07.02.1950
Sameinað þing: 23. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í D-deild Alþingistíðinda. (3732)

70. mál, uppbætur á ellilífeyri o.fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Það er alveg sama, hvaða orðaleikur er viðhafður um þetta mál, það breytir ekki staðreyndum. Það sanna í málinu er, að síðan launal. voru sett, hefur ekki orðið á þeim önnur hækkun en þau 20%, sem nú hefur verið ákveðið að greiða. Hitt er líka augljóst mál, að með 10% hækkun á ellilífeyri nú hefur hann hækkað hlutfallslega, eða um rúm 20% frá því að lögin voru sett. Það skiptir ekki máli, þó að nokkuð af þessari hlutfallshækkun hafi orðið þegar ákveðið var að greiða laun eftir vísitölu 300, en þá var ellilífeyririnn greiddur með vísitölu 315. Það breytir ekki niðurstöðunum, hvenær þessar hækkanir urðu. Þeirri dagskrártill., sem hér liggur fyrir, er ætlað að tryggja það sama hlutfall milli þessara flokka, sem ákveðið var þegar lögin voru sett. Um hitt er svo hægt að deila, hvort þetta upphaflega hlutfall sé rétt, en það er bara annað mál. Ég var nú satt að segja dálítið undrandi yfir þeim staðhæfingum 6. þm. Reykv. (SG), að sú ákvörðun að greiða ellilífeyri með vísitölu 315, þegar ákveðið var að greiða öll laun með vísitölu 300, hafi verið fyrir harðfylgi Sósfl. Ég man ekki betur en það hafi verið samkomulag milli tryggingaráðs og fjvn., sem réð þeim úrslitum við 2. umr. dýrtíðarl. (SG: Hver flutti till.?) Ég man ekki betur en það væri meiri hl. fjhn., og Sósfl. gerði þar ekki annað eða meira en þm. hans réttu upp hendurnar. Það hefur líka stundum heyrzt úr þeirra herbúðum, að þeir hafi hamrað tryggingalöggjöfina í gegn, en það er eins í því máli, að þeirra hlutur var aðeins sá að rétta upp hendurnar til samþykkis, en það skal líka fúslega viðurkennt, að þeir fylgdu málinu. En hafi 6. þm. Reykv. gaman af slíku grobbi, þá er kannske synd að svipta hann þeirri ánægju. Annars var þetta atriði um að greiða lífeyri með vísitölu 315 aldrei lögbundið, heldur var aðeins um heimild að ræða.