14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í D-deild Alþingistíðinda. (3804)
62. mál, kaup sjómanna síldveiðiflotans
Flm. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins benda hv. 6. landsk. á — og svara honum með því, er hann endaði sína ræðu með —, að það þýðir ekki að loka augunum fyrir því, að okkar síldarútvegur er að langmestu leyti miðaður við bræðslu, og þurfum við því mun meira magn til þess að láta þann rekstur bera sig en erlendu skipin. Það, að t. d. Norðmenn hafa stöðugt grætt undanfarin fjögur aflaleysisár, þegar við höfum aftur á móti tapað, byggist einmitt á þeirri augljósu staðreynd, að þeir salta alla sína síld um borð, en við miðum okkar veiðar við bræðslu. Það er því vel athugandi, hvort tiltækilegt væri að gera út skip á sama hátt og þeir og margar fleiri þjóðir, svo sem Svíar, Þjóðverjar, Danir og Rússar. Þetta væri, eins og ég tók fram, mjög æskilegt, að vel væri athugað, og ef þetta borgaði sig, þá væru þau skip, sem verkuðu sína veiði um borð, ekki undir sömu sökina seld eins og þau skip, sem í bræðslu veiða. Einnig yrði þetta auðvitað til þess að auka fjölbreytnina í sjávarútvegi okkar.
Ég vil svo að lokum beina þeirri ósk til hv. n., að hún hraði afgreiðslu þessa máls sem mest hún má, vegna þeirra brýnu þarfa, sem fyrir hendi eru, að þetta mál verði leyst.