19.04.1950
Sameinað þing: 39. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í D-deild Alþingistíðinda. (3754)
73. mál, tunnuverksmiðja á Akureyri
Gísli Jónsson:
Hv. flm. till. hefur gert ýtarlega tilraun til að ófrægja meiri hl. fjvn. fyrir afgreiðslu þessa máls, og allur hans málflutningur hefur hnigið í þá átt að ásaka meiri hl. n. fyrir afstöðu hans til till. og það þrátt fyrir það, að hv. frsm. meiri hl. fjvn. hefur sýnt fram á með rökum, að það ber ekki að ásaka meiri hl. n. fyrir afgreiðslu málsins. Ég þarf ekki að hjálpa hv. frsm. meiri hl. í þessu efni, því að hann hefur rækilega tekið allt fram, sem máli skiptir, og hrakið allt, sem fram hefur komið hjá hv. flm. Ég vil samt í sambandi við þetta mál taka það fram, að ég held, að hv. flm. hafi frá upphafi beint þessu máli í öfuga átt, með því að senda það fyrst og fremst inn á Alþ. og síðan til fjvn. Hann hefði átt að haga þessum málflutningi á allt annan veg frá byrjun. Það, sem í raun og veru er um að ræða hér, er, að mér skilst, að hv. flm. og Akureyrarbær eru óánægðir með stj. tunnuverksmiðjanna. Og hv. flm. hefur lýst því yfir, að form. síldarútvegsn. væri persónulega á móti því, að tunnur væru smíðaðar á Akureyri. Hvers vegna kemur þá hv. þm. ekki með brtt. við þáltill. eða dregur hana til baka og kemur fram með till. til breyt. á l. um stj. tunnuverksmiðjanna, þannig að þessi maður, sem er svo mikið á móti tunnuverksmiðju á Akureyri, sé ekki látinn stjórna þessu fyrirtæki? Mér virðist hann ætti að sætta sig við málið eins og það kemur frá fjvn., en bera svo fram brtt. um, að þessi maður megi ekki koma nærri stj. tunnuverksmiðjanna eða stjórna nokkru fyrir landið yfirleitt. (StgrA: Ég skal styðja það.) Ég vil nú leyfa mér að benda á það, að till., eins og hún er orðuð á þskj. 119, hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina, að hún hlutist til um það, að tunnuverksmiðja ríkisins á Akureyri verði starfrækt svo, að um „verulegan árlegan rekstur sé að ræða“,“ o. s. frv. Hvað meinti hv. flm. með þessu? Meinti hann það, að hæstv. sjútvmrh. ætti að þvinga stj. tunnuverksmiðjanna, þ. e. a. s. síldarútvegsn., til að láta starfrækja tunnuverksmiðju á Akureyri? Eða meinti hann það, að ríkið ætti að kosta einhvern hluta þess, sem það kynni að kosta meira, eða alla þá upphæð, sem það kynni að kosta meira að smíða tunnur á Akureyri, en á Siglufirði? Einmitt till. hans um að senda málið til fjvn. bendir til, að hann hafi talið, að það kostaði einhver aukaútgjöld. (StgrA: Ég lagði til, að till. yrði vísað til allshn.) Till. hefur verið vísað til fjvn., af því að gengið hefur verið út frá því, að hún hefði einhver útgjöld í för með sér. Nú vil ég biðja hv. flm. að skilja það, að fjvn. hefur því hlutverki að sinna að halda fast að starfsemi þeirra fyrirtækja, sem rekin eru á opinberan kostnað, um að það verði ekki á þeim fjárhagslegur halli. Hún hefur sent þungar áminningar til þeirra fyrirtækja, sem árlega skila stórkostlegum rekstrarhalla, og í þessu tilfelli veit hv. flm. að ekki ber að setja hallann af þessum rekstri á ríkissjóð, heldur ber að leggja allan þann kostnað á sjávarútveginn sjálfan, þá aðila, sem veiða síldina og selja hana út úr landinu. Þess vegna er eðlilegt, ef hann telur sleifarlag á þessum málum, að hann beri fram brtt. um það, að einhverjum öðrum aðilum sé falin stjórn þessara mála heldur en þeim, sem nú hafa hana með höndum, og alveg sérstaklega, þegar hann heldur því fram hér, að formaður n. sýni einhvern persónulegan fjandskap í garð Akureyrar. Ég held það væri alveg óverjandi af fjvn. að leggja nokkuð annað til en það, sem fram kemur í nál. á þskj. 509, og óverjandi líka, að Alþ. fylgdi þáltill. þessari. Í till. meiri hl. fjvn. felst aðeins það, að þessum málum verði hagað sem bezt má verða fyrir þá aðila, sem eiga að fá tunnurnar. Hvernig ætti fjvn. að leyfa sér að leggja annað til en að þeir, sem falið er að stjórna þessum málum, vinni að þeim á sem hagkvæmastan hátt? Og ekkert annað hefur hún gert. Hins vegar hefur hv. flm. reynt að sækja málið á þeim grundvelli, að hér væri um að ræða samning, milli ríkisins annars vegar og Akureyrarkaupstaðar hins vegar, um það, að tunnuverksmiðjan skyldi verða rekin þar, hvort sem hún borgaði sig eða ekki, og í sambandi við einhver fríðindi, sem í kaupsamningnum eru, — sem engin eru og sízt af öllu fríðindi til að bera uppi stórkostleg útgjöld við tunnuverksmiðju, og sérstaklega þegar þess er gætt, ef það er rétt, sem formaður síldarútvegsn. segir, að miklu óhagkvæmara sé að smíða þær þar, en á Siglufirði.
Í sambandi við orðalag till., þar sem gerð hefur verið athugasemd við það, að talað er um stjórn síldarútvegsn., þykir mér rétt að leggja fram brtt. um það, að í stað „stjórn síldarútvegsn.“ komi: síldarútvegsn. — Það er upplýst, að yfir n. sé engin sérstök stj. Ég tel ekki nauðsynlegt að gera þetta, en til að fyrirbyggja allan misskilning, þá tel ég rétt að breyta þessu. Hitt var svo dálítið hlægilegt, að einn nm. upplýsti, að í því fyrirtæki væri engin stjórn, og það getur verið, að það gefi enn meiri tilefni til þess að gera till. um að setja yfir þetta einhverja stj., sem stjórnaði málunum eins og vera ætti. Ég veit ekki, hvort persónulegar ástæður eru fyrir því, að formaður síldarútvegsn. vill ekki láta smíða tunnur á Akureyri. Okkur fannst það ekki, þegar við ræddum við hann, en aftur á móti fannst okkur það eðlilegt, meðan magnið er ekki meira en það er, sem þarf að smíða á þessu ári, að því væri ekki skipt á milli margra staða, og okkur virtist það eðlilegt, að hægt væri að fá ódýrara heildarverð á tunnum með því. En sé það raunverulega þannig, að hægt sé að fá ódýrari tunnur á Akureyri, þrátt fyrir þessi ummæli form. síldarútvegsn., heldur en á Siglufirði, þá á að sjálfsögðu að gera ráðstafanir til þess, að aðrir menn, sem mundu reka þetta á hagkvæmari hátt en stj. gerir, taki við því. Mér skilst, að síldarútvegsn. hafi boðið Akureyrarbæ að kaupa aftur þetta fyrirtæki á kostnaðarverði. Eru þá möguleikar á því fyrir Akureyrarbæ að starfrækja sjálfur þessa verksmiðju, eins og hann gerði áður, og gæta þá sinna hagsmuna á tvennan hátt, með því að skaffa nóga atvinnu á vetrum og skaffa betri og ódýrari tunnur en síldarútvegsn. getur látið smíða á Siglufirði. (StgrA: Það hef ég ekki fullyrt.) En jafngóðar og jafnvel betri, og þá ætti Akureyrarbær að ganga að þessu góða tilboði og hirða sína verksmiðju með öllum hennar gögnum og gæðum — og þeim göllum, sem henni fylgja.