09.12.1949
Neðri deild: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1534 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. V: Húnv. sagði um nál. í sambandi við breyt. á skattal., verð ég, því miður, að segja, að mér er ekki kunnugt um, hvort þetta nál. er komið til ráðun. eða ekki. sem stafar af mínum ókunnugleika af eðlilegum ástæðum. Hitt er mér sagt, að þetta nál. hafi komið í fyrra til ráðun., áður en þingi lauk. Ég skal með mestu ánægju athuga, hvort álit þetta liggur fyrir og hvort hægt er að láta hv. þingmenn hafa afrit af þessu nál.