11.01.1950
Efri deild: 27. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (362)

81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Mér þykir rétt að gera grein fyrir afstöðu minni til þessa máls og þeirra brtt., sem fram eru komnar. Þá vil ég fyrst benda á, að í árslok 1946, þegar byrjað var á að fara inn á þessa braut, þá benti ég á, að ef ríkissjóður ábyrgðist verð á bátafiski, þá mundi sá víxill aldrei verða greiddur með öðru, en gengisfalli. Á hverju ári síðan 1946, þegar þessi mál hafa verið til umr., hef ég á þetta bent, en meiri hluti Alþingis hefur ekki viljað á skoðanir mínar fallast, þótt reynslan sanni nú, að svo mun fara, að þessi ábyrgð verður ekki greidd á annan veg. Ég hef því alltaf verið mótfallinn þessari stefnu, þegar af þessari ástæðu. Í öðru lagi er ég á móti ábyrgðinni vegna þess, að hún ber í sér dauðann fyrir atvinnuveginn, sem á að styrkja með henni. Ég sá þetta bezt, er ég s.l. ár starfaði í 6 vikur svo að segja nótt og dag með hæstv. ríkisstj. til þess að reyna að finna lausn á þessu vandamáli. Þá sá ég bezt, að ábyrgðin er ekki siður skaðleg fyrir útveginn sjálfan, en fyrir ríkissjóð. Í fyrra var aflað upplýsinga um það, hver meðalafli bátaflotans væri. Eftir að hann var fundinn út, þá var fiskverðið ákveðið miðað við það, að meðalafli gæfi ákveðnar tekjur, og tók svo ríkissjóður ábyrgð á því verði. Ef hæsti hlutur er 20 þús. kr. og lægsti 10 þús. kr., sem ekki mun fjarri lagi, þá er meðalaflahlutur 15 þús. kr. og við það er miðað verðlag á aflamagni, en þá er stjakað burt öllum, sem eru fyrir neðan meðallag. Þeir verða að hætta, því að þeir geta ekki starfað lengur undir þessu kerfi, og af þessu skýrist, hvers vegna menn eru alltaf að koma síðar til ríkissjóðs og biðja um nýjar bætur, svo að ríkissjóður hefur orðið að verja milljónum á ári til þess að bjarga þessum mönnum. Eftir 3 ár er meðalaflinn svo orðinn það hár, að hann nálgast hámarksafla fyrsta árið, svo að þá er kerfið búið að drepa í sér alla nema toppmennina. Þetta sýnir, að kerfið er mjög hættulegt fyrir útveginn, og er raunar furðulegt, að útvegsmenn skuli ekki hafa neitað að starfa undir því, en það, sem veldur því, að þeir hafa ekki gert það, er það, að þeir hafa haft aðgang að öðrum bótum úr ríkissjóði. Fyrir því er ég mótfallinn þessu kerfi og hefði verið andvígur þessu frv., ef hér væri ekki um bráðabirgðalausn að ræða, sem aðeins á að gilda til 1. marz. Ég tel því, að það sé ekkert meginatriði, hvort horfið er að þessari stefnu hálfum mánuði fyrr eða síðar. — Í þriðja lagi vil ég benda á, að ég tel hverja hækkun á ábyrgðarverðinu torvelda að mun möguleikann til þess að leysa úr þeim vandamálum, sem nú bíða úrlausnar. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem ég hef bent á þetta, en alþm. hafa ekki viljað hlusta á þau rök. Það er nýlega búið að samþ. hér á Alþingi þáltill., sem hefur í för með sér 15 millj. kr. ný gjöld á framleiðsluna, því að beint eða óbeint hljóta þau gjald að lenda fyrr eða síðar á framleiðslunni, en helztu rökin fyrir réttmæti þessarar kröfu voru einmitt þau, að uppbót hefði verið greidd á fiskframleiðsluna og þeir, sem að henni unnu, því fengið hærra kaup, en þeir aðilar, sem hér áttu hlut að máli. Þetta er því glöggt dæmi um þá hringrás eða hringavitleysu, sem átt hefur sér stað og valdið því öngþveiti, sem nú er verið að glíma við. Ég benti í upphafi á, að þessi stefna leiddi til ófarnaðar, en var þá í minni hluta. Nú sér ekki aðeins minni h lutinn, að þessi leið er ekki fær lengur, heldur allir, og þess vegna hefur hæstv. ríkisstj. ákveðið að leggja fram till. um aðrar leiðir fyrir 1. marz n.k. Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er því eingöngu bráðabirgðalausn, sem ekki er ætlað að gilda nema til 1. marz, svo framarlega sem Alþingi ber þá gæfu til að ná samkomulagi um lausn út úr ógöngunum. Ég skal því ekki tefja þetta bráðabirgðamál með frekari gagnrýni á meginefni þess. En það er annað, sem ég vil leyfa mér að benda á, sem er þessu máli skylt og hefði verið þörf á að leysa, en frv. nær ekki til. Það er vandamál 17 togara af eldri gerð, sem liggja bundnir við festar í stað þess að afla tekna fyrir einstaklinga og þjóðina í heild. Það er nú upplýst í sambandi við kröfur útvegsmanna, að þessi veiðifloti gæti aflað fyrir 20% lægra verð, en þessi fiskábyrgð gerir ráð fyrir. Þessi floti mundi líka flytja gífurlegar tekjur í þjóðarbúið og það í erlendum gjaldeyri. Mig undrar því, að ekki skuli vera stafkrókur í þessu frv. um lausn á þessu máli. En þetta verður sjálfsagt líka að afsakast með því, að hér sé einungis um bráðabirgðalausn að ræða, sem aðeins eigi að gilda til 1. marz, en þá verði þessi mál öll tekin til úrlausnar. Í trausti þess mun ég ekki flytja brtt. um lausn á þessu vandamáli. Það eru líka harla einkennileg vinnubrögð hjá hv. Nd. að setja inn í frv. algerlega óskylt ákvæði, það er 6. gr., sem er ábyrgð á allt annarri vöru, en þar er ekki svo mikið sem minnzt á þetta mikilvæga atriði. Það hljóta að liggja einhverjar aðrar ástæður fyrir slíkum ráðstöfunum, en einber umhyggja fyrir lausn á því máli, sem hér er til umræðu, því að allir sjá, að innskot eins og þetta gerir málið torleystara.

Þessu frv. hefur nokkuð verið breytt frá því það var lagt fram af ríkisstj., t.d. hefur 14. gr. þess, eins og það þá var, verið felld niður. Í því sambandi er rétt að benda á, að þennan leik átti líka að leika fyrst, þegar l. um fiskábyrgðina voru til umr. 1946, en þá hafði þessi d. nægan þrótt til þess að koma í veg fyrir slík skemmdarverk og fékk málinu breytt. Annars hafa vinstri flokkarnir alltaf viljað fella niður allar tekjuöflunarleiðir, en hins vegar flutt hverja till. eftir aðra um aukna ábyrgð. Með slíkum vinnubrögðum er auðvitað kippt burtu möguleikum til þess, að hægt sé að veita nokkra ábyrgð, en um það hefur yfirleitt lítið verið hugsað. Nú hefur þessi barátta verið endurtekin af vinstri flokkunum og hafa þeir fellt úr þessu frv. allar tekjuöflunarleiðir í Nd. Væri hér ekki um bráðabirgðalausn að ræða, hefði ég tekið upp baráttu fyrir því að fá tekjuliði tekna inn í frv., því að í raun og veru er það engin lausn öðruvísi. En þar sem viðkomandi aðilar, sem fellt hafa tekjuliðina niður, hljóta að gera ráð fyrir að geta fallizt á væntanlegar till. ríkisstj. um varanlega lausn þeirra vandamála, sem með þessu frv. á aðeins að leysa til bráðabirgða, þá mun ég ekki taka upp slíka baráttu nú. Ég get ekki séð aðra skýringu á því, að felldir hafa verið niður allir tekjuliðir frv. Þessir menn eru ekki svo skammsýnir, að þeir sjái ekki, að ábyrgðina er ómögulegt að greiða, nema aflað sé fjár til þess. Annars ætla ég ekki að ræða þetta atriði frekar, en vil hins vegar drepa á nokkur atriði í sambandi við þær brtt., sem fram hafa komið.

Í sambandi við ábyrgðarverð á lýsi hefur komið fram sú skoðun, að auðvelt væri að selja það fyrir það verð, sem hér er gert ráð fyrir, ef vel væri haldið á markaðsmálunum. Ég verð að álíta, að þessi staðhæfing stafi af þekkingarskorti á þessum málum, og vil því leyfa mér að upplýsa ástæðurnar fyrir verðfallinu á lýsi. Á styrjaldarárunum var geysimikil þörf fyrir lýsi í heiminum og þar af leiðandi mikil samkeppni um að fá það. En framleiðslan fullnægði ekki eftirspurninni, og var þá hafizt handa um að finna efni, sem gætu komið í staðinn fyrir lýsið. Þetta tókst, og nú er sú framleiðsla komin á það stig, að gerviefnin, sem koma í staðinn fyrir lýsið, eru miklu ódýrari en lýsið sjálft. Þetta hefur svo valdið verðlækkun á lýsinu, og nú erum við að súpa af því seyðið. Það er því ekki rétt að ásaka þá, sem séð hafa um sölu á lýsi, fyrir það verðfall, sem orðið hefur.

Á þskj. 201 er brtt. frá 4. þm. Reykv. (HG), sem hann hefur lýst. Ég hef áður minnzt á, að heppilegt væri að fella 6. gr. niður, eins og þar er lagt til, en hins vegar tel ég það ekki skipta verulegu máli; hvort gr. er samþ. eða ekki, og til þess að tefja ekki afgreiðslu málsins mun ég fylgja því óbreyttu.

Út af ummælum þessa sama þm. í sambandi við rekstur útvegsins og einkum það, að auðvelt væri að draga úr rekstrarkostnaðinum, þá vil ég geta þess, að ég hef átt sæti í nefnd, sem sérstaklega var falið að rannsaka þessi mál, og m.a. var flokksbróðir þessa hv. þm., 3. landsk. (GÞG), líka í n. Og niðurstaða okkar var sú, að ekki væri hægt að benda á leiðir, sem drægju verulega úr rekstrarkostnaði. Það er ekki þar með sagt, að allt sé eins og það bezt getur verið, og auðvitað er hægt að benda á ýmislegt smávegis, sem betur má fara. Slíkt má finna í öllum rekstri, og mætti benda á sérleyfisleiðina til Hafnarfjarðar sem dæmi, þar sem einhverju virðist ábótavant.

Þá ætla ég að minnast á till. hv. 1. þm. N-M. (PZ) og það, sem fram kemur í henni. Það er líka rétt að taka strax fram, að þetta, sem hér hefur komið fram hjá þessum hv. þm., er ekki einsdæmi um hans sannleiksást. Það kom nefnilega seinast fyrir hann í Sþ. í dag að verða ber að ósannindum. Hann hélt því fram, að 7. þm. Reykv. (GTh), borgarstjórinn í Rvík, hefði fengið 2.000 kr. fyrir að starfa í ákveðinni nefnd. Sannleikurinn var hins vegar sá, að þessi upphæð hafði skipzt á milli 3 nm. Þm. lagði nefnilega vísitölu á sannleikann, og væri gott, ef hann temdi sér hóflegri álagningu næst. En af þessu dæmi sést, að það er vissara að taka fullyrðingar þessa hv. þm. með varúð. (PZ: Ég vísaði þm. í dag á frumgögn málsins, og þar er hægt að kynna sér, hvernig vinnubrögð n. hafa verið.)

Hv. 1. þm. N-M. sagði, að frílistavörurnar hefðu verið seldar á svörtum markaði, án þess að færa frekari rök fyrir því. Ég veit ekki um þennan svarta markað, en það kann að vera, að S.Í.S. hafi náð í eitthvað af þessum vörum og selt þær á svörtum markaði. Í þeim herbúðum mun þm. kunnugastur, og talar því ef til vill af eigin reynslu. Það ganga þær sögur, að miðstöð svarta markaðarins sé í Sambandinu, en ekki skal ég segja um, hvort þær sögur eru sannar. Um sjómannagjaldeyrinn er það að segja, að hann er greiddur sjómönnum erlendis og er varla mikið fram yfir nauðsynlegt uppihald og ef til vill fyrir eitthvað smávegis handa þeirra eigin heimilum, enda virðast sjómenn ekki illa að slíku komnir. Hitt, að þessi gjaldeyrir haldi uppi svörtum markaði hér heima, trúi ég ekki að sé rétt. Þá sagði þm., að hann treysti ekki, að ríkisstj. gerði neitt í þessum málum, en hún tæki hins vegar lán í leyfisleysi, og nefndi í því sambandi togarakaupin. Það var rætt um þessa lántöku ríkisstj. í dag og sýnt fram á, að um fullkomna heimíld var að ræða, svo að í því máli er líka hin venjulega vísitöluálagning á sannleikann hjá þessum hv. þm.

Út af brtt. 2. þm. S-M. (VH), á þskj. 192, um ábyrgð á lifrarverðinu kr. 1,30 pr. kg., vil ég gera þá aths., að það er harla einkennilegur hugsunarháttur að vilja nú bæta inn ábyrgðarliðum í frv., þegar búið er að fella niður tekjuliðina á þeirri ábyrgð, sem fyrir er. Nú má ef til vill afsaka þennan hv. þm. með því, að hann sé nýr í starfi hér á Allþingi, og sennilegt þykir mér, að þm. hafi flutt till. að órannsökuðu máli í skjóli þess, að hún var flutt í Nd. af þaulvönum þm., þm. V-Húnv. (SkG), og er það óskiljanlegt, að hann skyldi leyfa sér slíkt ábyrgðarleysi. — 2. þm. S–M. sagði, að frv. væri mjög gallað og alls ekki hægt að samþykkja það nema til bráðabirgða, en hann taldi það ná tilgangi sínum og þess vegna mundi hann greiða því atkv. Út af þessum ummælum hv. þm. vil ég benda honum á þá staðreynd, að undirstaðan í því, að frv. nái tilgangi sínum, er sú, að ríkisstj. hafi fé til þess að greiða ábyrgðarverðið. En hans flokkur hefur farið þannig með þetta mál, að þetta nauðsynlega atriði er numið brott úr frv.

Ég ætla þá að minnast á till. hv. 4. landsk. (StgrA) og ummæli hans. Hann benti á, að þessi ráðstöfun væri aðeins einhvers virði fyrir þá, sem gera út við Faxaflóa. Ef hann telur, að unnt væri að láta þessar ráðstafanir ná til Norðurlands, þá hefði hann og hans flokkur ekki lagt blessun sína yfir, að því væri kippt burt úr frv. að afla tekna til að standa straum af ábyrgðinni allt árið, en það er nauðsynlegt. Hann ætlar að láta samþykkja ábyrgð, sem er einskis virði, aðeins til að narra menn út á sjóinn, en síðan geta menn ekki selt aflann fyrir hálfvirði og ekki heldur gengið í ríkissjóðinn, af því að flokkur þessa hv. þm. hefur brugðizt þeirri skyldu að sjá um tekjur til að standa straum af ábyrgðinni. Og þegar hv. 4. landsk. var að ásaka ríkisstj. fyrir að láta ekki frílistann ná einnig yfir Norðurlandssíldina, þá var hann að langmestu leyti að ásaka sjálfan sig fyrir þá skammsýni að hafa barizt á móti því, að gjaldeyririnn væri seldur á réttu verði. Þetta er ekkert annað en gengisfall, og þó að þessir menn hafi alltaf barizt á móti því, á viðurkenna þeir, að það sé til að örva útgerðina við Faxaflóa, og eins yrði fyrir norðan.

Ég mun greiða atkvæði með frv. eins og það liggur fyrir, með tilvísun til þess, að hér sé aðeins um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, og greiða atkvæði á móti öllum brtt., sem fram hafa komið hér í málinu.