14.12.1949
Sameinað þing: 10. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í D-deild Alþingistíðinda. (3808)

64. mál, jeppabifreiðar

Flm. (Ásmundur Sigurðsson) :

Herra forseti. Þess gerist nú eiginlega ekki þörf að hafa langa framsögu í þessu máli, heldur nægir að vísa til greinargerðar þeirrar, sem því fylgir. Ég veit, að hv. þm. muna, að þetta mál kom til umræðu á þinginu í fyrra og var þá rætt á tveim fundum, og samþ. án þess að nokkur andstaða kæmi fram gegn því. Alþingi sýndi þá, að því var full alvara með að leysa þetta mál á viðunandi hátt. Einnig sýndi það alvöru sína með því að samþ. lög um innflutning landbúnaðarvéla. Nú er það aftur á móti komið á daginn, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki farið eftir þessari eindregnu ályktun Alþingis, og þess vegna er þessi þáltill. borin hér fram. Það er farið fram á, að Alþingi skori enn á hæstv. ríkisstj. að framkvæma þetta nauðsynjamál.

Ég vil svo óska þess, að málinu verði vísað til 2. umr. og allshn.