, að ríkisstj. sé það ljóst, að frv. hennar verður ekki lagt fram á Alþingi, án þess að eiga á hættu háskalegar afleiðingar, nema frv. sé þar tryggð fyrir fram umsamin og skjót afgreiðsla.

3. Það má og telja ljóst, að ef málinu er ekki tryggð umsamin afgreiðsla, er allt í óvissu um það, hvernig afgreiðslan verður, er Alþingi hefur lagt á það síðustu hönd.

4. Það virðist ljóst, að minnihlutastjórn, sem yfirlýst er, að ekki hefur stuðning nema sinna flokksmanna einna, hafi mjög takmarkaða möguleika til að tryggja fyrir fram þá samninga um örugga afgreiðslu málsins, sem nauðsynlegir eru.

5. Minnihlutaflokksstjórn mundi eiga mjög óhægt með að framkvæma málið, þótt samþykkt væri, enda mundi minnihlutastjórn, þar sem svo mikið er undir framkvæmdinni komið, tæplega verða falin slík framkvæmd.

6. Við bendum á, að þessum rökum er ekki beint gegn Sjálfstfl. sérstaklega, heldur eiga þau við um hvaða minnihlutaflokksstj. sem með völdin færi. Einum þingflokki, hver sem hann væri, hlyti að reynast mjög örðugt að koma fram þessu stórmáli, er snertir svo margra manna hag, og þó enn örðugra að annast einn framkvæmd þess.

7. Við bendum enn fremur á, að ástandið í fjármálum og atvinnumálum hefur e. t. v. aldrei verið alvarlegra og því aldrei ólíklegra, að minnihlutaflokksstj. geti valdið málunum almennt, en einmitt nú.

8. Þess vegna teljum við augljóst, að ef afgreiðsla mála á að fara þannig úr hendi, að líkur séu til, að það komi að gagni fyrir þjóðina, verði fyrsta skref ríkisstj. að vera það, að hún afhendi Alþ. umboð sitt, þar sem hún telur og, að lokið sé undirbúningsstigi málsins, og síðan séu þegar teknir upp samningar um afgreiðslu þess og ríkisstjórn á breiðari grundvelli, til þess að hafa forustu afgreiðslu mála á Alþ. — og framkvæma síðan þannig, að sem tryggastar líkur fáist fyrir því, að málin séu réttilega framkvæmd og nái tilgangi sínum fyrir þjóðina. Á þessum grundvelli einum telur Framsfl. að nú beri að standa að þessum málum í afgreiðslu og framkvæmd.

Að lokum bendum við á, að ástandið í þjóðmálum er nú svo geigvænlegt, að skylt er og óhjákvæmilegt, að á það eitt sé litið í samningum og sambúð milli flokka, hvernig á því verði fengin viðunandi lausn fyrir þjóðina, og framkvæmd tryggð svo sem verða má.

Með tilvísun til þess, sem nú er sagt, skal þess að lokum getið, að samninganefnd er tilbúin af hálfu Framsfl. til þess að taka upp samningaviðræður fyrirvaralaust á þeim grundvelli, sem lagður er í bréfi þessu.

Virðingarfyllst,

Hermann Jónasson, Eysteinn Jónsson,

Steingrímur Steinþórsson.

Formaður Sjálfstæðisflokksins, hr. forsætisráðherra Ólafur Thors.“

Þessu bréfi svaraði formaður Sjálfstfl. með bréfi dagsettu 15. febrúar.

Í bréfi þessu er tekið mjög undir öll rök Framsfl., þar á meðal um nauðsyn nýrrar og styrkari stj., er tryggi dýrtíðarmálinu greiða afgreiðslu, áður en það sé lagt fram. En síðan dregur formaður Sjálfstfl. þær ályktanir, að ríkisstj. geti ekki sagt af sér.

„Reykjavík, 15. febr. 1950.

Út af heiðruðu bréfi yðar, dagsettu 13. þ. m., skal þetta tekið fram:

Sjálfstfl. er og hefur verið ljóst, að vandamál þau, sem nú er við að etja í atvinnu- og fjármálum landsins, verða ekki leyst nema með samstilltum vilja og aðgerðum meiri hluta þings og þjóðar. Þegar úrslit kosninganna til Alþingis á s. l. hausti urðu kunn, ákvað flokkurinn því að beita sér fyrir og vinna að sem víðtækustu samstarfi lýðræðisflokkanna. Slíku samstarfi varð þá ekki komið á, heldur skipaðist svo, að Sjálfstfl. einn myndaði ríkisstjórn, eins og kunnugt er.

Er sú ríkisstj. gerði grein fyrir stefnu sinni á Alþingi hinn 6. des. 1949, tók forsrh. berum orðum fram og lagði á það megináherzlu, „að farsælast sé að koma á sem víðtækustu samstarfi milli áðurnefndra flokka (lýðræðisflokkanna) um stjórn lands og löggjöf.“ Bætti hann og til frekari áherzlu þessu við: „Að þessu mun stjórnin vinna, og sjálfur finn ég ástæðu til að taka það sérstaklega fram, að slíkt samstarf er á engan hátt háð forsæti mínu eða þátttöku í væntanlegri ríkisstjórn.“

Þessari sömu skoðun, um nauðsyn á víðtæku samstarfi lýðræðisflokkanna um stjórn og löggjöf, hefur síðan hvað eftir annað verið lýst af hálfu Sjálfstfl.

Ef ríkisstj. og Sjálfstfl. með bréfum, dags. 2. febr. s. l., til hinna lýðræðisflokkanna, óskaði eftir því, að freistað yrði að ná samkomulagi um tillögur ríkisstj. um lausn dýrtíðarmálanna, áður en tillögurnar yrðu bornar fram á Alþingi, varð að skilja þá málaleitan í ljósi þessara yfirlýsinga flokksins um nauðsyn á víðtæku samstarfi lýðræðisflokkanna um stjórn landsins og löggjöf. Það var einmitt vegna þess, að ríkisstj. og Sjálfstfl. telja, að slíku samstarfi verði frekar á komið, ef um tillögurnar er samið áður en málið er formlega flutt á Alþingi, að sú leið var farin að óska samninga um þær þegar í stað.

Flokkurinn telur einnig, að tillögurnar séu í eðli sinu slíkar, að mjög æskilegt sé, að þeim sé tryggður meiri hluti, áður en þær eru lagðar fram á Alþingi. Um þetta og margt annað, sem segir í bréfi yðar 2.–7. lið, er Sjálfstfl. yður sammála, enda hafa fulltrúar Sjálfstfl. einmitt hreyft ýmsum þessum rökum á viðræðufundum þeim, er átt hafa sér stað að undanförnu á milli fulltrúa flokkanna.

Af öllu þessu leiðir, að Sjálfstfl. telur það brýna nauðsyn, að nú þegar verði hafnir samningar um myndun nýrrar ríkisstj., er hafi að baki sér meiri hluta Alþingis og geti því tryggt framgang þeirra tillagna um lausn dýrtíðarvandamálsins, er nú liggja fyrir, og hafi að öðru leyti í skjóli þingmeirihluta betri aðstöðu til að ráða fram úr aðsteðjandi örðugleikum, en minnihlutastjórn.

Þessa örðugleika telur Sjálfstæðisflokkurinn svo mikla og ástandið allt svo uggvænlegt, að hann telur sér ekki fært að bera ábyrgð á því, að landið verði stjórnlaust. Þess er ekki ýkja langt að minnast, að það tók h. u. b. fjóra mánuði að mynda nýja ríkisstjórn, frá því hin fyrri sagði af sér. Vonandi tækist betur til nú. En á meðan eigi er neitt vitað, hverjir samningamöguleikar eru milli flokka, verður hvorki sagt, hvort myndun meirihlutastjórnar tekst, né hversu langan tíma samningar um myndun hennar muni taka. Flokkurinn vill því ekki bera ábyrgð á því, að ríkisstj. segi af sér, nema ný stjórn verði þegar í stað mynduð, eða að núverandi stjórn beri af öðrum ástæðum að segja af sér eftir réttum þingræðisreglum, svo sem ef Alþingi lýsir vantrausti á stjórnina.

Að hinu fyrrtalda vill Sjálfstfl. vinna, og er hann fús til að tryggja það, að aðrir flokkar þurfi ekki að óttast, að á bak þeim verði komið með þingrof í miðjum klíðum, meðan á samningatilraunum stendur.

Hins vegar lítur Sjálfstfl. þannig á, að ef nægilega mikill hluti alþingismanna lýsir því með vantraustsyfirlýsingu, að þeir óski, að ríkisstj. láti af störfum. hljóti þeir um leið að taka á sig skuldbindingu til að sjá landinu fyrir löglegri stjórn. Að skoðun Sjálfstfl. getur þvílíkur meiri hluti ekki myndazt nema hann sé andvígur þeim tillögum um lausn dýrtíðarvandamálsins, sem ríkisstj. nú hefur lagt fyrir lýðræðisflokkana, en Sjálfstfl. er sannfærður um, að þær tillögur, með eða án breytinga, séu hinar einu, sem leyst geti vandann. Sjálfstfl. telur það því ótvíræða skyldu sína að leggja tillögur sínar fram á Alþingi áður en til atkvæðagreiðslu um vantraust kæmi, þar eð flokkurinn telur, að Alþingi eigi heimtingu á að kynna sér þær með stjórnskipulegum hætti, áður en það greiðir atkvæði um vantrauststillögu, ef slík tillaga verður flutt og er líkleg til að ná samþykki.

Sjálfstfl. tekur fyllilega undir þau ummæli Framsfl. í fyrrnefndu bréfi, „að ástandið í þjóðmálunum er nú svo geigvænlegt, að skylt er og óhjákvæmilegt, að á það eitt sé litið í samningum og sambúð milli flokka, hvernig á því verði fengin viðunandi lausn fyrir þjóðina og framkvæmd tryggð svo sem verða má,“ og vill að þessu og öllu framangreindu athuguðu mega treysta því, að ekki beri svo mikið á milli um samningsgrundvöll, að ekki hljóti að vera unnt með áframhaldandi viðræðum að finna þá lausn, er allir megi vel við una.

Að lokum vill Sjálfstfl. leiða athygli að því, að svo sem málum nú er komið, er það brýn nauðsyn, að enginn óþarfur dráttur verði á því, að samningar geti hafizt milli Framsfl. og Sjálfstfl, og orðið sem allra fyrst til lykta leiddir.

Virðingarfyllst,

Ólafur Thors.

Til samninganefndar Framsóknarflokksins, p/t hr. alþm. Hermanns Jónassonar, formanns flokksins.“

Þessar röksemdir virtust okkur ekki með öllu fá staðizt. Annaðhvort er ríkisstj. nægilega sterk til þess að koma fram málum — og þá getur hún farið með völd — eða hún er of veik til þess, og þá á hún að segja af sér. Í bréfinu segir, að Sjálfstfl. vilji ekki bera ábyrgð á því, að stj. segi af sér og „landið verði stjórnlaust.“ Við þetta er það að athuga, að það að stjórna ríki er að ráða málum þess. Þjóð, sem hefur ríkisstj., er ekki getur komið fram allra nauðsynlegustu málum, er stjórnlaus. Þótt slík stj. segi af sér, er hún auðvitað beðin að gegna málum, fungera, um stundarsakir, meðan verið er að mynda nýja. Munurinn á störfum og aðstöðu slíkrar fungerandi stjórnar breytist lítið frá því, sem var, þar sem hún var getulaus áður. — Hins vegar er þá opnuð leið til að mynda nýja stj. Engin ríkisstj., sízt minnihlutastj., sem engu getur komið fram, ber ábyrgð á því, hvað við tekur, þegar hún segir af sér, því að það er ekki hennar verk, heldur forseta Íslands að mynda næstu ríkisstj. Og þótt minnihlutastj. segi af sér, er ekki frá miklu að hverfa fyrir þjóðina. Mesti ábyrgðarhluti fyrir slíka stj. er að sitja í vegi fyrir því, að reynt sé að fá aðra, sem einhverju kann að geta komið fram af aðkallandi málum.

En hvað sem þessu líður, neitaði núverandi ríkisstj. að segja af sér, áður en samningar hæfust um nýja stj. og málefni.

Í framhaldi af þessu gerði Sjálfstfl. þá till., að Framsfl. og Sjálfstfl. mynduðu ríkisstj. án málefnasamnings, en samið væri um verkaskiptingu og síðan um dýrtíðarmálið, áður en það væri lagt fram. Forsrh. hefði ekki þingrofsvald nema með samþykki beggja flokka og legði umboð stj. í hendur þingsins, ef ágreiningur yrði svo mikill, að leiddi til slita. En eftir að flokkarnir höfðu gengið saman til stjórnarmyndunar, var talið líklegt, að reynt yrði til hins ýtrasta að ná samkomulagi um málin og að það mundi takast.

Bréf samninganefndar Framsfl., dags. 25. febr., til formanns Sjálfstfl. greinir frá afstöðu Framsfl.

„25. febrúar 1950.

Við undirritaðir, sem höfum af hálfu Framsfl. tekið þátt í samningaviðræðum við Sjálfstfl. um stjórnarmyndun, viljum hér með staðfesta afstöðu flokks okkar, síðan seinustu bréfaviðskipti milli flokkanna áttu sér stað.

Eftir móttöku bréfs formanns Sjálfstfl. stungu samningamenn flokks yðar, herra forsrh. Ólafur Thors og herra utanrrh. Bjarni Benediktsson, upp á því, að Framsfl. og Sjálfstfl. mynduðu ríkisstj., án þess að samið væri um málefni, en samkomulag gert um það, hver verkaskipting skyldi vera milli flokkanna í ríkisstj., og að forsætisráðherra hinnar nýju ríkisstj. mætti ekki rjúfa þing nema með samþykki beggja flokka, en leggja umboð ríkisstj. í hendur Alþingis, ef ágreiningur yrði, svo að til samstarfsslita leiddi. Þessa miðlunartillögu samþykkti flokkur okkar, og við gerðum síðan þá till., að Framsfl. myndaði hina nýju ríkisstjórn, og færðum fyrir rök, sem hér verða ekki talin. Fulltrúar Sjálfstfl. höfnuðu þessu og gerðu kröfu til þess, að stjórnarforseti væri úr þeirra flokki. Til þess að þetta yrði ekki að ágreiningi, féllst Framsfl. á þessa kröfu Sjálfstfl. En jafnframt var bent á í viðræðunum um stjórnarforustuna, að sá flokkurinn, sem hefði hana ekki með höndum, hlyti að eiga rétt á því, að fullt tillit yrði til þess tekið við málefnaskiptingu milli flokkanna í hinni fyrirhuguðu ríkisstjórn.

Við samningamenn Framsfl. buðum þá að bera það undir atkvæði í flokki okkar, að verkaskipting yrði eitthvað á þessa leið:

Ráðherrar Framsóknarflokksins færu með: Utanríkismál og dómsmál, viðskiptamál, landbúnaðarmál, samgöngumál og menntamál.

Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins færu með hina málaflokkana, sem eru:

Stjórnarforusta og það, sem því embætti fylgir, fjármál, atvinnumál öll, önnur en landbúnaðarmál, félagsmál, heilbrigðismál, kirkjumál.

Um þessa uppástungu að verkaskiptingu varð ekki útrætt, því að áður en umræðum um hana yrði lokið, tilkynntu samningamenn flokks yðar okkur, að við nánari athugun á framangreindri stjórnarmyndunaraðferð hafi hann nú komizt að þeirri niðurstöðu, að ekki sé fært að mynda þann veg ríkisstjórn án málefnasamnings.

Viðkomandi áliti flokks yðar á því að leggja frumvarp um gengisfellingu fram án þess að hafa tryggt því meirihlutafylgi vísuðum við til fyrra bréfs okkar um það efni og vöruðum við afleiðingum þess.

Þetta er hér fram tekið til þess að staðfesta af okkar hendi, hver afstaða okkar var í þessum samtölum, og hver niðurstaðan varð.

Virðingarfyllst,

Hermann Jónasson, Eysteinn Jónsson, Steingrímur Steinþórsson.

Til formanns Sjálfstæðisflokksins, hr. forsætisráðherra Ólafs Thors.“

Þessu bréfi svaraði samninganefnd Sjálfstfl. sama dag, 25. febrúar 1950.

„Vegna bréfs samninganefndar Framsfl., dags. 25. febr., skal þetta tekið fram:

Rétt er, að samningamenn Sjálfstfl. voru þess hvetjandi, að reynt yrði, hvort unnt væri að mynda ríkisstjórn, án þess að samið væri fyrir fram um málefni, og kom þá í ljós í samræðum við samninganefnd Framsfl., að forsenda slíkrar stjórnarmyndunar væri, að væntanlegur forsætisráðherra slíkrar stjórnar beitti ekki þingrofsvaldi nema með samþykki allrar ríkisstjórnarinnar. Á það gátu sjálfstæðismenn fallizt.

Í frekari umræðum varð hins vegar ljóst, að samningamenn Framsfl. treystu sér ekki til þess á þessu stigi að láta uppi neitt ákveðið um það, hvað bæri á milli um afgreiðslu höfuðmála og þá einkum um tillögur ríkisstj., sem yður voru sendar með bréfi, dags. 6. febr., eða hver önnur mál flokkurinn mundi tengja við þær.

Að svo vöxnu máli þótti Sjálfstfl. enn vera of veikur grundvöllur fyrir stjórnarmyndun, og þar sem samkomulag var ekki um skiptingu ráðuneyta, skv. þeim tillögum, er fram höfðu komið, og ekki var fært að draga lengur, að Alþingi gæfist á stjórnskipulegan hátt færi á að taka afstöðu til tillagna ríkisstj. um lausn dýrtíðarvandamálsins og ráðstafanir til tryggingar atvinnuvegunum, taldi flokkurinn óhjákvæmilegt að leggja þær tillögur nú þegar fyrir Alþingi. Enda telur flokkurinn, að úr því sem komið var, verði á þann veg bezt skorið úr um framgang þess máls og myndun ríkisstjórnar, er hafi stuðning meiri hluta Alþingis.

Virðingarfyllst,

Ólafur Thors. — Bjarni Benediktsson.

Til formanns Framsóknarflokksins, hr. alþm. Hermanns Jónassonar.“

Hér er réttilega viðurkennt, að Sjálfstfl. hafi verið þess hvetjandi að mynda ríkisstj. án málefnasamnings, og síðan segir, að málefnin hafi ekki legið nægilega ljóst fyrir, og enn fremur orðrétt: „Að svo vöxnu máli þótti Sjálfstæðisflokknum enn vera of veikur grundvöllur fyrir stjórnarmyndun.“ Enn segir, að ekki hafi verið samkomulag um framkomnar till. um verkaskiptingu, enda ekki tími til að ræða þær nánar, — vegna þess að ekki hafi mátt dragast að leggja fram á Alþ. tillögur ríkisstj.

Ég skal engum getum að því leiða, hvað þessum skyndilegu straumhvörfum olli, og ekki fella neinn dóm um þessi slit. Hér er málið lagt fyrir og áheyrendur geta um það dæmt.

Ég geri ráð fyrir því, að mörgum flokksmönnum þyki Framsfl. hafa gengið æðilangt og um of, í þessum samningum. Vissulega gengum við langt, enda teljum við horfurnar nú svo geigvænlegar, að sjálfsagt væri að ganga eins langt til samkomulags og með nokkurri sanngirni mætti ætlast til.

Við lögðum mikla áherzlu á að gera kjósendum það ljóst í síðustu kosningum, að helmingur dýrtíðarráðstafana eða meira væri ekki lögin sjálf, heldur framkvæmd laganna í höndum ríkisstj. Í undanförnum samningum lögðum við áherzlu á að fá þau ráðuneyti, sem hefðu aðalframkvæmd dýrtíðarlaganna. Í annan stað gerðum við okkur vonir um að ná samningum í ríkisstj. um framgang þeirra mála, er við lögðum mesta áherzlu á. En tækist þetta ekki að verulegu leyti, var opin sú leið, að þ. skæri úr með atkv., og höfðum við þess vegna með því að fara í ríkisstj. ekki afsalað okkur neinni aðstöðu sem kjósendur höfðu fengið okkur. — En á þetta reyndi ekki, því að Sjálfstfl. sleit viðræðum, svo sem áður er greint.

Ríkisstj. hefur nú lagt fram frv. um gengislækkun. Fróðustu menn telja, að þess þekkist engin dæmi meðal þjóða, að frv. um gengisfellingu sé lagt fram á þ. án þess að tryggja því fyrir fram skyndiafgreiðslu. — Ef ríkisstj. hefur unnið eitthvert gagn með því að láta semja frv. þetta, hefur hún þó sennilega unnið margfalt meira tjón með því að kasta því inn í þingið. Flestir munu telja, að slík vinnubrögð ónýti að verulegu leyti það gagn, sem af gengisbreytingu getur orðið.

Það er auðvitað nægilegt tilefni til vantrausts á ríkisstj., að hún viðhefur slík vinnubrögð. — Það er enn fremur nægilegt tilefni til vantrausts, að ríkisstj. hefur sýnt það í samningatilraunum, að hún leggur á það megináherzlu að fara með málin ein í framkvæmd. En það, sem skiptir þó mestu máli, er það, hvernig frv. er að efni til. Við stöndum að vísu frammi fyrir því, að fjármál okkar eru þar komin vegna dýrtíðar, að gengið er fallið, og verður því að viðurkenna það með nýrri skráningu krónunnar eða þvinga allt niður, sem hagfræðingar telja okkur ofraun. — En þótt þessi reynd blasi við, réttlætir hún alls ekki þá vinnuaðferð núverandi ríkisstj. að þvinga fram gengisbreytinguna sem sjálfsagða ráðstöfun, slitna úr samhengi við aðrar aðgerðir og heildarstefnu. Í grg. frv. ríkisstj. er gefin von um frjálsari verzlun síðar — en ekki fyrst um sinn. En í frv. er þó ekki gert ráð fyrir neinum aðgerðum til að gera verzlunarhætti heilbrigðari, ekki til að útrýma svörtum markaði eða vöruokri, ekki til að koma í veg fyrir okurhúsaleigu, ekki til að framleiðendur geti fengið ódýrari rekstrarvörur, og eignarskatturinn er ekki fullnægjandi. — Verk hagfræðinganna var að reikna með köldum og vonandi klárum tölum, hvað gera þyrfti, til þess að framleiðslan haldi áfram og ríkissjóður geti flotið. En það þarf og að hugsa fyrir því, að málið sé svo réttilega fram borið, að alþýða manna viti það og trúi því, að Alþ. geri jafnhliða gengisbreytingunni ráðstafanir, er sýni, að það vill gera og gerir allt, sem í þess valdi stendur til þess að draga úr byrðum almennings. Þetta er ekki aðeins réttlætismál, heldur er þessi vinnuaðferð sú eina, sem gefur okkur rökstuddar vonir um það, að málið verði ekki ónýtt í framkvæmd. En ef svo færi, væri ástandið í fjármálum verra orðið en áður.

Af þessum ástæðum hefur Framsfl. einatt gert það að skilyrði fyrir fylgi sínu við gengislækkun, að margnefndar hliðarráðstafanir væru gerðar samtímis. Ríkisstj., sem slítur gengisbreytinguna úr samhengi, er alls ekki fær um að hafa forustu þess máls. Og þótt þetta fengist leiðrétt í meðförum, er ríkisstj. ekki fær eða treystandi til að framkvæma þær aðgerðir, sem hún hefur sýnt að hún er andvíg. — Hægri ríkisstj., fulltrúi hinna efnuðustu, skapar ekki þá tiltrú á framkvæmdinni, sem umfram allt þarf að vera fyrir hendi hjá alþýðu manna, ef von á að vera til þess, að framkvæmdin takist til úrbóta.

Það er svo efni í ræðu, sem ekki verður haldin hér, hverjir eiga sök á hruni íslenzkra fjármála. En hlustendur geta glímt við þá gátu, hvort þeir menn eru líklegastir til að bjarga þjóðinni, er öllu komu á höfuðið í mestu góðærum, er Íslandssagan kann að greina frá, og skildu ekki, hvert stefndi, fyrr en seinustu vikurnar, er þeir sjálfir voru að verða gjaldþrota unnvörpum.

Hef ég þá talið nokkur rök fyrir því, að núverandi ríkisstj. á að segja af sér — og ætti að hafa gert það.

Ýmsir spyrja, hvað við taki. Það yrðu ekki miklar umbætur til, ef alltaf ætti að sjá um það fyrir fram, að eitthvað fullkomið tæki við. — Víst er það, eins og ég hef sýnt, að ekki er mikið að missa, þótt þessi hæstv. ríkisstj. víki, og ekki ætti það að vera ókleift að bæta þann skaða.

Aðalatriðið er, að nú þegar verður að koma á ríkisstj., sem hefur forustu um það að leysa dýrtíðarmálið á breiðari grundvelli og réttlátari fyrir alþýðu manna, svo sem ég hef nokkuð rakið, ríkisstj., sem líklegt sé, að vinnandi fólk trúi betur en hæstv. núverandi stj. til réttlátra framkvæmda.