07.02.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í D-deild Alþingistíðinda. (3730)
70. mál, uppbætur á ellilífeyri o.fl.
Sigurður Guðnason:
Herra forseti. Það eru aðeins fá orð út af því, sem frsm. meiri hl. sagði. Hann vildi halda því fram, að mismunurinn á vísitölunni, sem greitt var eftir til bótaþega og annarra launamanna, hefði verið kaupuppbót, eftir því sem mér skilst, og vill nú draga hana frá þeirri sanngjörnu kröfu, sem hér liggur fyrir. Sannleikurinn er sá, að þegar dýrtíðarlögin voru sett, tókst Sósfl. á síðustu stundu að koma í veg fyrir, að gengið yrði eins nærri bótaþegum og til stóð, því að það var fyrir atbeina Sósfl., að ákveðið var að greiða bætur eftir vísitölu 315. En það var ekki nein kaupuppbót, heldur voru þessar bætur svo lágar, að það þótti ekki fært að fara lengra niður á við með þær. Ég vil því leyfa mér að endurtaka það, að Alþingi er að ráðast á garðinn, þar sem hann er lægstur, ef það samþ. ekki að bæta upp lífeyri til aldraðs fólks og öryrkja eins og laun opinberra starfsmanna.