01.03.1950
Sameinað þing: 29. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í D-deild Alþingistíðinda. (3605)

124. mál, vantraust á ríkisstjórnina

Forseti (StgrSt) :

Hv. þm. Hafnf., Emil Jónsson, hefur lokið máli sínu og talaði í 15 mínútur af hálfu Alþfl., en alls hefur flokkurinn notað 34 mínútur. — Þá er fyrri umferð í þessum útvarpsumr. lokið, og hafa flokkarnir notað þann tíma, er hér segir: Framsfl. 30 mínútur og á 15 mínútur eftir, Sjálfstfl. 30 mínútur og á 15 mínútur eftir, Sósfl. hefur talað í 39 mínútur og á 6 mínútur eftir, og Alþfl. hefur talað í 34 mínútur og á 11 mínútur eftir.

Þá hefst síðari umferð. Fyrstur tekur til máls hv. 1. þm. S-M., Eysteinn Jónsson. Talar hann af hálfu Framsfl. og hefur 15 mínútur til umráða.