14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í D-deild Alþingistíðinda. (3797)
62. mál, kaup sjómanna síldveiðiflotans
Flm. (Áki Jakobsson) :
Herra forseti. Ég þarf ekki að fjölyrða um þetta mál, það hefur áður borið á góma í Alþingi í sambandi við önnur mál, og eins og hv. þm. sjá, er ætlazt til, að ríkisstj. sjái um, að sjóveðskröfur verði innleystar, og er það látið opið, hvort ríkið gerir það sjálft eða fær bankana til þess að gera það. Þeir hafa ýmist lánað sjálfir út á skipin eða hafa með höndum þá sjóði og stofnanir, sem gera það. Þessar stofnanir láta ekki selja skipin fyrir litlum hluta af verðmæti þeirra. Sjóveðskröfunum er þannig háttað, að bankarnir munu leysa þær út heldur en að tapa veðréttinum fyrir lánum þeim, sem þeir hafa veitt út á skipin. En kröfuhafar fara alla dómstólaleiðina til uppboðs, og það getur tekið marga mánuði að fara þá leið, og jafnframt hleðst alls konar aukakostnaður utan um kröfurnar. Það er því ekki nema rétt, að ríkið geri strax það, sem því ber að gera, áður en skipin eru slegin einhverjum aðila, en ég býst við, að flest skipin séu þannig, að þau séu ekki látin fara á uppboð. Það er því ekki eftir öðru að bíða en láta aukakostnaðinn hlaðast á kröfurnar á hendur útgerðinni, og er um að gera að gera þetta klárt strax, en ekki bíða mánuðum saman eftir því, að á falli óþarfur aukakostnaður.
Mér hefur virzt það þannig, að eitthvað yrði nú gert í fjórða skiptið til aðstoðar síldarútvegsmönnum, sem gerðu út s. l. sumar. Það er rétt, að hv. þm. geri sér ljóst, að bankarnir og ríkisvaldið áttu sinn þátt í, hve margir fóru á síldveiðar í sumar. Það var eðlilegt, að ríkið og aðrir hefðu áhuga á að fá síld í verksmiðjur sínar. Þó er álitamál, hvort ekki hefur verið gengið fulllangt í þessu efni í sumar, en ekki þýðir að sakast um það. Hins vegar má búast við því, að ríkið verði í framtíðinni að skerast í leikinn í gegnum bankana og forða þar með stórskellum, dreifa skipunum. Það var þannig með bankana, að bezt var í sumar að fá fé til síldarútgerðar, en erfiðara til togveiða og annarra veiða, og þetta átti sinn stóra þátt i, að ýmis skip fóru á síldveiðar, sem ekki ætluðu að fara. Þannig áttu bankarnir sinn þátt í, hve margir fóru á síld í sumar.
Auk þessara sjónarmiða koma hér önnur til greina, sem ekki vega minna, það er að segja sjónarmið þeirra, sem standa uppi félausir, sjómannanna, sem eiga kaup sitt bundið á þennan hátt. Það er erfitt að koma heim af síldveiðunum í september og fá ekki kaup sitt borgað fyrr en í janúar, febrúar eða marz, enda eru margir farnir að gefast upp á að stunda sjóinn, og þetta á sinn þátt í, að menn gefa sjósókn frá sér. Þótt sjómenn hafi lagt fullgild sönnunargögn fyrir bankana, reikninga samþykkta af útgerðinni, þá hefur ekkert mark verið tekið á þeim, bankarnir taka ekki í mál að lána út á slíkt. Þær ráðstafanir, sem talað er um í þessari till. okkar, er hægt að gera til bráðabirgða og án kostnaðar. Skipin verða ekki seld fyrir sjóveðum, bankarnir leggja heldur féð út, en selja skipin fyrir minni háttar kröfum. Óreiða sú og rekstrartruflanir, sem sjóveðskröfurnar valda útgerðarmönnum, verða oft til þess, að bátarnir eru ekki hreyfðir tímunum saman. Margir hafa t. d. ekki verið hreyfðir síðan vertíð lauk síðast. Það er hyggilegt frá öllum hliðum skoðað að gera ráðstafanir til að leysa þessar kröfur. Ég hefði talið hyggilegast, að bankarnir legðu út það fé, sem þarf, þar til þingið tæki sínar ákvarðanir, sem gætu verið bráðabirgðaráðstafanir. Hins vegar vildum við flm. þessarar till. gera hana þannig úr garði, að ekki væri bundið við að fara þá leið. En við væntum þess, að hv. ríkisstj. sé okkur sammála um, að ekki sé hægt að láta þessi mál dankast áfram í sama reiðuleysinu. — Eitt af okkar mestu vandamálum er að fá menn á skipin. Öryggisleysi um kaupgreiðslur sjómanna stuðlar m. a. að þeim vanda og eykur á hann. Slíkt er ekki sambærilegt við þá, sem vinna í landi. Þar er þetta fyrirbæri um öryggisleysi í kaupgreiðslum næstum óþekkt, en til sjós er þetta algengt, vertíð eftir vertíð.
Að lokinni þessari umræðu legg ég svo til, að málinu verði vísað til fjvn.