12.01.1950
Efri deild: 28. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í B-deild Alþingistíðinda. (381)
81. mál, ríkisábyrgð á útflutningsvörum bátaútvegsins o.fl.
Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Við meðferð málsins í Nd. var felld burt 14. gr. frv., en hún hafði inni að halda till. um tekjuöflun til að standa undir útgjöldum ríkissjóðs vegna þessara laga. Í þessari d. hefur ekki verið tekin bein afstaða til þessa máls, vegna þess að tillgr. var niður fallin. Ríkisstj. hefur litið svo á, að sér væri skylt að bera fram till. um tekjuöflun á móti útgjöldum, sem af þessum lögum leiðir, svo að sá varnagli sé sleginn, ef ekki fellst annað fyrir og lögin halda áfram að verka eftir 1. marz. Hv. þdm. er kunnugt um till., svo að ég þarf ekki að fjölyrða um hana. Vil ég leyfa mér að bera hér fram fyrir hönd hæstv. fjmrh. þá till., að eftir 13. gr. komi ný grein, svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Komi ákvæði 13. gr. til framkvæmda, er ríkisstjórninni heimilt að innheimta söluskatt samkvæmt 21. gr. laga nr. 100/1948 með allt að 25% af tollverði allrar innfluttrar vöru, að viðbættum aðflutningsgjöldum og áætlaðri álagningu 10% — tíu, af hundraði.“
Ég vil nú leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa skriflegu brtt.