25.01.1950
Sameinað þing: 21. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í D-deild Alþingistíðinda. (3633)

24. mál, læknisbústaður á Reykhólum

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil taka það fram út af ræðu 1. þm. N-M. (PZ), að ríkið hefur aldrei selt Reykhóla. Land það, sem hér um ræðir, varð eign viðkomandi hreppsfélaga löngu áður en ríkið eignaðist Reykhóla. Jörðin var þá í eigu dánarbús Bjarna heitins Þórðarsonar. Erfingjar hans gerðu þau skipti að fá jörðina Laugaland, sem var eign Reykhólahrepps, gegn afhendingu þess lands, sem nú fylgir læknissetrinu, og þetta gerðist allt áður en ríkið eignaðist jörðina. Mér þykir rétt að benda á, að þessi þáltill. er ekki krafa frá héraðsbúum, heldur hefur nefndin, sem fjallar um skipulagningu Reykhóla, spurzt fyrir um það, hvort viðkomandi hreppar mundu vilja afhenda ríkinu landið, sem tilheyrir læknissetrinu, ásamt hita- og beitarréttindum, og ef svo væri, þá með hvaða skilyrðum. Þessu hafa viðkomandi oddvitar svarað á þá leið að þeir fyrir sitt leyti gætu fallizt á og mundu leggja til, hver við sitt hreppsfélag, að umrædd réttindi ásamt læknisbústaðnum yrðu afhent ríkinu gegn því, að ríkið sjái héraðinu fyrir læknisbústað og kosti viðhald hans framvegis að öllu leyti. Það er ekki verið að bjóða neitt með okurverði, heldur án nokkurrar greiðslu, landið, hitaréttindi og þann hluta hússins, sem ríkið á ekki, en það mun hafa lagt í þennan bústað rúmlega 40%.

Í sambandi við Kleppjárnsreyki er sama að segja. Þar er ekki verið að bjóða neitt með okurverði, heldur er um svo hagstætt tilboð að ræða, að ég tel, að ríkissjóður geti ekki hafnað því. Þar á ríkið að fá gott hús með hitaveitu, útihúsum og bílskúr ásamt 3 hekturum lands, sem liggur að landi ríkisins. Þetta er allt boðið gegn því eina endurgjaldi, að ríkið haldi læknisbústaðnum við. Ég segi, að þetta sé hagkvæmt tilboð, og það er áreiðanlega ekki há húsaleiga fyrir lækninn, þó að hún samsvari viðhaldi á húsinu, einkum þegar þess er gætt, að hiti er innifalinn. Ég held, að það væri því misráðið, ef ríkisstj. fengi ekki heimild til þess að taka þessu tilboði.

Ég vil svo í sambandi við það, sem 5. landsk: sagði, taka það fram, að ég tel samþykkt þessarar þáltill. alls ekki marka spor í þá átt, að ríkið eigi að taka að sér alla læknisbústaði, því að í þessum tilfellum báðum er um algera sérstöðu að ræða, þar sem annars vegar er þörf á þessu landi vegna skipulagningar umhverfisins, en hins vegar er aðstaðan sú, að ríkið á land umhverfis, og í því ásamt landinu, sem tilheyrir læknisbústaðnum, er um samfelld hitasvæði að ræða, sem heppilegast er að nýta í einni heild. Ég vil því endurtaka það, að ég tel misráðið, ef ríkisstj. fær ekki heimild til að yfirtaka þessar eignir.