04.01.1950
Sameinað þing: 13. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í D-deild Alþingistíðinda. (3814)

72. mál, innlausn lífeyristrygginga

Flm. (Áki Jakobsson) :

Aðeins örfá orð vegna ræðu hv. þm. Ísaf. Eftir heimildinni, sem íslenzk endurtrygging hefur til þess að innleysa með peningagreiðslu lífeyri til þessa fólks, hefur ekki verið talið mögulegt að gera annað en að afhenda skuldabréf, vegna þess að þeir, sem tóku að sér þessar tryggingar, voru búnir að ráðstafa þessu fé í skuldabréfum. Vegna þess, að sú heimild nær ekki því marki, er hér lagt til, að ríkisstj. hlutist til um, að þetta verði borgað út í peningum til ekkna og foreldra þessara manna, sem hér er um að ræða. Það er ef til vill eðlilegast, að Tryggingastofnun ríkisins borgi þetta fé út, en það er að sjálfsögðu lagt í vald ríkisstj. að ákveða um framkvæmd þessa máls, ef hæstv. Alþ. samþ. þessa till., sem ég vona að það geri.