11.01.1950
Efri deild: 27. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í B-deild Alþingistíðinda. (368)
81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.
Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Hv. þm. hafa nú talað vítt og breitt um málið, sem vera ber, sumpart fyrir brtt. og sumpart ekki. Það er ekki ástæða fyrir mig að eltast við allt, sem fram hefur komið, því að hv. þm. Barð. tók af mér ómakið viðvíkjandi sumu, t.d. um það, sem hv. 1. landsk. (BrB) sagði, og er ég hv. þm. Barð. þar í flestu sammála. Það var upphaf á ræðu hv. 1. landsk., að hann taldi vel farið, að allar till. til að standa undir fiskábyrgðinni hefðu verið felldar, aðallega af því, að allar þessar till., sem felldar voru í hv. Nd., hefðu verið sama og gengislækkun. Það má að vísu segja, að aukning eða hækkun á innflutningsgjöldum sé gengislækkun, því að pá hækkar varan. En þá má og segja með sömu röksemdafærslu, að öll hækkun á vöru, þjónustu, vinnulaunum o.fl. sé gengislækkun. Er það gott, að slíkt kemur fram hjá hv. 1. landsk., og vona ég, að slíkt sé einnig skoðun flokks hans. En ég býst fastlega við, að flokkur hv. þm. sé á móti gengislækkun, þótt hann þrátt fyrir það hafi ötullega stutt margar þær aðgerðir, sem styðja að undirbúningi á falli peninganna.
Ég skal svo ekki dvelja lengur við ræðu hv. 1. landsk., en flokksbróðir hans, hv. 4. landsk. (StgrA) beindi til mín nokkrum fyrirspurnum í sinni ræðu, sem ég vildi svara. — Það fyrsta, sem ég vildi drepa á, er það, að mér fannst kenna um of hjá hv. 4. landsk., að honum fannst landsfjórðungunum vera mismunað, þar sem ábyrgðinni er einungis ætlað að ná yfir vetrarvertíðina og þar sem á hinum svokallaða frílista séu einungis vörur, sem framleiddar eru hér sunnanlands. Að því er snertir fyrra atriðið, þ.e.a.s. ábyrgðina, hefur hv. 1. þm. Eyf., sem er úr sama landsfjórðungi og hv. 4. landsk., svarað því svo rækilega og með svo glöggum rökum, að ég þarf engu við að bæta. Ég vil þó taka það enn fram, að við, sem sömdum frv., ætluðumst til, að það gengi jafnt yfir alla, og vona ég, að hv. þingmaður og þingmenn trúi því. — Hvað frílistann áhrærir, vil ég taka eftirfarandi fram: Hvað Faxasíldina snertir, þá var hún náttúrlega af eðlilegum ástæðum veidd hér sunnanlands, og skýrir það sig sjálft. En hvað aðrar vörutegundir á frílistanum snertir, þá koma þær einnig að mestu leyti mönnum í öðrum landsfjórðungum til góða, a.m.k. þeim, sem stunda hér atvinnu á vertíðunum. Hvað flatfiskinn snertir, kemur hann öllum, sem þær veiðar stunda, jafnt til góða. Og þannig er það með flest á þessum frílista. Ég vil líka benda hv. þm. á, að frílistinn var ekki búinn út með annað fyrir augum, en að hann kæmi öllum landsmönnum að sem beztum notum. — Skal ég svo ekki dvelja lengur við það efni.
Þá spurði hv. þm., hvort útvegsmenn hefðu gert einhverjar fleiri kröfur. Jú, þeir nefndu bæði þorskalýsi og ísvarinn bátafisk. Þá minntust þeir einnig á, að reknetasíldin yrði sett á frílista. Nú er það svo, eins og komið hefur fram í ræðum hv. þm., bæði hér og í hv. Nd., að hinn svokallaði frílisti hefur verið úthrópaður mjög að óverðskulduðu. Þessi frílisti er þannig til kominn, að eftir að við höfðum horft upp á það um langan tíma, að hrognum og öðrum verðmætum sjávarafurðum var fleygt, þá kom mér í hug að gefa útvegsmönnum einhver fríðindi í sambandi við þessar tegundir, til þess að koma í veg fyrir ónýtingu þeirra og skapa þannig gjaldeyri fyrir þjóðina og atvinnu fyrir landsmenn. Á þetta sjónarmið var fallizt, og bættust síðan smátt og smátt ýmsar aðrar lítt seljanlegar vörutegundir við, t.d. skrápur og annað, sem varla getur heitið seljanleg vara. Fram að síðastliðnu hausti voru á þessum lista aðeins fáar vörur, og ekki gat heitið, að um stórar upphæðir væri þar að ræða, en ég hef þó vissu fyrir því, að útvegsmenn töldu sér þetta töluverða hjálp í þrengingum sínum. En allan tímann hafa verið til menn, sem hafa séð ofsjónum yfir þessu og úthrópað á alla lund, t.d. búið til alls konar Gróusögur um misnotkun útvegsmanna á gjaldeyrinum. Svo er það á þeim tíma, sem hæstv. fyrrv. ríkisstj. sat, að Faxasíldin komst inn á þennan frílista, og var það ekki álitið stórt atriði, þar eð ekki hafði veiðzt svo mikið af henni. En svo ber það við á síðastliðnu hausti, að töluvert magn af þeirri síld veiðist, og ber ekki að harma það. Ég hef einnig fyrir mér álit fróðra manna í því, að ekki hefði verið hægt að selja þær 40 þús. tunnur, sem var það magn af Faxasíld, sem aflaðist á liðnu hausti, nema þessi háttur hefði verið á hafður. Ég gerði í hv. Nd. í gær grein fyrir reglunum, sem hæstv. fyrrv. viðskmrh. setti um þennan frjálsa gjaldeyri, og gat sannað með rökum, sem enginn treystist til að mótmæla, að þessi gjaldeyrir hefur verið undir ströngu eftirliti verðlagsyfirvaldanna. Útvegsmönnum hefur verið skammtað álagið á gjaldeyrinn af verðlagsyfirvöldunum og þeir síðan skilað honum til bankanna. Ég vil taka það skýrt fram, að það er alveg rangt og styðst ekki við nein sannindi, að útvegsmenn hafi gengið um og reynt að selja hann hæstbjóðanda. Ég vissi til þess í haust, að útvegsmenn gerðu með sér samlag, þar eð bankarnir voru latrækir á að lána rekstrarfé, og seldu þeim fyrirtækjum gjaldeyrinn, sem vildu veita þeim nokkurn styrk. Ég veit að vísu ekki, hverjir það voru, sem þannig fengu þennan gjaldeyri. Ég keypti engan sjálfur né mín fyrirtæki, en mér er sagt, að S.Í.S. hafi keypt mikið af þessum gjaldeyri, og harma ég það ekki, því að þetta er stór aðili. Ég hygg, að þeir, sem kasta oftast hnútum að verzlunarstéttinni og einstökum kaupmönnum, muni ekki vilja vanvirða S.Í.S. fyrir þetta. — Ég vil svo taka það enn fram; að allt tal um svartan markað á þessum umrædda gjaldeyri er sagt út í bláinn. Ég skýrði frá því í hv. Nd., eftir ósk frá hv. 1. þm. S-M. (EystJ), hvaða vörutegundir það væru, sem keyptar eru fyrir hrognapeningana, og gat fæst af því kallast lúxusvarningur. Þó má vera, að eitthvað smávegis af þeim vörum megi nefnast því nafni, en ef þær tegundir hefðu ekki verið fluttar inn fyrir þennan gjaldeyri, er alveg víst, að notaður hefði verið til þess venjulegur gjaldeyrir.
Þá held ég, að hv. þm. hafi spurt, hvort ég hefði í hyggju, að bæta við frílistann. Ég lýsti því í hv. Nd., hvað fyrrv. hæstv. ríkisstj. hefði fallizt á, og einnig lét ég í það í ljós, að ég teldi rétt að bæta á frílistann þorskalýsinu. Ég skal og láta þess getið, að um það hefur komið krafa frá útvegsmönnum. Allt þetta kemur til af því, að menn eru að reyna að bæta útvegsmönnum það í munni með frílistanum, að gjaldeyririnn, sem þeir skapa, hefur verið tekinn af þeim fyrir allt of lágt verð. Þessa staðreynd veit ég, að við viðurkennum allir í hjarta okkar. Ég er t.d. alveg viss um, að ekki hefði þurft að koma eins fljótt til ábyrgða, hvað þá til frílistans, hefði útvegsmönnum verið reiknað hærra verð fyrir útflutningsvöru sína, en sá gjaldeyrir, sem þeir hafa skapað, ekki verið tekinn af þeim á skráðu gengi og fenginn í hendur mönnum, sem hvergi hafa komið nærrí við raunverulega öflun hans. — En ég ætla ekki að dvelja lengur við þetta. Ég hef gefið hv. þm. eins góð svör og ég hef getað og bætt við nokkru. Ég get einnig sagt það, að ég er hv. 4. landsk. eiginlega sammála hvað viðvíkur reknetasíldinni. En hvað heldur hv. þm., að sumir kollegar okkar hér í hv. d. mundu segja, ef öll reknetasild ætti að takast á frílista? En ég vil segja, að öll meðferð þessara mála eigi rétt á sér, svo fremi að það verði til þess að auka atvinnu, bæta afkomumöguleika útgerðarinnar og síðast en ekki sízt til að skapa gjaldeyri fyrir þjóðina. Það sýndi sig bezt með Faxaflóasíldina s.l. haust, hvaða verðmæti náðust inn í landið vegna beinnar tilstuðlunar frílistans, og ætti þetta dæmi að nægja til að sanna, að frílistinn á rétt á sér. Ég tel það alveg fullkominn óþarfa, eins og stungið hefur verið upp á, að taka inn í lögin grein, er kveði á um, hvaða vörur það séu, sem á frílistanum eigi að vera. Það hefur aldrei komið til mála að víkka hann svo, að hv. þm. þurfi nokkuð að óttast í því efni. Hingað til hefur það líka verið skilningur hæstv. ríkisstj., að þetta væri fullkomið framkvæmdaratriði eða verðlagsatriði, ekkert ólíkt verðlagningu á kjöti og mjólk. Er það mín skoðun, að sjómenn eigi alveg eins rétt á að fá sína framleiðslu verðlagða og bændur. Hv. þm. Str. (HermJ) benti á atriði í þessu varðandi lögfestingu. Það er ekki skoðun mín né annarra þeirra, sem að frílistanum standa, að hann eigi að haldast, ef allt væri fellt og útgerðin gæti staðið á eigin fótum. Hér er því aðeins um að ræða stundarfyrirbrigði, þar sem reynt er að létta undir með útgerðinni, þar til varanleg lausn er fengin. Ég er því sammála hv. þm., að ekki eigi að vera að setja þetta á lög. Ég mundi hvorki sem þm. né útvegsmaður leggja til, að nokkur hlutur væri á frílista, ef afkoma útvegsins væri slík, að þess þyrfti alls ekki með og útvegsmenn fengju sinn gjaldeyri reiknaðan á sómasamlegu verði, en það hafa þeir ekki fengið.
Hv. 2. þm. S-M. (VH) hefur flutt hér brtt. varðandi þorskalifur. Hann vill taka hana beinlínis inn í ábyrgðina. Brtt. þessi átti upptök sín í hv. Nd. og var fram borin þar af flokksmanni hv. 2. þm. S-M., hv. þm. V-Húnv. (SkG), og hún var felld þar í hv. þd. Ég er ekki alveg viss um, að þessir tveir hv. þm. og þeir, sem kunna að samþ. þessa brtt. með þeim, geri sér ljóst, hvað þeir eru að bera hér fram. Lifrin er í fyrsta lagi ósambærilegur hlutur, eftir því, hvar við landið hún er veidd. Það er gersamlega ósambærileg vara vetrarvertíðarlifur hér syðra og t.d. sumarlifur fyrir norðan og e.t.v. fyrir austan. Ég veit ekki, hvort hún er fyrir austan alveg eins slæm og fyrir norðan. En, sem sagt, sumarlifur og vetrarlifur er sitthvað. Og lengi var sumarlifur í mörgum veiðistöðvum hreint og beint fleygt. Til skýringar fyrir þá, sem ekki gera sér ljóst, hvers vegna að er, skal ég taka fram, að það kemur miklu meira lýsi úr vetrarlifur en úr sumarlifur. En nú vill hv. 2. þm. S-M. láta alls staðar vera sama verð fyrir lifrina, jafnt verð fyrir beztu vöruna og verstu vöruna, og það eru dálítið nýstárlegir verzlunarhættir, sem hann vill taka upp með því móti. Ætli mönnum fyndist það ekki einkennilegt, ef sama verð ætti að borga fyrir I. og III. flokk af ull eða því um líkt? Ég benti á það, að útvegsmenn hefðu óskað eftir því hér í viðræðum við ríkisstj., að bátalifrin kæmist á frílista, vegna hins lága verðs, sem er á lýsinu. En útvegsmenn hafa aldrei beðið um, að ríkissjóður yrði látinn taka ábyrgð á lifrarverðinu. Í fundarsamþykkt L.Í.Ú. eru taldar upp þær vörur, sem þeir óskuðu tekna ábyrgð á. En engar óskir hafa komið frá útvegsmönnum um, að ríkissjóður ábyrgðist þeim lifrarverð, hvorki hátt né lágt. Lifur er ekki nefnd þar.
Nú eru menn ákaflega óánægðir með ábyrgðarlögin yfir höfuð, og ég held, að ekki neinir af hv. þm. hafi bannsungið ábyrgðina á fiskinum kröftuglegar en einmitt Framsfl.-menn. Þeir hafa lag á að koma vel orðum að því, hve ábyrgðin sé óheppileg, og má vel vera, að þetta sé rétt. Hún er af mörgum talin ekki æskileg og ekki heldur af mér. Og þá finnst mér kátbroslegt, að sá flokkur, sem fordæmt hefur ábyrgðina, sem útvegsmenn hafa talið sér nauðsynlegt að fá á fiskverðinu, gerir nú ítrekaðar tilraunir til þess að troða upp á útvegsmenn ábyrgð á vöru, sem þeir hafa ekki beðið um. Hvað gæti orðið um að ræða sem aukakostnað af þessari ábyrgð, skal ég ekki fullyrða. En mér skilst, að yfir vetrarvertíðina mundi þessi hækkun, sem hv. 2. þm. S-M. og flokksbræður hans lýsa sig fylgjandi, geta numið eitthvað frá einni og hálfri upp í tvær millj. kr., og ef um allt árið væri talað, þá frá tveimur og hálfri upp í þrjár millj. kr., sem þetta kostaði ríkissjóð. Og ég vil biðja hv. þm. að gæta að því, að um það bil allir, sem eiga von á að fá kr. 1,30 fyrir lítrann af hvaða lifur sem um væri að ræða, mundu leggja stund á að hirða allt, sem lifur heitir, handa ríkissjóði til að bræða.
Af því, sem ég hef tekið fram, mótmæli ég því, að þessi brtt. verði samþ. Hún bakar ríkissjóði að óþörfu milljónaútgjöld, ef hún verður samþ. og framkvæmd. Hún er enn fremur ekki fram komin að vilja útvegsmanna, heldur á móti þeirra vilja. Og hún skapar misrétti í afurðaverðinu, þar sem þeir, sem framleiða beztu vöruna, eiga að fá nákvæmlega jafnt verð og þeir, sem framleiða verstu vöruna. Ég gerði það svona að gamni mínu að sýna hv. 2. þm. S-M. fram á þetta. En hann hafði nú þau orð, þegar hann rökstuddi sitt mál, að það mundi vera óþarfi að tala mikið um þetta, því að það væri ákveðið, að ríkisábyrgð yrði tekin á lifrarverðinu„ svo að mér skildist, að hann væri ekki kominn til þess að láta sannfærast. En ég gat ekki stillt mig um að benda á þetta, öðrum til athugunar.
Hv. þm. Barð. (GJ) minntist hér á 15. gr. og nauðsyn þess, að endurskoðun yrði framkvæmd á henni, ef til kæmi. Ef það fellur í minn hlut að líta eftir framkvæmdum í þessum efnum, þá hef ég fullan vilja á því, að svo fremi að misbrestur sé á orðinn á síðasta ári við þessa framkvæmd, þá hef ég enga löngun fyrir mitt leyti til þess, að slíkt endurtaki sig. Hitt er annað mál, að ég veit ekki enn, hvort sönnur hafa verið færðar á, að misbrestur hafi orðið einhver hjá skilanefnd. En um það getum við rætt, ég og þeir, sem hafa haft framkvæmd þessa með höndum á sínum tíma, og er ég fús til þess að ræða um þetta við þá, ef það fellur í minn hlut að framkvæma í þessum efnum.
Ég tel þá, að öllu athuguðu, enga nauðsyn á því, heldur til spillis, að fara að lögfesta þennan svo kallaða frílista. Hann er ekki svo merkilegur, að það taki því. Og ég tel síður en svo nauðsyn á að bæta lifrinni ofan á ábyrgðina, því að það er eiginlega að leggja algerlega öfugt á, því að það kæmi þvert ofan í allt annað, sem gerzt hefur í þessum ábyrgðarmálum, og það er ekki samkv. óskum þeirra, sem eiga að njóta þessara laga.
Ég vil út af ræðu hv. 4. landsk. þm. benda honum á t.d., að það er svo fjarri því, að menn utan Faxaflóa hafi verið neinar hornrekur viðkomandi þessum ábyrgðum, að svo miklu leyti sem ég hef við ráðið. Og í tíð fyrrv. ríkisstj. þá var með mínu samþykki og með minni ábyrgð haldið uppi sérstökum stuðningi við útgerð á Hornafirði, með því að ríkið lánaði þeim fisk flutningabát, og var ekki veitt öðrum slík hjálp. Ég bendi bara á þetta til þess að sýna, að það var ekki tilhneiging til þess að gera upp á milli landsfjórðunga.
Hv. 1. þm. N-M. (PZ) hefur barið sér mjög á brjóst og haft eiginlega mestan hávaða í frammi um hinn svo kallaða frílista. Mér þykir leiðinlegt, að hann skuli ekki hafa heyrt það, sem ég sagði um frílistann (PZ: Ég var hér í næsta herbergi.) Það er ekki svo voðalegt, sem þar hefur átt sér stað, að heimurinn forgengur ekki fyrir þennan frílista. Og ég hygg, að þegar hann gætir sín, þá muni það fara svo, af því að hann er ekki ósanngjarn á vissum sviðum, og svo er þetta bráðgreindur maður, að hann hljóti að skilja það, að þegar útvegsmenn voru svona aðþrengdir sem þeir voru, þá var það réttmætt, að þessir svo kölluðu hrognapeningar yrðu gefnir þeim frjálsir. Og hefði hv. 1. þm. N-M. með sinni frábæru skarpskyggni, kynnt sér hag útvegsmanna, þá hefði hv. þm. séð, að þessa var ekki vanþörf. En svo kom þessi ólukka með þennan hatt, og það virðist hafa sett þennan hv. þm. alveg út úr stuðinu. Hatturinn var svo dýr. Og fyrst hann var svona dýr, þá voru það bölvaðir hrognapeningarnir, sem voru að verki. Mér þykir sorglegt, að þetta skuli hafa farið svona í taugarnar á þessum hv. þm. Þó er annað verra, að þetta með hattinn virðist hafa farið alveg með það traust, sem þessi hv. þm. virðist hafa haft áður á ríkisstj. (PZ: Hún var ekki til þá, þessi ríkisstj.), það, að hatturinn var svo dýr.
Það hefði verið að mínum dómi heppilegast, ef hægt hefði verið að afgreiða þetta frv. frá þessari hv. d. án breyt. Og ég get ekki séð, að það geti verið mjög mikið kappsmál fyrir þá, sem bera hér fram brtt., að halda þeim til streitu. Það er ekkert af þeim brtt., sem hér hafa komið fram, sem ég tel nauðsynlegt að lögfesta í þessum bráðabirgðaráðstöfunum.
Hv. frsm. fjhn. flutti eina af sínum rökföstu ræðum í þessu máli, og ég get verið honum sammála, er hann sagði, að ábyrgðin gæti gert mikið tjón. Og það er vitanlegt, ef ekki er hægt undir henni að standa. En þá virðist mér óeðlilegt, að hann vilji auka ábyrgðina að áþörfu með því að samþ. viðaukatill. við hana hér, án þess að þess sé óskað af útvegsmönnum.
Að lokum vil ég segja, að umr. hér í hv. Ed. og líka í hv. Nd. um þetta mál, þær sýna glögglega, að það eru svo margir hv. þm., sem láta orð falla þannig og tala flestir með allsterkum orðum um það, að þessi ábyrgð sé fánýt, hún sé jafnvel skaðleg, og að það sé rík nauðsyn á öðrum gagngerðum og raunhæfum aðgerðum. Ég vil álíta, að hv. þm. mæli þetta af fullri sannfæringu. Sjálfur er ég líka þeirrar skoðunar, og ríkisstj. hefur lýst sig þessarar skoðunar. Þegar nú annars vegar er í húfi svo að segja höfuðframleiðsla landsmanna til að standa undir verzlunarjöfnuðinum við útlönd og þar með hag alls almennings í landinu, þá finnst mér, þegar athugaðar eru skoðanir manna á þeirri leið, sem hér er verið að stinga upp á að fara til bráðabirgða, að þá hljóti þjóðin að geta vænzt þess, að þessir ágætu hv. þm., sem láta í ljós þetta álit sitt í sambandi við þetta mál, muni þá freista þess að finna aðra leið og happadrýgri til þess að leysa útflutningsvandamál þjóðarinnar. Og ég tel, eins og þeir, sem um þetta hafa rætt hér í hv. þd., að þessi nauðsyn sé mjög brýn. Og þá kemur til kasta þeirra sömu manna, sem svo álíta, að horfa beint á ástandið eins og það er og draga þar af réttar ályktanir, — það kemur þá til þeirra kasta að láta smávægilegan kryt og flokkadrátt víkja fyrir þeirri höfuðnauðsyn að sameina sig um þann höfuðgrundvöll, sem líklegur mætti verða til þess að koma að varanlegu gagni í þessu efni. Ég segi varanlegu, að svo miklu leyti sem það er okkur áskapað að geta séð, hvað er varanlegt eða ábyggilegt í þessum efnum. Öllum virðist bera saman um, að það, sem við hér erum að leitast við að samþykkja sem bráðabirgðalausn, eigi ekki að vera nema stundarfyrirbrigði. Og þess vegna vil ég vona, að þegar fram verða lagðar till. til úrræða, sem eru í undirbúningi um heilbrigðari lausn á þessum málum, þá megi hv. meiri hl. Alþ. bera gæfu til þess að standa saman um viðunandi og varanlega lausn vandamálanna, til hagsbóta fyrir þjóðina í heild.