07.02.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í D-deild Alþingistíðinda. (3721)

70. mál, uppbætur á ellilífeyri o.fl.

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Till. sú, sem hér um ræðir, fer fram á, að greiddar séu 20% uppbætur á ellilaun og örorkubætur, og sé greiðslan miðuð við 1. júlí 1949. Fjvn. sendi Tryggingastofnun ríkisins mál þetta til umsagnar og fékk þær upplýsingar þar, að greiðslurnar mundu nema 2,8–2,9 millj. kr. fyrir 6 mánuði, eða 5,7 millj. fyrir allt bótatímabilið, ef till. yrði samþ. óbreytt. N. fékk einnig þær upplýsingar frá Tryggingastofnuninni, að undanfarið hafi allar greiðslur, ellilaun og örorkubætur, örorkustyrkur og makabætur, allt verið greitt með vísitölu 315 í stað hinnar lögbundnu vísitölu, 300, og muni þetta nema um 5% hærri bótagreiðslu en ef miðað hefði verið við hina lögbundnu vísitölu. — Þá hefur einnig verið upplýst, að Tryggingastofnunin greiðir að mestu leyti sjúkrasamlagsgjöld fyrir allan þorra lífeyrisþega vegna frestunar á heilsugæzlu, og mun þetta nema um 5% af upphæðinni fyrir alla lífeyrisþega. Er því ljóst, að Tryggingastofnunin hefur greitt allt að 10% uppbót á launin, þegar þetta er athugað. Það er alls ekki sjónarmið meiri hl., að þegar greidd hafi verið 20% uppbót á laun embættismanna og samþykkt að greiða uppbót til farkennara, þá sé ekki sanngjarnt eða eðlilegt að greiða einhverjar uppbætur til þeirra manna, sem lægstar hafa tekjur til að lifa af, svo sem þeirra, sem hafa ellilaun og örorkubætur, enda var það mjög tekið fram í framsöguræðu meiri hl. fjvn. þá, að svo framarlega sem þessi launauppbót yrði samþ. á Alþ., væri óhjákvæmilegt að taka þetta mál einnig til athugunar. Við erum því sammála hinum nm. um það, að þetta þurfi að gera, en þannig, að í samráði við Tryggingastofnunina verði komizt að samkomulagi um það, að þetta sé unnt án þess að leggja þessar byrðar í þetta skipti á sjálfan ríkissjóðinn. Í tryggingalögunum eru ákvæði um það, hvernig byrðunum af tryggingunum sjálfum skuli skipt á hina ýmsu aðila í landinu. Ríkissjóður greiði þar ákveðinn hluta, bæjarfélög og sveitarsjóðir ákveðinn hluta og sjálfir þegnarnir í landinu ákveðinn hluta með iðgjöldum. Ef till. yrði samþ. óbreytt, yrði þessu hlutfalli raskað þannig, að þessi þungi, sem nemur tæpum 6 millj. kr. á ári, er allur lagður á ríkissjóð, en ekki hina aðilana, sem eiga samkv. l. að bera þungann af tryggingunum. Þessa aðferð telur meiri hl. fjvn. ekki eðlilega, en virðist eðlilegast, að uppbótin komi frá tryggingunum sjálfum, með hækkuðum iðgjöldum á þegnana, ef það er nauðsynlegt, og hækkuðum framlögum frá sveitarfélögunum, ef það er nauðsynlegt, en greiðist ekki eingöngu úr ríkissjóði, eins og hér er ætlazt til. Nú er það svo, að undanfarin ár hafa tryggingasjóðirnir aukizt allverulega, en nokkur ágreiningur hefur risið um það milli tryggingaráðs annars vegar og fjmrn. hins vegar, hvort tryggingarnar hafi heimild til þess samkvæmt l. að halda þessum sjóðum, sem safnazt hafa, eða hvort þeir séu eign ríkissjóðs. Fjvn. lítur svo á, að þótt um þetta kunni að vera einhver óskýr ákvæði í l. sjálfum, þá sé það engan veginn eðlilegt og ekki heldur hyggilegt að rýra þessa sjóði nú þannig, að þeir séu látnir ganga til ríkissjóðs, heldur sé rétt að láta Tryggingastofnunina geyma þá til að mæta ýmsum útgjöldum, m. a. þeim útgjöldum, sem hér um ræðir, og enn fremur til þess að mæta öðrum áföllum, sem ætlazt er til, að sé mætt með ríkisábyrgð, í l., þannig að ekki sé rétt að láta þetta ganga til ríkissjóðs. Þegar alls þessa er gætt, þótti meiri hl. n. eðlilegast, að þetta mál, sem hér liggur fyrir, væri afgreitt með rökst. dagskrá, sem hér er komin fram á þskj. 259, og vil ég vænta þess, að hún verði samþ., því að það teljum við á allan hátt eðlilegustu afgreiðslu málsins.