26.04.1950
Sameinað þing: 40. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í D-deild Alþingistíðinda. (3761)

73. mál, tunnuverksmiðja á Akureyri

Jóhann Jósefsson:

Þar sem ég hef orðið að taka afstöðu í þessu máli sem sjávarútvegsmálaráðh. áður, þá þykir mér hlýða að mega segja nokkur orð til að skýra mitt atkvæði. — Það er þannig, að það hefur ekki verið hægt að fá lán til þess að koma upp tunnuverksmiðju í fullkomnum stíl á Akureyri, eins og til var ætlazt í byrjun. Hins vegar viðurkenni ég fyrir mitt leyti, að Akureyringar eigi nokkra kröfu á því, og sérstaklega atvinnurekendur við Eyjafjörð, að tunnur séu búnar til að einhverju leyti á Akureyri, a. m. k. svo, að fullnægi söltunarstöðvum við Eyjafjörð. Og þegar til þeirra kasta kom í haust, að skorað var á ríkisstj. að hlutast til um, að tunnur yrðu smíðaðar á Akureyri, þá gerði ég ráðstafanir í samráði við síldarútvegsnefnd til þess, að þessari ósk Akureyringa yrði fullnægt, að nokkru leyti að minnsta kosti, með því að ákveða, að 10 þús. tunnur yrðu smíðaðar í vetur s. l. á Akureyri. — Nú er þessi þáltill., ef samþ. yrði, nokkuð sterk fyrirskipun frá Alþ. til ríkisstj. um að reisa tunnuverksmiðju á Akureyri eða reka hana. Og ég veit ekki, hvort það eru möguleikar á því fyrir núv. hæstv. ríkisstjórn, fremur en var í tíð fyrrv. ríkisstjórnar, að verða við þeirri kröfu, eins og hún er orðuð í þessari þáltill. Hins vegar er til þess vísað í dagskrártill., að síldarútvegsn. leitist við að haga sinum aðgerðum þannig, — og þegar talað er hér um nefndina, er talað um sjávarútvegsmálaráðh., sem í hvert sinn ræður mestu um, hvað gert er í þessu máli, — eins og hentugast verði fyrir alla aðila. Og í því trausti, að sami háttur verði hafður á, þrátt fyrir það þó þáltill. þessi sé ekki samþ., eins og ég hafði á þessu máli, meðan minna afskipta naut við í þessu efni, að hlustað verði á rök Akureyringa og þar verði látið smíða tunnur til þess að fullnægja eftir megni þörfum Eyfirðinga í þessu efni, hvað tunnusmíði snertir, þá get ég fallizt á að greiða þessari dagskrártill. atkv. En það er í trausti þess, að ekki verði síður litið til tunnusmíðar á Akureyri af hálfu ríkisstj. eftir á heldur en áður. Og segi ég því já við dagskrártill.