14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í D-deild Alþingistíðinda. (3803)

62. mál, kaup sjómanna síldveiðiflotans

Erlendur Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég leyfi mér að vænta þess, að hv. þm. Siglf. endurskoði það, sem hann lét hér áðan frá sér fara, þegar hann var með hinar furðulegustu dylgjur í minn garð. — Nú má benda á í sambandi við dreifingu veiðanna, að nokkrar tilraunir hafa verið gerðar í þá átt, t. d. með fiskveiðunum við Grænland síðastliðið sumar. Ég veit að vísu ekki, hvernig sá leiðangur hefur tekizt, en sjálfsagt er að halda slíkum tilraunum áfram. Þó er vitað, að annað útgerðarfélagið hefur ekki skilað sínum skipum enn, heldur flutt þau í aðra heimsálfu, og um það er ég sammála hv. þm. Siglf., að slíkar tilraunir eru ekki heppilegar. Einnig hygg ég, að við séum sammála um nauðsyn þess, að nægilega mörg skip stundi síldveiðar fyrir Norðurlandi til þess að tryggja verksmiðjunum þar nægilegt hráefni. Nú veit ég ekki, hvort skipafjöldinn síðastliðið sumar er þar nokkur mælikvarði, en hitt hygg ég víst, að skipstjórar þeir, sem lengst héldu úti síðastliðið haust, séu á einu máli um, að allur flotinn hefði getað fyllt sig í síldargengd þeirri, er á Grímseyjarsund kom einn sólarhring í haust. Hitt er svo meira áhyggjuefni, hversu mikil þátttaka annarra þjóða er í síldveiðunum fyrir Norðurlandi. Mergð þeirra fer stöðugt vaxandi, þótt okkar skipum fækki þar heldur, og ég verð að vona fastlega, að það sé ekki skoðun hv. þm. Siglf., að okkur beri að fækka þar okkar skipum, til þess að hlynna að skipum annarra þjóða.