22.03.1950
Sameinað þing: 36. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í D-deild Alþingistíðinda. (3672)

130. mál, kristfjárjarðir o.fl.

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég tek hér til máls, af því að 1. flm. er fjarstaddur, en ég get verið fáorður um þessa till.

Ég get þegar í upphafi sagt það sem mína skoðun, að ég er frekar íhaldssamur í þessum málum og tel yfirleitt, að með þessar eignir, sem gefnar eru í sérstöku augnamiði, þá sé neyðarúrræði fyrir þjóðina að breyta því og alls ekki gerandi, nema brýna nauðsyn beri til þess, því að það er lítt uppörvandi fyrir þá, sem ætla að gefa eitthvað til opinberra þarfa, að horfa upp á það, að verið sé að breyta gjafabréfum og ákvæðum, sem þeir, sem á undan hafa verið, hafa gert. En orsökin til þess, að ég er meðflm. þessarar till., er sú, að hinar svokölluðu kristfjárjarðir hafa mjög mismunandi aðstöðu í landinu. Þær munu líklega vera 22, og er ýmislega farið um þær. Sumar eru gefnar hreppum, sumar kannske heilum sýslufélögum eða sóknum og munu ákvæði um þær vera misjöfn. En tildrögin til þess, að þessi þáltill. er komin fram, er sú, að á þessu þingi var borin fram till. um að selja eina slíka jörð á Fljótsdalshéraði. Ég álít, að það geti ekki komið til mála að samþ. að selja eina slíka jörð, án þess að gera sameiginlega athugun á þessum jörðum og till. um, hvernig með þær skuli fara. Því varð að samkomulagi, að hv. flm. tæki þessa till. aftur, en flytti þessa till. í hennar stað sem 1. flm. Við vitum það, að kristfjárjarðir hafa verið seldar. Ég heyri sagt, að í Árnessýslu hafi ein jörð verið seld, í Gnúpverjahreppi, og ein austur í Múlasýslu. Ég veit ekki, hvað fleira kann að hafa verið selt af slíkum jörðum, en þetta þarf að samræma. Það þarf fyrst að athuga, hvort fært þyki að selja þessar jarðir eða ekki, og koma samræmi á um sölu þeirra. Það má segja um þá, sem hafa eftirlit með opinberum sjóðum, að þeir hefðu átt að líta eftir þessum eignum líka, en það hefur verið litið svo á, að þær heyrðu ekki beint undir opinbera sjóði. Auk þessara jarða eru einnig jarðir, sem eru sjóðaeign, og enn þá fleiri, sem eru hreppseign, en við vitum, að hrepparnir þurfa ekki að leita til Alþingis um sölu slíkra eigna, heldur er nóg að fá samþykkt sýslun. um það atriði.

Ég veit, að það er ýmislegt, sem mælir með að breyta til um það fyrirkomulag, sem nú er. T. d. er sagt um eina jörð, ekki langt frá Reykjavík, að hún sé svo yfirbyggð og endurbætt, að ekki sé þar um afgjald að ræða um tugi ára. Ég geri ráð fyrir, að ef ætti að skoða þessar jarðir sem opinberar jarðir, þá væri rétt að leigja þær með erfðaréttindum, og fengju þá þeir, sem tækju jarðirnar þannig á leigu, rétt til að kaupa þær og gera þær að óðalsjörðum. Þetta þarf að athuga líka.

Ég sé ekki ástæðu til að tala langt mál um þetta, en vil aðeins óska eftir, að till. verði vísað til allshn. að lokinni þessari umr. og hún geri þá sína till. um það t. d., hvort skuli vísa henni til ríkisstj. eða einhverra annarra stofnana eða n., sem eru við störf.

Ég get svo látið útrætt um þetta mál, en vísa til grg. fram yfir það, sem ég hef þegar sagt um þetta atriði.